Námskeið fyrir starfsfólk FVA
9. mars 2000
© Harpa Hreinsdóttir
 

Að sækja forrit af vefnum


 
Á vefnum er fullt af allskonar forritum og forritsbútum sem geta létt manni líf og lund.  Mörg þessara forrita eru ókeypis til prufu, oft tímabundið, t.d. í einn mánuð (Time-limited demo), eða hluti forritsins er ókeypis eða jafnvel allt forritið (Freeware).  Mörg forrit eru deiliforrit (Shareware) sem þýðir að þau má prófa frítt en ef maður ætlar svo að nota það á maður að senda greiðslu til höfundar.  Sækja má forritsbúta sem laga villur í forritum sem þegar eru í dreifingu (svokallaða plástra - Patches) og viðbætur við forrit (Plug-ins).

Af góðum forritabönkum má nefna Tucows (www.tucows.com) og Mediabuilder (www.mediabuilder.com - velja Software Tools).

Þegar forrit er sótt er það oftast "pakkað", "zippað" eða hvað þið nú viljið kalla það.  Það þýðir að forritinu er pakkað sem mest þannig að það taki skemmri tíma að sækja það.  Slík forrit hafa endinguna .zip.  (En venjulega hafa forrit endinguna .exe)  Þegar "zippað" forrit hefur verið sótt þarf að "pakka því upp" ("zippa það upp").  Venjulega notar maður forrit sem heitir Win-zip til þess eða Aladin ....? Þessi forrit eru gáfuð og fatta sjálf hvað þau eiga að gera, það þarf bara að láta þau vita hvar á harða diskinum upppakkaða forritið á að lenda.

Sem dæmi um þetta ferli ætla ég að sækja Hot Potatos og koma því fyrir á tölvunni hér.