![]()
Bókin Allt um pottaplöntur er eftir David Longman. Fríða Björnsdóttir íslenskaði. Þessi bók kom út hjá Erni og Örlygi árið 1982.
Helgi Hálfdanarson þýddi Kóran og Mál og menning gaf út árið 1993. Þetta er grundvallarrit múslima.
Greinin "Villimaðurinn með barnshjartað" er í septemberblaði Mannlífs, sem er 7. tölublað 15. árgangs. Þetta er viðtal við Svavar Dalmann, sem Ragnheiður Davíðsdóttir tók.
Sýnisbók íslenzkra bókmennta til miðrar átjándu aldar var kennd til skamms tíma í menntaskólum landsins. Það voru þau Sigurður Nordal, Guðrún P. Helgadóttir og Jón Jóhannesson sem settu hana saman. Bókin kom út hjá Bókaverzlun Sigfúsar Eymundssonar h.f., í Reykjavík, árið 1953.
The Viking Network er samheiti margar vefsíðna og verkefna unnu á Internetinu. Ýmsir höfundar hafa lagt til efni. Þetta er vinsælasti vefur Norðurlanda. Hann er á http://viking.no
Ólafur Briem annaðist útgáfu á Eddukvæðum, í ritröðinni Íslenzk úrvalsrit 5. Bókaútgáfan Skálholt í Reykjvík gaf bókina út, árið 1976.
Björn Th. Björnsson skrifaði skáldsöguna Hraunfólkið. Undirtitill bókarinnar er Saga úr Bláskógum. Þetta er 2. útgáfa sem kom út hjá Íslenska kiljuklúbbnum 1997.
Íslandsklukkan fæst í handhægri kilju frá Vöku - Helgafelli. Bókin er að sjálfsögðu eftir Halldór Laxness og þessi útgáfa kom út árið 1994. Þetta er 6. útgáfa verksins. Pétur Már Ólafsson ritar formála.
Jonathan Kellerman er fantagóður spennusagnahöfundur. Hann hefur m.a. skrifað bókina The Butcher's Theatre. Warner Books útgáfan, sem er á 165 Great Dover Street, London SE1 4YA, gaf þessa bók út árið 1993, í kilju, en fyrst kom bókin út árið 1988.