Um digital-myndavélina;
listina að moka myndum af henni yfir á tölvu.
Fyrst: Tengja USB-snúru í myndavél og kveikja á myndavél.
Passa að myndavélin sé stillt á Connect.Svo: Stinga USB-tenginu (á hinum enda snúrunnar) í USB-innstungu aftan á turni tölvunnar (K-6) (merkt með leiðslu milli punkta )
Þá: breytist myndavélin í sérstakt sérstakt drif.
Maður fer svo í START-Programs-Windows Explorer og finnur KODAK-drifið. Það er eins og hvert annað drif og auðveldast að moka öllu af því inn í eitthvert skráasafn þar sem á að vista myndirnar.
Þegar búið er að koma öllum myndum fyrir í skráasafni (og jafnvel öðru skráasafni til vara) og prófa að þær séu sannanlega í þessu skráasafni, þá á að stroka út af minnisspjaldi myndavélarinnar áður en henni er skilað niður á bókasafn. Það gerir maður bara í Windows Explorer eins og á hverju öðru drifi.