Ritgerðarefni fyrir heimildaritgerð
Veldu eitt af eftirtöldum efnum, kynntu þér það vel og skrifaðu um það ritgerð. Ritgerðin á að vera 4 - 6 bls. löng, miðað við 1 1/2 línubil og 12 punkta Times New Roman letur. Ritgerðinni á að skila í síðasta lagi 3. mars. (Dreginn verður einn heill frá einkunn fyrir hvern dag sem dregst að skila ritgerð eftir að skilafrestur rennur út.) Það er skylda að skila þessari ritgerð til að ljúka áfanganum!
Sköpun heimsins og endalok.
Fjallaðu t.d. um hugmyndir ásatrúarmanna um uppruna heimsins og endalok, berðu þær saman við kristnar trúarhugmyndir og hugmyndir annarra trúarbragða, hafðu einnig hliðsjón af hugmyndum nútíma vísinda og loks lífsskoðun þinni.
Goðfræðilegar skýringar á náttúrunnar ríki.
Fjallaðu t.d. um sköpunina, gang himintungla, vind, árstíðir, regnbogann, döggina, sjávarföll, seltu sjávar, dag og nótt, heimsendi o.fl, skv. norrænni goðafræði. Athugaðu einnig goðin (t.d. Frey, Njörð og Þór) sem fulltrúa náttúruaflanna.
Líf og dauði í ásatrú og öðrum trúarbrögðum.
Fjallaðu um hugmyndir ásatrúar um upphaf lífsins og líf eftir þetta líf. Er mönnum umbunað eða refsað í öðru lífi fyrir "syndir" hérna megin grafar? Fjallaðu um Valhöll og Hel, Náströnd og Gimlé. Tengdu þessar trúarhugmyndir þinni trú og öðrum trúarbrögðum og farðu síðan nokkrum orðum um viðhorf þitt.
Nöfn Íslendinga (Tillögur: Vinsælustu nöfnin, heiðin eða kristin? Úrtak úr bekknum, saga nafna, mismunandi nafnatíska o.s.fr.)
Snorri Sturluson (Ævi, ritstörf o.s.fr.)
Heimsmynd í aldanna rás (t.d. hugmyndir Forngrikkja, hugmyndir kristinna miðaldamanna, hugmyndir heiðinna manna, hugmyndir vísindamanna).
Landnám á Akranesi (Finndu upplýsingar sem víðast, s.s. úr Landnámu, Íslendingabók, Íslendingasögum og þjóðsögum. Halda Skagamenn uppruna sínum á lofti á einhvern hátt? Hvernig væri hægt að minnast forfeðranna? Eða er engin ástæða til þess?)
Goðafræði og nútíminn (Má sjá merki um að fræði þau sem Snorra-Edda rekur séu á einhvern hátt lifandi í nútímanum? Ættu þau að vera það? Hverjum henta þessar sögur/þessi fræði?)
Heimildalisti (Athugið að alls ekki er um tæmandi lista að ræða!):
Tölurnar fremst vísa til skráningarnúmers á bókasafni FVA. Leitið líka á vefnum, með leitarvélum, og skoðið sérstaklega vel Vefbókasafnið, á http://www.vefbokasafn.isNorræn goðafræði:
293 Branston, Brian. 1979 Goð og garpar úr norrænum sögum. Rvk. Bókaforlagið Saga.
293 Bringsværd, Tor Åge. 1989. Þrumuguðinn Þór. Rvk., Bjallan.
293 Bæksted, Anders. 1986. Goð og hetjur í heiðnum sið. Rvk., Örn og Örlygur.
819.09 Heiðin minni.1999. Rvk., Heimskringla
949,1 Trúarhættir. Íslensk þjóðmenning V. 1988. Rvk. Þjóðsaga
293 Jón Hnefill Aðalsteinsson. 1997. Blót í norrænum sið. Rvk., Háskólaútgáfan.
293 Nielsen, Erik Hjorth. 1994. Huginn og Muninn segja frá ásum. Rvk. Mál og menning.
293 Níu nætur. 1994. Rvk., Ásatrúarfélagið.
292 Ólafur Briem. 1985. Heiðinn siður á Íslandi. Rvk., Menningarsjóður
293 Ólafur Briem. 1985. Norræn goðafræði. Rvk., Skálholt
810.9 Ólafur Briem. 1963. Vanir og Æsir. Rvk., Bókaútgáfa Menningarsjóðs.
293.03 Simek, Rudolf. 1993. Hugtök og heiti í norrænni goðafræði. Rvk., Heimskringla.
293 Sölvi Sveinsson. 1993. Guðirnir okkar gömlu. Rvk., Iðunn
293 Svört verða sólskin. 1992. Rvk, Mál og menning.
Önnur trúarbrögð:
937 Durant, Will. Rómaveldi I
938 Durant, Will. Grikkland hið forna I
292 Gibson, Michael. 1977. Goð, menn og meinvættir úr grískum sögum. Rvk., Bókaforlagið Saga.
291.1 Goðsagnir heimsins. 1998. Rvk., Mál og menning.
293 Goodenough, Simon. 1997. Celtic Mythology. Twickenham, England, Tiger books
936 James, Simon. 1998. Exploring the World of the Celts. London, Thames and Hudson
299 Marriot, Alice. 1972. American Indian Mythology. New York, New American Library
291.1 New Larousse Encyclopedia of Mythology. 1987. New York, Crescent.
930.03 Radice, Betty. 1975. Who's who in the Ancient World. England, Penguin Books
909 Steffensen, James L. 1966. Ancient Rome. New York, Golden Press.
930 Þættir úr sögu vestrænnar menningar. 1998. Rvk., Hið íslenska bókmenntafélag.
200.9 Sigurbjörn Einarsson. Helstu trúarbrögð heims
290 Sigurbjörn Einarsson. Trúarbrögð mannkyns
Snorri Sturluson
921 Gunnar Benediktsson. 1957. Snorri skáld í Reykholti. Rvk., Heimskringla
921 Sigurður Nordal. 1973. Snorri Sturluson. Rvk., Helgafell
921 Snorri. 1979. Rvk., Sögufélag
949.1 Munnmenntir og bókmenning. Íslensk þjóðmenning VI. 1989. Rvk., Þjóðsaga
810.9 Íslensk bókmenntasaga I. 1992. Rvk., Mál og menning.
Landnám
249.1 Arnór Sigurjónsson. 1973. Frá árdögum íslenskrar þjóðar. Rvk., Sögufélagið.
249.101 Árni Óla. 1979. Landnámið fyrir landnám. Rvk., Setberg.
291 Einar Pálsson. 1970. Trú og landnám. Rvk., Mímir
* Einar Ólafur Sveinsson. 1962. Íslenskar bókmenntir í fornöld. Rvk., Almenna bókafélagið.
(* Ekki til í bókasafni FVA)949.101 Hermann Pálsson. 1996. Keltar á Íslandi. Rvk., Háskólaútgáfan.
949.134 Jón Böðvarsson. 1992. Akranes. Akranesi, Prentverk Akraness.
949.134 Ólafur B. Björnsson. 1957. Saga Akraness 1. Akranesi, Akranesútgáfan.
949.134 Ólafur B. Björnsson. 1959. Saga Akraness 2. Akranesi, Akranesútgáfan.
819.3 Landnáma. nóv.1999. http://www.snerpa.is/net/ Netútgáfan
819.3 Ari fróði Þorgilsson. Íslendingabók. ?
949.1 Uppruni og umhverfi. Íslensk þjóðmenning I. 1987. Rvk., Þjóðsaga.
Nafnafræði
910.3 Grímur. 1983. Rvk., Örnefnastofnun Þjóðminjasafnsins.
409.2 Guðrún Kvaran og Sigurður Jónsson. 1991. Nöfn Íslendinga. Rvk., Heimskringla
949.101 Hermann Pálsson. 1996. Keltar á Íslandi. Rvk., Háskólaútgáfan.
410.8 Íslenskt mál og almenn málfræði. 1997 - 98., Rvk., Íslenska málfræðifélagið.
409.2 Karl Sigurbjörnsson. 1991. Hvað á barnið að heita? Rvk. Setberg
410.9 Sölvi Sveinsson. 1992. Íslensk málsaga. Rvk., Iðunn.
409.2 Véný Lúðvíksdóttir. 1994. Nafnakver. Rvk., Námsgagnastofnun.
Heimsmynd
819.1 Snorri Sturluson. Snorra-Edda
949.1 Alþýðuvísindi. Íslensk þjóðmenning VII. 1990. Rvk., Þjóðsaga.
509 Þorsteinn Vilhjálmsson. Heimsmynd á hverfanda hveli. 1986. Rvk., Mál og menning