3. febrúar 2000, kl. 16.30
4. kennslustund
1. verkefni

Letur og takkar
með skugga og þrívíddaráferð
í Paint Shop Pro


 
1.  Gerðu nýja mynd með hvítum bakgrunni (File-New), góð stærð er 400 pixel á breidd og 200 pixel á hæð.  Myndin þarf að vera í 16,7 milljón litum.

2.  Veldu einhvern skæran forgrunnslit og dökkan bakgrunnslit (ég valdi rautt og brúnt) af litaspjaldi til hægri.

3.  Skrifaðu eitthvað spaklegt á myndina, með 40 punkta letri eða hærra.  (Ég skrifaði Harpa, með Arioso letri, 72 punkta, feit- og skáletrað.):   

4Gættu þess að hafa letrið valið áfram (þ.e. ekki velja það af - letrið á að vera umkringt titrandi punktalínum).  Farðu nú í Image - Effects - Drop Shadow:

Mikilvægast hérna er að stilla hve stór skugginn á að vera.  Ég nota hér lítinn skugga, hef stillt á 2 pixel bæði lárétt og lóðrétt.  Annars er best að prófa sig áfram því maður sér áhrifin jafnóðum í litla glugganum hægri.  (Þar sem köflóttur bakgrunnur táknar gagnsæjan lit.)

5.  Ef ég vil skoða árangurinn á þessu stigi, fer ég í Selections, vel Select none og sé letrið.  Ef ég vil gera meira við letrið tek ég skipunina Select none aftur (fer í Edit og segi Undo) og held áfram með letrið valið (titrandi punktalínur).

6.  Nú fer ég aftur í Image valmyndina og í þetta sinn vel ég Plug-in Filters - Eye Candy - Outer Bevel (Því miður veit ég ekki hvað bevel þýðir!)  En þá kemur upp valmynd sem ég get stillt dálítið:
 
Satt best að segja skil ég lítið í valmyndinni! En auðvelt er að prófa sig áfram og sjá jafnóðum áhrifin.  Þegar maður er ánægður er ýtt á litla v-ið efst til hægri, til að staðfesta valið.  

Ég valdi mikinn skugga (Shadow Depth) og mikinn glampa (Highlight Brightness).  Ljósið á að falla á letrið að ofan frá vinstri, en það er stillt með því að snúa ljóskúlunni (Lighting).  Svo valdi ég "Slightly Rounded" í rennilásnum fyrir ofan myndina.  Annars mæli ég bara með því að floga í stillingum þar til maður finnur eitthvað sem manni hugnast!

Svo ýtti ég á .

7.  Núna lítur letrið mitt svona út:  
8.  Nú vil ég hafa letrið á takka og því klippi ég það út úr hvítu myndinni, í hæfilega stóran takka, með valferningnum af tækjastiku til vinstri (þessum:  ).  Þegar klipptur/valinn hefur verið hæfilega stór takki, fer ég í Edit, vel Copy, fer aftur í Edit og vel Paste As new image. Þar með er ég komin með litla mynd þar sem letrið er aðalatriði.

9.  Nú fer ég í Image, vel Effects og vel Buttonize.  Þá kemur valmynd sem ég get stillt að vild:
 
Ég get flogað að vild í stillingum og séð árangurinn jafnóðum.  Prófið endilega!

En hér valdi ég hálfgagnsæja brún á takkann (Transparent Edge), stillti skuggann á brúninni við hæð og breidd, valdi 75 í hversu vel skugginn á að þekja (Opacity) og sagði svo OK, til að staðfesta.  Nú er takkinn minn tilbúinn: