Námskeið fyrir starfsmenn FVA
24. febrúar
© Harpa Hreinsdóttir

Hvernig á að stilla FTP-forrit og nota

Bjarnþór getur búið til heimasvæði fyrir þá sem eru að gera vefsíður, á LINUX- vél skólans (þ.e. tölvunni sem tengist vefþjóni SKÝRR-Ísmenntar).

Þegar menn hafa fengið úthlutað heimasvæði er nafnið á vefsvæðinu public_html.  Inn í það skráasafn "mokar" maður sínum vefsíðum eða öðru og getur auðveldlega búið til undirskráasöfn.

Ef þú ert Jóhanna og sendir inn síðu sem heitir philippe.htm, inn í skráasafnið public_html (með FTP-forriti, sjá útskýringu neðar), þá gætirðu séð hana á vefnum á slóðinni http://www.fva.is/~jhalf/philippe.htm.

Til þess að senda skrár inn á vefþjón á Internetinu notar maður forrit sem heita ftp-forrit.  Algengast þeirra er WS-FTP.  Það er ókeypis og liggur frammi á flestum internetþjónustum eða fylgir á notandadiski þeirra.

Svona lítur fyrsta skjámynd í WS-FTP út:


 
 

Svona á forritið að vera stillt, þ.e. standa www.fva.is í Host Name (en þetta er nafnið á Linuxanum Bjarnþórs), User ID er hér jar113, en gæti alveg eins verið jhalf (á svæði Jóhönnu) eða eitthvað annað og Password, sem ekki er fyllt inn hér, er aðgangsorðið þitt, sem er auðvitað leyndó!  (Passaðu að ekki sé hakað við Anonymous Login, Save Password eða neitt þvíumlíkt.)

Ef þú ýtir á Advanced á þessari valmynd (til hægri) kemur upp þessi hérna:


 
 

Þarna er aðalatriði að stillt sé á rétt Remote Port, sem er 21.
Þegar þú ert búin að stilla þessar skjámyndir rétt, ert tengd Internetinu (gegnum einhverja tölvu, mótald og notendanafn) þá ýtirðu á OK á fyrstu valmynd.  Ef guð lofar nærðu þá sambandi við Linuxann Bjarnþórs!

Valmyndin sem þá kemur upp er þessari lík:

 
Í Remote-hlutanum eiga að sjást nokkur skráasöfn og skrár ef þú ert tengd Linuxvélinni,
þ.á.m. public_html.  Inn í það átt þú að moka þínum skrám.  (Þú opnar það með því að tvísmella á það, alveg eins og í öðrum forritum.)  Vinstra megin sérðu hins vegar hvað er á lókal-tölvunni sem þú ert að vinna á.  Þú finnur svo skrárnar sem þú ætlar að senda, á lókal-tölvunni eða á disklingi (A-drifi), ert með public_html opið hinum megin og mokar á milli með því að ýta á örvatakkann á miðri skjámynd.