3. febrúar 2000, kl. 16.30
4. kennslustund
2. verkefni

Fríkaðir takkar
með skugga og þrívíddaráferð
í Paint Shop Pro


 
Hægt er að teikna sína eigin takka og láta þá líta þokkalega út.  Hér verður sýnt eitt dæmi um slíkt en fólki er bent á að prófa sig endilega áfram með hvað sem því dettur í hug!

1.  Ég fer í File - New og bý til mynd með hvítum bakgrunni, í 16,7 milljón litum.  Ég hafði myndina 400 x 200 pixel til að hafa svolítið pláss fyrir takkann sem ég ætla að teikna á myndina.

2.  Svo valdi ég bláan forgrunnslit og dökkbláan bakgrunnslit.  Teiknaði síðan ferhyrndan takka á myndina, með lögunarverkfærinu, sem er er á verkfæraslá til vinstri:  .  Verkfærið er stillt með mikilvæga takkanum efst:   en þar stillti ég á ferhyrning, með tveggja pixela rönd:       

3.  Takkinn lítur nú svona út:  

4.  Nú vel ég aftur lögunartakkann, , en í þetta sinn stilli ég hann (með mikilvæga takkanum: ) á Ellipsu, í stað ferhyrnings.  Síðan teikna ég ellipsur ofan í ferhyrninginn einhvern veginn þannig:

5.  Nú stroka ég út óþarfa strik.  Auðveldast finnst mér að velja hvítt sem forgrunnslit og nota síðan pensilinn:  til að lita hvítt yfir þau strik sem ég vil að hverfi. Nota stækkunargler til að sjá almennilega hvað ég er að gera. Myndin á að verða svona:

6.  Næst lita ég myndhlutana bláa með málningarfötunni.  Þá er myndin orðin svona:

7.  Nú vel ég alla bláa hluta með töfrastafnum : .  Með því að halda niðri Shift-takkanum get ég valið marga myndhluta með töfrastafnum í einu.

8.  Ég vel nú skugga á myndina, með Image-Effects-Drop Shadow.  Skuggann hef ég frekar stóran, 9 pixel lóðrétt og 6 lárétt, en áður var ég búin að velja dökkblátt sem bakgrunnslit (en skugginn verður í bakgrunnslit).

9.  Áfram hef ég bláu myndina valda og fer nú í Image - Plug-in filters - Eye Candy og vel eftirfarandi stillingar (bara út í loftið ;-):
 
Og takkinn lítur svona út:

10.  Nú afvel ég bláa takkann (Selections-Select none) og skrifa á hann með hvítu letri ... vel síðan skugga á letrið (dökkgrár bakgrunnslitur).  Fer í Selections og vel Select none.

11.  Með snörunni, á tækjastiku til vinstri : , vel ég dálítið svæði í kringum letrið á takkanum, svona:

12.  Svo fer ég í Image - Plug-in filters - Eye Candy - og vel Inner Bevel.  Ég stilli þetta einhvern veginn, t.d. svona:

13.  Með snörunni vel ég líka litlu bútana af takkanum og misþyrmi þeim í Inner Bevel valmyndinni.  Takkinn minn endar svona: