© Harpa Hreinsdóttir

2. verkefni:  Einfaldur takki


1.  Í Paint Shop Pro ferðu í File og velur New.
2.  Veldu að breiddin sé 300 pixel og hæðin 100 pixel.  Veldu að bakgrunnslitur sé rauður (af rennilásnum í Background Color).
3.  Nú er takkinn þinn kominn (ansi stór takki en góður til að æfa sig á!)  Veldu nú lit á letrið, sem þú ætlar að setja á takkann, með því að ýta á forgrunnslitinn (lengst til hægri á skjánum) og velja af pallettunni.  Veldu einhvern lit sem sést vel á rauðu.
4.  Ýttu með músarbendli á A takkann, sem er þriðji neðstur á tækjastiku lengst til vinstri.  Færðu svo músarbendil yfir á rauða takkann þinn og ýttu einu sinni. Þá opnast textavalblað.
6.  Veldu 16 eða 18 punkta letur af Size-listanum.
7.  Skrifaðu eitthvað spaklegt í reitinn Enter Text Here, t.d. Takkinn minn ...
8.  Veldu nú einhverja fína stafagerð (font) - en þú sérð jafnóðum hvernig textinn þinn mun líta út.  Veldu líka feitletrun eða skáletrun eftir behag ... Þegar þú ert búin(n) að velja ýtirðu á OK.
9.  Nú lokast textavalblaðið og textinn þinn birtist titrandi á takkanum.  Þú getur fært hann til eins og þú vilt, með músinni (haltu niðri venjulega músartakkanum á meðan).
10. Þegar textinn er kominn á þann stað sem þér hugnast skaltu fara í Selections og velja Select none.  Þá festist textinn á takkanum og titrar ekki meir.
11.  Vistaðu takkann þinn sem .gif mynd.

ATH.  Ef eitthvað klikkar í þessu ferli, t.d. kemur í ljós að letrið er of stórt og kemst ekki á takkann þá er alltaf hægt að bakka eða endurkalla skipanir með því að fara í Edit og velja Undo.  Hægt er að afturkalla tugi skipana, þess vegna.