27. janúar 2000
3. kennslustund
kl. 16.30.

Krosssaumsforritið Win-Stitch
(og smávegis um skönnun mynda)


 
Fyrst er rétt að taka það fram að ég er enginn sérfræðingur í þessu forriti en mun reyna að kenna ykkur það sem ég kann og þið getið þá lært frekar á forritið sjálf.

1.  Að sækja forritið Win-Stitch af Internetinu/Vefnum

Forritið Win-Stitch er víða að finna, enda fær það mjög góða dóma.  Það liggur beinast við að fara á heimasíðu forritsins, sem er á http://www.win-stitch.com og velja Download af tökkum vinstra megin á síðunni.  Á þessari síðu er líka hægt að lesa ýmislegt um forritið og sjá sýnishorn verka sem unnin eru í því.

Einnig er hægt að fara í stór hugbúnaðarsöfn, á við ZDNet, á http://www.zdnet.com/downloads/hotfiles/adulted.html, og velja þar efnisflokkinn Home &  Education í listanum til vinstri.

Svo er náttúrulega hægt að gefa upp leitarorðið Win-Stitch á leitarvél.

Forritið heitir wst64e.exe.  Það er 2,838 Kb og keyrir undir Windows 95, 98 eða NT.  Forritinu er pakkað, sem þýðir að "pakka" verður skránni wst64e.exe "upp".  Yfirleitt er eitthvert "upppökkunarforrit" í sett upp í tölvunni (oft Winzip) og yfirleitt er nóg að tvísmella á skrána, í Windows Explorer, til þess að allt gangi sjálfkrafa fyrir sig.

2.  Ending forritsins (demo-útgáfunnar)

Sýnishornaútgáfan (demo-útgáfan) er einungis til prufu í 15 daga.  Hægt er að vista 20 sinnum í forritinu.  Nú hefur komið í ljós að sýnisútgáfan (heima hjá mér) rennur ekki fullkomlega út eftir 15 daga.  Hún virðist útrunnin, en ef maður fer á Register og segir síðan "Cancel", þá segir forritið "Try more Demo" og virkar áfram.  Hins vegar er ekki hægt að vista eftir að 15 dagar hafa runnið út (en áfram hægt að prenta út úr forritinu).


 


3.  Forritið og nokkrar skipanir þess

Ath.  Meðan 15 daga reynslutíminn stóð yfir gat ég bara gert munstur úr myndum sem voru á .bmp formi eða .tif.  Ég þurfti því alltaf að fara í Paint Shop Pro, opna myndina þar og vista hana aftur sem .bmp mynd (bitmap-mynd).  En núna, eftir að 15 daga reynslutíminn er runninn út, get ég opnað .jpg, .gif og margar fleiri gerðir mynda.

Upphafsskjámyndin lítur svona út:

Þarna er hakað við Start Designing en alveg eins er hægt að byrja á einhverri mynd sem maður ætlar að búa munstur úr, Start with a picture.

Picture - hluti forritsins;

Setjum svo að valið hafi verið Start Designing.  Sé þá smellt á Picture, á valmyndaslá, kemur upp þessi mynd:

Þarna fer maður í File og velur Open, opnar síðan þá mynd sem maður hyggst vinna með.  (Ég mæli með því að fólk æfi sig á einföldum, litlum myndum fyrst, því forritið er stundum ansi lengi að vinna með stórar myndir í mörgum litum.)

Hugsanlegt er að myndin þín sé í mjög mörgum litum og þá komi upp þessi miði á skjáinn:

Segðu bara OK við þessu og þá birtist:
 
 
Þarna ferðu í Number og Colors After Reduction og lækkar einfaldlega töluna.  Ef þú vilt halda myndinni í sem flestum litum þá segirðu strax OK við 256 litum.

Þú getur möndlað aðeins meira við myndina á þessu stigi, t.d. minnkað hana, með því að fara í Edit (enn í Picture-hlutanum) og velja Resize.  Þá kemur þetta valblað upp:
 
 
Þarna geturðu minnkað breidd og hæð myndarinnar, með því að nota litlu örvatakkana - sem er seinlegt - eða skrifa einfaldlega inn í reitina.  Þú getur stillt málin á cm ef þér finnst það þægilegra (og ef einhver er hugfangin af tommum má náttúrulega stilla á þær).

 
 
Að lokum ferðu í File og velur Convert to stitch chart (= breyta mynd í krosssaumsmunstur).  Þá lokast Picture-hluti forritsins, sem þú hefur verið að vinna í, og aðalhlutinn opnast.  Myndin ætti þá að birtast sem munstur þar.  Nú ættirðu að geta vistað munstrið (í File - Save As)  og prentað út, ef allt er með felldu.  Ef ekki er rétt að stilla forritið betur, í aðalhluta þess, og fara svo aftur í Picture-hlutann, opna myndina aftur o.s.fr.

Aðalhluti forritsins;

Ég kann ekkert sérstaklega að nota aragrúann af táknum sem blasir við á tækjastikunni.  En ég kann soldið að stilla forritið af valmyndaslánni, þannig:
 
 
Opnuð er Options (=Kostir) valmyndin á valmyndaslá.  Ágætt er að hafa hakað við þá  möguleika sem þarna eru sýndir og kannski fleiri möguleika.  

Canvas - stillir hvernig stramma eða java maður vill nota
Center settings - stillir hvar miðjan á munstrinu á að vera (ef maður er með sérþarfir í þá veru)

Preferences opnar aðra mynd, sem lítur svona út:

Þetta er aðalstillimyndin!  Litlu valblöðin efst á henni eru mikilvæg og hér á eftir verður gerð grein fyrir þeim.


