
Í ritun verður notað forritið Ritbjörg, eftir Guðlaugu Guðmundsdóttur og Hildigunni Halldórsdóttur. Forritið er að finna í tölvum skólans. Einu sinni í viku verður ritunarkennsla í tölvustofu. Auk tölvustuddrar ritunarkennslu handskrifa nemendur dagbók og skila einu sinni í viku (í fyrstu kennslustund vikunnar).Kynning á Ritbjörgu (glærusýning eftir Sverri Pál Erlendsson) er á http://www.ma.is/kenn/svp/kennsluefni/ritbjorg_files/frame.htm
Nemendur skulu halda ritunarverkefnum sínum til haga í sérstakri plastmöppu. Slík mappa er skilyrði fyrir því að kennari gefi einkunn fyrir ritun (sem gildir 10% af lokaeinkunn).
Einn þáttur ritunarverkefna í hópi Hörpu er að nemendur skiptast á að sinna starfi fréttaritara og skrifa fréttir af skólalífinu. Þær fréttir birtast á UT-skólavef Morgunblaðsins (http://www.mbl.is/utskolar/) undir nafni fréttaritara hverju sinni. Tveir nemendur bera ábyrgð á að skrifa 3 fréttir í viku sem skilað er fyrir hádegi á föstudegi. Hverjir tveir nemendur gera þetta einu sinni á önninni og er ekki gefinn neinn frestur á skilum. Þessi vinna hefst í 2. viku.
- Hollráð um hegðun í tölvustofu
- Fyrsta verkefni í Ritbjörgu á vorönn 2002 (Atvinnuumsókn)
- Annað verkefni í Ritbjörgu á vorönn 2002 (Vinarbréf)
- Þriðja verkefni í Ritbjörgu á vorönn 2002 (Frétt)
- Fjórða verkefni í Ritbjörgu á vorönn 2002 (Umsögn um kvikmynd eða íþróttaviðburð)
- Notkun Púkans í Word
Nánari upplýsingar um ýmislegt sem lítur að ritun má sjá á http://www.fva.is/harpa/ritun.htm (Ath. að sumt á þessum síðum er úrelt, þ.á.m. ýmislegt í verkefnum í Ritbjörgu. Nýtt efni verður sett inn jafnóðum á vorönn 2002).