Hvernig má gera hluta af mynd gagnsæjan?

 
Ég fór á heimasíðu JASC (fyrirtækisins sem framleiðir Paint Shop Pro) og skoðaði FAQ (Frequently Asked Questions).  Þar var m.a. fjallað um gagnsæi mynda og ég snaraði hluta af svarinu, sem fylgir hér á eftir.  Heimasíða JASC er á http://www.jasc.com.

Athugaðu að einungis er hægt að gera 256-lita myndir gagnsæjar.  Fyrst þarftu því e.t.v. að fækka litum niður í 256 liti (Colors - Decrease Color Depth).

Næst velurðu Colors - Set Palette Transparency.  Í þeirri valmynd er um 3 kosti að velja:
1.  None (enginn litur gagnsær)
2. Set the transparency to the background color (af litaboxunum/litamiðunum til hægri á skjánum er efri miðinn forgrunnslitur en hinn neðri bakrunnslitur).
3.  Index color (númer litarins, sem þú vilt gera gagnsæjan, á litaspjaldi/palettu.  Hægt er að færa músarbendil yfir á þann lit á myndinni sem þú vilt að verði gagnsær og ýta á OK, þegar þú hefur hakað við Index color á þessari valmynd).
 

Nú geturðu séð gagnsæja litinn (sem köflóttan ) ef þú ferð í Colors  og hakar við View Palette Transparency. (Þú þarft svo að taka hakið aftur af).

Í Paint Shop Pro 5 verður oft  að gæta þess að vista myndina sem GIF 89.  Í sumum útgáfum af PSP 5 eru tvenns konar Gif-form, þ.e. 
CompuServe GIF *(*.gif) og CompuServe Graphics Interchange (*.gif)

 
Einungis síðarnefnda formið vistar mynd með gagnsæjan hluta.