Að nota skannann sem tengdur er K6 tölvunni í "gömlu deildarstjóraálmu"


Þessi skanni er svo gáfaður að mannshöndin getur ekki kveikt á honum heldur einungis forrit. Það þýðir því ekkert að þukla hann í leit að ON/OFF takka!

Maður opnar Paint Shop Pro (START-Programs-Myndvinnsla-Paint Shop Pro)

Fer í File - Import - TWAIN - Acquire

(Þá kviknar á skannanum)

Valmyndin sem kemur upp er svona:

Fyrst stillir maður á P takkann neðst til hægri.  Þá keyrir skanninn Preview og maður sér hvar myndin er. 

Þá eru brotalínurnar (til vinstri) dregnar kringum myndina sem á að skanna.

Þegar það er klárt er ýtt á S og skanninn skannar!

Litlu lituðu/svarthvítu kúlurnar efst til hægri tákna val um skönnun í lit eða svarthvítu. Hér er hakað við lit.

150 dpi þýðir 150 punktar á tommu og á við hve há upplausn er á myndinni.  Því fleiri punktar á tommu, því skýrari er myndin, en tekur einnig meira pláss, í bætum talið. (Fyrir vefinn er 72 dpi nóg).

Næst velur maður hvernig myndin birtist á blaði, þ.e. lárétt eða lóðrétt.  Þar fyrir neðan er hægt að stilla stærðina á myndinni, í tommum eða sentimetrum.