
Þessar glósur skiptast þannig:
I. Fróðleikur um myndir á vefsíðu
1. Að búa til skráasafn og tóma vefsíðu undir myndir
2. Að finna myndir og sækja heim til eigin nota
[Texta um hljóð er sleppt enda er hann ekki eftir Hörpu]
Myndir á vefsíðum eru á tvenns konar formi, þ.e. ýmist gif eða jpg. Bæði þessi form byggjast á "þjöppun", þ.e. að myndinni er þjappað þannig að hún sé eins fá kílóbæti (K) og hægt er, til þess að hún sé fljót að hlaðast inn á vefsjá notanda. Ágætt er að miða við að ein vefsíða sé ekki meira en 50 K með öllu (öllum myndum, bakgrunni o.þ.h.)
Þessi þjöppun er á kostnað gæðanna svo myndir á vefsíðu eru aldrei sérlega skýrar. Þumalfingurregla sem oft er notuð segir að litmyndir visti maður á jpg-formi en svarthvítar á gif-formi.
Jpg (eða jpeg) er oft meiri þjöppun en gif. Kosturinn við jpg er sem sagt að þær myndir taka mjög lítið pláss en eru að sama skapi ekki sérlega skýrar.
Atli hefur tekið saman nánari upplýsingar um hvers konar myndir borgar sig að vista sem jpg og hverjar sem gif. Þær upplýsingar er að finna á http://www.fva.is/kennsla/tolvufr/tol103/inetglos/efnisy.htm, maður velur svo "Hvað er hægt að hafa á vefsíðum?", og ættu að nýtast fólki sem vill gera eigin myndir, annað hvort skanna eða teikna, og koma fyrir á vefsíðum.
Tveir meginkostir fylgja gif forminu. Það eru:
a) gif myndir má gera gagnsæjar
b) gif myndir geta verið hreyfimyndir
Í a) er átt við það að hægt
er að gera bakgrunn á gif mynd gagnsæjan. Það
getur komið sér vel ef líma á gif mynd á
vefsíðu með bakgrunni.
Tvísmella á gif mynd á vefsíðunni sinni.
Þá kemur upp valmynd merkt Image.
Velja Basic á þeirri valmynd.
Velja Transparency and Interlace, með því að ýta
á Set-hnappinn. Þá opnast einfalt myndvinnsluforrit.
Þar velur maður Transparancy Tool (gulan hring) og dropateljarinn
birtist. Síðan er bara að fara með hann á þann
lit sem gera á gagnsæjan.
Í LViewPro myndvinnsluforriti er þetta gert
þannig:
Farið í File og myndin opnuð þar,
velja Retouch af valmynd,
velja svo Background color,
haka við Mask Selcection using og svo Black (sem þýðir
að allt sem ekki á að verða gagnsætt birtist svart),
finna litinn sem á að verða gagnsær í palettunni,
ýta á Dropper. Þá verður músarbendill
að dropateljara. Síðan er dropateljarann færður
á myndina, á litinn sem á að verða gagnsær
og ýti einu sinni. Svo er myndin vistuð (Save as) sem
gif89a.
b) Hreyfimyndir á vefnum eru alltaf á gif formi.
Þær eru kallaðar gif animated myndir. Eðli
þeirra er hið sama og stuttra teiknimynda, þ.e.a.s. bak
við hverja gif animated mynd eru svona 7 - 10 litlar gif myndir. Þegar
þær eru spilaðar hratt í vefsjánni sér
notandinn þær eins og við erum vön að sjá
teiknimyndir.
1.
Búa til sitt eigið skráasafn og tóma vefsíðu
undir myndir
a) Ef þið eigið skráasafn/möppu á K-drifinu skulið þið nú finna það og búa til skráasafn þar inni sem heitir myndir. (Ef ekki kallið á Ingu eða Hörpu ...)
b) Búið til tóma vefsíðu í því forriti sem þið eruð vön að nota til þess arna. Ef þið hafið ekki gert vefsíðu áður þá gerið það þannig:
b) Farið í Edit, veljið Preferences, veljið Composer, veljið Publish. Passið að ekki sé hakað við þá tvo möguleika sem þar eru gefnir. (Þetta borgar sig að gera í upphafi svo krækjurnar sem maður notar á vefsíðu verði í lagi.)
c) Farið í File og veljið New ->Blank
Page. Þá opnast ritillinn í Netscape (heitir Netscape
Composer og þið þekkið hann á verkfæraslá
á því að þar er mynd af penna...)
d) Veljið Save As í File og gefið síðunni eitthvert nafn, t.d. myndasida. Ekki hafa nafnið meir en 8 stafi og ekki nota séríslensk tákn í því. Passið að vista síðuna á réttum stað (í K:\eigið_skráasafn\myndir\). Þið verðið beðin um titil á síðu og veljið hann sjálf, t.d. Myndasafn Flemmings ;-)
e) Lokið nú Netscape Composer í bili með
því að ýta á strikið _
sem er í horninu hægra megin. Ritillinn er samt í gangi
og þið sjáið hann neðst á skjánum.
2.
Að finna myndir og sækja heim til eigin nota
Myndir sem maður ætlar að nota á vefsíðu eru kallaðar einu nafni Clipart. Þeim má skipta í ýmsa undirflokka, t.d. borders eða lines (borðar og línur sem maður notar til skrauts), icons (litlar myndir, eiginlega nokkurs konar merki), backgrounds (bakgrunnsmyndir), 3D (þrívíddarmyndir), gif-animated (hreyfimyndir) o.s.fr.
