Ég er gift Atla Harðarsyni, heimspekingi og aðstoðarskólameistara. Við eigum tvo syni, þá Mána, f. 1985, og Vífil,  f. 1991.  Fjölskyldan býr að Vallholti 19, Akranesi.

Foreldrar mínir eru Hreinn Ragnarsson, menntaskólakennari, og Guðrún Einarsdóttir, skrifstofumaður.  Þau búa á Laugarvatni. Systkini mín eru Ragna, trúnaðarmaður AFLs á Reyðarfirði (en Ragna býr á Eskifirði), Freyja, doktor í stærðfræði og kennari við Kennaraháskóla Íslands og Einar, doktor í sagnfræði, sem vinnur í Menntamálaráðuneytinu.

Ég hef starfað sem íslenskukennari við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi frá 1986, að undanskildum árunum 1996- 1998 en þá kenndi ég við   Menntaskólann að Laugarvatni.  Árið 1978 - 1979 kenndi ég í Grunnskólanum í Vík í Mýrdal, þá nýorðin 19 ára, og var reyndar harðákveðin í að gerast aldrei kennari, eftir þá reynslu.  En enginn veit sína ævina fyrr en öll er ...

Önnur störf:  Ég hef  unnið alls konar aukastörf með kennslu, t.d.  ýmis hlutastörf  fyrir Þróunarsvið Menntamálaráðuneytisins fyrir nokkrum árum.  Þau störf fólust m.a. í að verkstýra vinnu við evrópskt samvinnuverkefni á vegum Evrópska skólanetsins, sjá http://www.this.is/valnet. Áður var ég  e-Schola tengill og ENIS stjórnandi fyrir hönd sömu aðila (MRN og EUN). Svo hef ég stjórnað Comenius-verkefni fyrir FVA, unnið í Nordmål-verkefni fyrir ML, séð um erlend samskipti fyrir FVA (Leonardo, Nordplus junior o.þ.h. verkefni), unnið fjölmörg þróunarverkefni á sviði upplýsingatækni í skólastarfi, kennt á námskeiðum fyrir kennara o.s.fr. Af heilsufarsástæðum hef ég lagt aukastörf á hilluna.

Menntun:  MA í íslenskum bókmenntum, M.Paed. í íslensku, BA í íslensku + UK, frá HÍ.
Diploma í Upplýsingatækni í menntun og skólastarfi, frá KHÍ.
Urmull af  námskeiðum tengdum íslensku eða upplýsingatækni.
 
 
 

Síðast breytt í ágúst 2007.