
17. október 2000; Ég lagfærði eilítið atriði á þessari síðu en bætti ekki við neinum krækjum. Ítarlegt krækjusafn sem nýtist nemendum og kennurum er að finna á UT-vefnum. Hér er krækt í síður um íslensku.
![]()
Fornar bókmenntir og miðaldasaga:
Texta fornsagna og margar aðrar bókmenntir má finna hjá Netútgáfunni
Fjarkennsluefni í ÍSL 313, eftir Braga Halldórsson, fjallar um Njálu, Hrafnkels sögu, Snorra-Eddu og nokkur eddukvæði. Þar má m.a. finna skýringar, verkefni og próf.
Kvasir. Þetta eru glósur Jóns Ævars Pálmasonar úr ÍSL 313. Þær fjalla um Hávamál, Egils sögu og Snorra-Eddu. Þær er hægt að sækja á Word 2.0 formi. Glósurnar eru geymdar undir veffanginu http://www.fva.is/~kvasir/index.html
Fjarkennsluefni í ÍSL 313 í VMA; Þetta eru próf úr Eglu og Snorra-Eddu. Höfundur þeirra er Jóna Pálsdóttir.
Forn fræði er vefur um íslenskar fornsögur og eddukvæði, aðallega unninn af nemendum í Fjölbrautaskóla Vesturlands og Menntaskólanum að Laugarvatni. Þar er m.a. umfjöllun um Njálu, Laxdælu, Egils sögu, Hávamál og Völuspá.
The Icelandic Sagas er góð uppýsingasíða um efni tengt Íslendingasögum.
Saga og bókmenntir (Árnastofnun)
The Viking Network - hér eru ýmsar upplýsingar um víkinga og líf þeirra
The World of the Vikings er góð upplýsingasíða um víkinga
The Viking Saga er sömuleiðis góð síða með almennum fróðleik um samfélag á víkingatímum
Eiríksstaðanefnd er síða sem segir frá störfum nefndarinnar, fornleifauppgreftri á Eiríksstöðum og ýmsu sem tengist Eiríki rauða og syni hans.
Um fornleifauppgröft í Reykholti, Borgarfirði. Þessi síða er því miður aðeins til á ensku.
Safnið í Jórvík á Englandi er frægt fyrir sýningar um líf víkinga. Þetta er heimasíða safnsins, en einnig má fara hingað og sækja heim hljóðskrá, þar sem heyra má víkingaskraf frá miðri tíundu öld!
Leikur um víkingasiglingu; Ég hef ekki sjálf spilað þennan leik en hann felst í því að setja sig í spor Leifs heppna og sigla til Vínlands.
![]()
Um Halldór Laxness og verk hans
Kennsluefni og fleira um Íslandsklukkuna
![]()