Námskeið fyrir starfsfólk FVA
9. mars 2000
© Harpa Hreinsdóttir
 
Verkefna og prófaforritið Hot Potatos

Hot Potatos er ókeypis fyrir einstaklinga.  Upplýsingar um forritið fást á síðunni Half-Baked Software Home Page, á http://web.uvic.ca/hrd/halfbaked.  Þaðan er líka hægt að hlaða forritinu niður á eigin tölvu.  Til þess að geta notað forritið til fulls verða menn að skrá sig (sjá upplýsingar á heimasíðu Half-Baked, sem vísað er í hér að ofan).  Það er t.d. bara hægt að búa til krossapróf með þremur spurningum uns menn hafa skráð sig og fengið lykilorð, en þá opnast möguleiki á nánast óteljandi fjölda krossaspurninga.

Þegar forritið er opnað blasir þessi skjámynd við:

JBC býr til krossapróf, JQuiz býr til próf þar sem svara á með einu stuttu svari, JMix býr til próf þar sem raða á setningum í rétta röð, JCross býr til krossgátur, JCloze býr til eyðufyllingarpróf og JMatch býr til próf þar sem menn eiga að tengja saman atriði.

Hér á eftir verður gerð grein fyrir því hvernig hægt er að búa til krossapróf í JBC.

Þetta er fyrsta skjámyndin í JBC.  Hún skýrir sig nánast sjálf:  Þar sem stendur Q skrifar maður spurningu og velur svo spurningu 2 með rennilásnum.  Í Answers skrifar maður möguleikana á réttu svari og hakar við þann rétta.  Í Feedback er hægt að skrifa athugasemdir sem birtast á skjánum þegar nemandi hakar við þann möguleika.  Title er vitaskuld titill krossaprófsins.

Það borgar sig að stilla forritið fyrir sig í upphafi, með því að fara í Options, sem sést efst á skjámyndinni.  Þar velur maður t.d. undirtitil prófsins, íslenskar skilaboð til nemenda, s.s. hvað stendur á tökkum, hver stigafjöldinn er o.s.fr.

Þegar maður hefur búið til nógu margar krossaspurningar er prófið vistað.  Það er gert með því að fara í File og velja Save as;  gefa síðan prófinu nafn (helst ekki með séríslenskum táknum).  Forritið vistar prófið á formi sem heitir .jbc, t.d. prof1.jbc.  Ef maður þarf að breyta prófinu seinna meir er auðveldast að gera það í JBC og opna þá þessa skrá.

En vefsjár, á borð við Netscape og Internet Explorer, geta ekki lesið jbc-skrár.  Þess vegna þarf að fara aftur í File og velja Export to Web. Þar gefur maður sama nafnið og þá býr forritið til þrjár skrár, t.d. prof1.htm, prof1w.htm og prof1c.htm.  Stýrirskráin (root-file) er sú fyrsta en hinar tvær eiga við mismunandi ramma sem birtast í vefsjá.  Þessum þremur skrám kemur maður fyrir inn á vefsvæðinu sínu (á V-drifi eða á vefþjóni (Linuxa) Bjarnþórs) og krækir í stýriskrána.  Þar með er prófið tilbúið og nemendur geta æft sig á því!

Ath.  Rétt eins og prófavél Ísmenntar-Skýrr býr þetta forrit til próf í java-script.  Það þýðir að nemendur sem kunna að skoða kóða vefsíðunnar (View source) geta auðveldlega séð réttu svörin.  Þess vegna er bara hægt að nota þetta forrit til að búa til æfingapróf en ekki alvöru próf sem gilda ;-)