Námskeið fyrir starfsmenn FVA
5. kennslustund
17. febrúar 2000 kl. 16.30 og 24. febrúar kl. 16.30
© Harpa Hreinsdóttir
 
 

Að skanna inn myndir
og laga ljósmyndir í Paint Shop Pro


Í þessum tveimur kennslustundum geri ég ráð fyrir að renna í gegnum Paint Shop Pro hlutann, á 10 mínútum eða svo, en fólk æfi sig svo að skanna eigin myndir og floga í þeim.  Þess vegna er æskilegt að menn skipti sér á þessa tvo tíma (17. eða 24. febrúar).  Fólk er beðið að hafa með sér ljósmynd, t.d. gamlar myndir sem veitti ekki af að laga (krumpaðar svarthvítar og svoleiðis).  Svo er náttúrulega áfram hægt að vera P í þessu námskeiði ;-)
1.  Tiltölulega einfalt mál er að nota nýja skannann, sem er tengdur við tölvu K6 í fyrrum deildarstjóraálmu.  Ég hef límt blað með leiðbeiningum á lok skannans, auk þess sem fjölritað blað fylgir þessum leiðbeiningum (var einnig dreift í 3. kennslustund).

2Athugið að stilla í hve hárri upplausn á að skanna.  Sé meiningin að prenta út myndina (og komast sem næst ljósmyndagæðum) borgar sig að hafa upplausnina háa.  Algengt er að bleksprautuprentarar geti prentað í allt að 600 dpi (punktar á tommu) en 300 dpi er venjulegasta stilling.  Því hærri upplausn - því skýrari mynd.  Ef maður skannar hins vegar mynd til að nota á vefsíðu er 72 dpi alveg nóg.

3.  Það borgar sig að skanna í þeirri stærð sem maður ætlar að hafa myndina  (sjá sentimetramál á skannavalmynd) - a.m.k. alls ekki minni en maður ætlar að hafa hana.    Sé myndin samt sem áður ekki í réttri stærð má nota Paint Shop Pro til að minnka hana (Image - Resize):
 
Athugið að í þessari valmynd er líka hægt að stilla raunverulega stærð myndar, þ.e. stærð í útprentun.  (Actual/ Print Size).  Ef ég eyk upplausnina þá minnkar myndin að sama skapi (í rauninni "þjappast" litapunktarnir meira því hærri sem upplausnin er).  Almennt er miklu betra að stilla stærð og upplausn í skönnuninni sjálfri heldur en eftir á. 

4.  Þegar búið er að skanna myndina og stærðin er í lagi er oft gott að "teygja aðeins á litunum" (ekki spurja mig hvað þetta þýðir - en það virkar!).  Það er gert þannig:
 
 
Farið er í Colors - Adjust - Gamma Correction.  Þá kemur þessi valmynd upp.  Oftast er fínt að stilla á svona 1.20 leiðréttingu, sem lýsir myndina eilítið og lagar litina.  Annars prófar maður sig bara áfram!  Svo er að sjálfsögðu ýtt á OK til að staðfesta valið.

5.  Fleiri valmyndir bjóðast innan Colors - Adjust, t.d. að lýsa eða dekkja o.s.fr., en best er að hver og einn prófi sig áfram með þær á eigin vegum ;-)

6.  Verkfærin sem þið hafið þegar lært að nota geta komið sér vel, t.d. pensillinn til að eyða rauðum augum (lita einfaldlega ofan í þetta rauða ...) en nú verða kynnt tvö ný verkfæri sem einnig er gott  að nota:
klónpenslillinn og  kámverkfærið (smudge).
Bæði þessi verkfæri eru stillt með mikilvæga takkanum.
 
 

Klónpenslillinn 

Þessi pensill virkar þannig að hann afritar hluta af mynd og litar síðan afritið ofan í aðra mynd eða annan stað á hinni myndinni.  Þegar afrita á mynd er klónpensillinn valinn og síðan er Shift takka haldið niðri meðan stillt er með músarbendli hvaða stað af myndinni á að afrita.  Hægt er að nota þetta til að fíflast en líka til að laga myndir. (Athugið að gott er að hafa myndirnar á Paint Shop Pro formi meðan unnið er með þær en enda svo á að breyta myndinni í .gif eða .jpg).

Dæmi:  (Athugið að á vefsíðunni minni - Heimasíða Hörpu - Upplýsingatækni - 5. kennslustund - er hægt að
ýta á litlu myndirnar og sjá myndirnar í þeirri stærð sem ég vinn í, í Paint Shop Pro.)
 

Máni

Kalli

Mánikalli?

Þarna stillti ég klónpensilinn (með mikilvæga takkanum) á 73 pixela breidd, hringlaga (round) og hafði gagnsæi (Opacity) stillt á 67 en þéttleika/þakningu? (Density) stillt á 100.  Svo hafði ég myndina af Mána og myndina af Kalla hlið við hlið og klónaði hluta af Kalla yfir á Mána.

Flestir hafa gaman að svona fíflagangi en það er líka hægt að nota klónpensilinn til annarra og "alvarlegri" nota.  Setjum svo að ég vilji almennilega mynd af unglingnum Mána, án unglingabóla!  Þá get ég klónað bólulausa hluta af andlitinu og afritað yfir bólurnar.  Svona:

Þarna stillti ég klónpenslilinn á 13 pixela stærð, því ég var að vinna með frekar smáa hluta af andliti Mána.

Kámpenslillinn

Enn er Máni með leiðinlegan fitugljáa á enni og höku, og fílapensla, ef grannt er skoðað.  Því "káma" ég enni Mána svolítið, eða dreifi úr gláalausa hlutanum, með kámpenslinum  sem ég stilli á Smudge.  Ég prófa mig áfram, fyrst með lítilli stillingu og svo með hærri stillingu; Minnka gljáa, eyði fílapenslum og litlum fæðingarblettum.  Þetta er í rauninni ekki ósvipað því að setja á sig meik! Árangurinn:






Sjá má Mána fyrir og eftir snyrtingu á vefsíðu.
Þannig er hægt að snyrta ljósmyndir til eftir á.  Dröfn hefur t.d. reynslu af því að framlengja parket á mynd, með klónpenslinum!
                                                Gangi ykkur vel!