Þegar maður finnur álitlega mynd á vefnum og vill hirða hana þá skal ýta á hana með hægri músartakka og velja Save image as, af valmynd sem þá kemur; vista hana síðan í eigið skráasafn. (Makkanotendur hafa vitaskuld bara einn takka á músinni sinni og nota hann :-)
Nú skulið þið finna myndir sem þið viljið hirða. (Ef menn vilja koma sér upp myndarlegu myndasafni á K-drifi er ágætt að flokka það, búa til undirsöfn undir safnið myndir, fyrir bakgrunna, íkon, 3D, hreyfimyndir o.þ.h. Borgar sig að láta söfnin ekki heita séríslenskum stöfum, vegna duttlunga K-drifsins.)
Skoðið eftirfarandi og hirðið eitthvað:
2.1 Yahoo. Þetta er leitarvél sem er ágæt ef maður er ekki alveg klár á hvað maður vill, því hún er efnisflokkuð, eins og bókasafn, og gott að gramsa þar. Farið á:
Veljið Computers and Internet
Þarna eru svo efnisflokkaðar krækjur í
myndasöfn. Ef leitað er að hreyfimyndum borgar sig að
skoða Animated Gifs@, ef ætlunin er að búa til Valentínusarkort
er sennilega happadrýgst að velja Holidays and Observances@
o.s.fr.
2.2 AltaVista. Það má líka nota óflokkaða vél á borð við AltaVista eða HotBot. Farið á aðra hvora og þefið uppi myndir. Þær eru á:
Prufið mörg leitarorð. Vænleg orð eru:
Clipart; pictures; gif; backgrounds; icons; o.s.fr.
Ef ég ætlaði að leita að myndasafni með kattamyndum myndi ég prófa
clipart cats
Gallinn við svona leitarvélar er að maður fær allskonar drasl með, því vélarnar hugsa ekki.
Bestu myndasöfnin eru hraðvirk, enda birta þau annaðhvort agnarsmáa sýnisútgáfu af myndunum eða lýsa myndunum í texta. Kostur er að slík söfn séu kyrfilega flokkuð. Prófið eitthvað af þessum:
http://www.clipartcastle.com/ Hér eru yfirleitt gullfallegar myndir, margar með ævintýrablæ. Þeir sem aðhyllast hið óþekkta og miðaldafræði ættu að prófa þessa síðu.
http://www.pambytes.com/ Þessi síða hefur þann kost að hún býður upp á Image Sets, þ.e. hægt er að finna "allt-í-stíl", svo sem bakgrunn, takka, borða og ýmis skrautdót. Bæði mjög kvenlegt og afar "macho" sett ;-)
http://www.clipart.net/ Þetta er safn af krækjum í önnur myndasöfn. Stuttur texti fylgir svo maður veit hvað er í hverju safni (t.d. er þarna krækt í stjörnufræðimyndasafn, Hannes!)
2.4 Loks er rúsínan í pulsuendanum; Síða sem ég er nýbúin að uppgötva. Hún er á
Á þessari síðu eru skemmtilegar vélar sem gera manni lífið léttara. Ein vélin býr til takka fyrir mann. Annað hvort getur maður sent vélinni staðsetningu á myndinni sem breyta á í takka, eða valið einhverja mynd úr söfnum síðunnar og látið breyta henni í takka fyrir sig.
Prófið að fara í Icon Library (vinstra megin á síðunni), velja eitthvert íkon og velja síðan Button Maker fyrir neðan myndina. Sjáið hvernig hún lítur út sem takki. Ef þið eruð með mynd inni á vefnum má líka gefa upp slóðina á myndinni og láta vélina gera hana að takka.
Ein vélin tekur fyrir mann gif-mynd og smækkar hana (þannig að hún taki minna pláss). Það má t.d. koma skönnuðum myndum fyrir á vefsíðu, hafa svo samband við þessa vél (Gif Optimizer), gefa henni upp slóðina og láta hana minnka umfang myndarinnar, sækja svo minni útgáfuna heim. Ábyggilega fljótlegra en möndla við þetta sjálfur í myndvinnsluforriti! Myndin sem ég prófaði varð hins vegar ofboðslega ljót :-(
Prófið að fara í The animated banner maker. Ýtið á Make banner. Veljið síðan einhverja "animation"-möguleika fyrir neðan. Skrifið svo texta, t.d. eigið nafn, neðst á síðuna, í gluggann þar sem stendur Type your text for the banner here, og ýtið á Make banner. Athugið að séríslenskir stafir ganga ekki ekki. Sjáið hvað þetta er flott!
Þið getið prófað að gera þrívíddartextamynd, í 3D Textmaker.
Loks mæli ég mjög með kennsluefni á þessari
síðu, þ.e. Tutorials og efnisflokkuðu leitarvélasafni.
Þegar maður hefur gert glærusafn (fleiri en eina glæru) í Power Point er einfalt mál að gera þær veftækar. Í Power Point er valið Save as HTML file, af File valmyndinni. Þá býr tölvan til sérstakt skráasafn og setur þar inn allar glærurnar sem vefskjöl. Þessu fylgir Index-síða, með lista yfir allar glærur. Index síðunni má breyta í hvaða vef-ritli sem er, eins og hverri annarri vefsíðu.
Síðan er öllu klabbinu komið fyrir á V-drifi
eða vél Ísmenntar og tengt í Index-síðu
viðkomandi deildar eða viðkomandi kennsluáætlun.