Jafnréttisstefna
Jafnréttisstefna FVA
Jafnréttisstefna Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi (FVA) byggir á lögum nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla og því að sá réttur er varinn í stjórnarskrá Íslands og mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna.
- Stuðla ber að jafnrétti kynjanna innan skólans, jöfnum tækifærum bæði starfsmanna og nemenda og að allir njóti þeirrar virðingar og áhrifa sem þeim ber.
- Stefnt verði að jafnrétti til menntunar á þann veg að hver einstaklingur geti nýtt hæfileika sína sem best óháð kyni og án hamlandi áhrifa hefðbundinna kynjaímynda.
- Fræðsla um jafnréttismál verði samofin skólastarfinu í kennslu ólíkra námsgreina.
- Notaðar verði fjölbreytilegar kennsluaðferðir til að ná til þarfa ólíkra nemenda.
- Nemendur skulu eiga jafnan aðgang að allri þjónustu skólans óháð kyni.
- Jákvæð samskipti og virðing eiga að vera ríkjandi í öllu skólastarfinu.
- Leggja skal áherslu á góða líðan nemenda og starfsmanna skólans. Koma skal fram við alla af virðingu óháð kyni, þjóðerni, litarhætti, trúarbrögðum, o.fl.
- Innan skólans skal unnið að því að koma í veg fyrir mismunun af öllu tagi og kynferðisleg áreitni og annað ofbeldi verður ekki liðið.
- Jafnréttisáætlun er birt á heimasíðu skólans.
Akranesi, 2017