 
 
Hér hef ég opnað View valblaðið.  Þarna get ég stillt hvernig ég sé munstrið í myndinni sem ég er að vinna með.  Ég hef stillt á Grid (=grind), þ.e. ég vil sjá grind á ákveðinna spora fresti svo ég eigi auðveldara með að telja út.  Ég hef stillt á Panama-stramma.  Loks hef ég valið að ég vilji sjá tákn (Symbol) í munstrinu, en ekki saumsporin sjálf (Stitch).

Þegar ég er ánægð með stillinguna ýti ég á Apply (=nota) og svo á OK til að staðfesta.  


 
Í þessari valmynd (Grid) stilli ég munsturblaðið og grindina.  Í Grid Size stilli ég stærðina á hverri rúðu á munsturblaðinu.  Því hærri tala sem er þarna, því stærri verður hver rúða og þá að sama skapi auðveldara að sjá munsturtáknin (en hins vegar tekur munstrið þá fleiri blöð í útprentun).

Í Frequency stilli ég á hve margra rúðu fresti á að koma grind.  Mér finnst sjálfri ágætt að hafa 10 spor á kant í hverri einingu í grindinni.

Loks má nefna að í WMF valblaðinu stillir maður hver mikil litaupplausn á að vera á útprentuðu munstri.  Því hærri litaupplausn því skýrara munstur, en það er hins vegar misjafnt eftir prenturum hve háa upplausn þeir ráða við.


 


4.  Dæmi um vinnu með einfalda mynd í Win-Stitch
Tökum einfalt dæmi:  Myndina af húsinu sem þið lærðuð að lita í síðasta tíma.  Myndin er svona:  
E.t.v. þarf ég að breyta þessari mynd í .bmp (sjá upphaf umfjöllunar um forritið) og geri það þá í Paint Shop Pro.

1.  Ég opna Win-Stitch, fer í Picture-hlutann og opna myndina af húsinu (sem er inni á K://abba/timi3/ og heitir þar bt_home1.bmp)

2.  Í Picture hlutanum fer ég í File og vel Convert to stitch chart.  Þá opnast aftur aðalhluti forritsins og ég sé myndina sem munstur, svona:

3.  Nú langar mig að vita hvernig myndin lítur út saumuð.  Þá fer ég í View, á valmyndastiku, og vel Preview.  Nú saumar forritið undrafljótt fyrir mig þessa litlu mynd!  Hún lítur svona út saumuð (sést í endann á strammanum):

4.  Nú vil ég sjá hvernig myndin lítur úr prentuð.  Þá fer ég í File og vel Print Preview.  Þá kemur upp svona valmynd:

Ef ég fer í Material Table Options, sé ég að munstrið gerir ráð fyrir 5 litum, í DMC garni.  Ég get líka sett spássíur inn á munsturblaðið (þ.e. gert ráð fyrir aukastramma í kringum myndina og gefið upp senitmetramálin á honum.  Þá reiknar forritið með þessum aukastramma þegar það gefur mér upp stærðina á strammanum sem ég þarf að kaupa.  Ég get sosum líka bætt þessum aukastramma við sjálf, í huganum ;-)

Ef ég ýti á Page, neðst á valblaðinu, get ég hakað við að blaðsíðutöl birtist í útprentun á munstrinu.  Það er góður kostur ef um er að ræða stórt og flókið munstur, sem tekur margar síður.

Ef allt er eins og ég vil þá fer ég í File og prenta út munstrið (með Print).  Munstrinu fylgir útskýring á litatáknum og númer á DMC-litunum (svokölluðu "Árórugarni"?).  Einnig fylgja upplýsingar um stærð strammans sem myndin þekur og hve mörg spor eru á hverja tommu (hlýtur að vera hægt að stilla á sentimetra þótt ég hafi ekki fundið það út enn þá, heldur umreiknað í huganum í spor á sentimetra).

Aðrir staðir fyrir hannyrðafólk

Fyrir þá sem vilja skoða fleiri tölvutæka möguleika í krosssaumi (og öðrum útsaumi) mæli ég með þessum síðum:

Cross Stitch Corner, á http://www.geocities.com/~annabella/stitchlinks.html

Á þessari síðu eru margar góðar krækjur (linkar) í allt sem tengist krossaumi.  Höfundur síðunnar fer nokkrum orðum um hverja krækju svo maður er ekki að vafra um vefinn út í bláinn, heldur veit hvað síðurnar, sem hún krækir í, innihalda.  Hún vísar bæði í munstursíður o.þ.h. og nokkur krosssaumsforrit.
 
Counted Cross Stitch, Needlework, and Stitchery Page, á http://www.dnai.com/~kdyer/
Þessi síða hefur víst verið á vefnum síðan í árdaga (eða 1994) og er stöðugt bætt og uppfærð.  Þarna eru efnisflokkaðar krækjur sem margt virðist á að græða.  Efnisflokkarnir eru Designs (=Hönnun) þar sem m.a. er vísað í ókeypis munstur;  How To, þar sem vísað er í kennslu- og upplýsingar sem varða saum;  Supplies (=Birgðir) þar sem vísað er í verslanir og heildsala með saumadót;  In Motion (= Virkir?), sem vísar í alls konar samtök og klúbba áhugafólks um sauma;  Media (= Miðlar) sem vísar í hugbúnað, myndbönd, tímarit o.fl. og loks Much More, sem vísar m.a. í þjóðlegan og fornan saum (t.d. harðangursaum.).
 
Að lokum:

Smá sýning á hvernig ég hef búið til munstur eftir ljósmynd.  Einnig afhentar leiðbeiningar um skannann, ef einhver vill byrja strax að skanna inn eigin myndir til að vinna með í Paint Shop Pro eða Win-Stitch.  (Seinna verður farið betur yfir skannann og pappírstegundir (+ blek) sem henta til útprentunar á ljósmyndum.)