2. kennslustund
20. janúar 2000
© Harpa HreinsdóttirVerkefni 2: Að eyða myndhlutum úr ljósmynd
Á K:/abba/timi2/ er mynd sem heitir vifill1.jgp. Hún er tekin í jólafríinu á digital-myndavél skólans og sýnir Vífil Atlason, 8 ára, mjög hugsandi á svip. Nú ætla ég að laga myndina þannig að Vífill sjáist einn á henni, þ.e. losna við jólaklukkustreng, viskastykki o.fl., sem mér þykir lýta myndina.
1. Ég opna Paint Shop Pro, finn myndina vifill1.jpg og opna (File - Open)
2. Ég byrja á að minnka myndina, því hún er ógurlega stór. En nú vil ég halda öllum gæðum myndarinnar, því ekki á hún að fara á vefsíðu og má því vera feikistór, í bætum talið, svo ég minnka hana bara með stækkunarglerinu, til að auðvelda mér að vinna með myndina: Minnka hana í hlutföllin 1:3. Stækkunarglerið breytir ekki myndinni raunverulega, heldur hefur einungis áhrif á hvernig myndin birtist á vinnuborðinu/skjáborðinu.
3. Til öryggis athuga ég hvort myndin er ekki í fullri litadýpt (Colors - Increase Color Depth) og sé að svo er. (Ef ekki myndi ég auka litadýpt upp í 16 milljón liti).
4. Ég byrja á að stilla bakgrunnslit á hvítt, á litaspjaldi (til hægri) og nota svo verkfærið snöru (lasso) til að klippa gróft í burtu það sem er lengst frá Vífli. Snaran er á tækjastiku til vinstri og lítur svona út:
Með henni er hægt að velja óreglulega búta úr mynd, síðan fer maður í Edit og velur Cut (klippa).
5. Nú klippi ég smávegis svona hist og her, fer síðan í Selections og vel Select none og nota svo grófan pensil
til að lita hornin á myndinni hvít. (Ath. Ekki er hægt að nota neina pensla þegar búið er að velja myndhluta með lasso, töfrastaf eða öðrum slíkum verkfærum. Ef þið lendið einhvern tímann í þeim vandræðum að verkfæri virki ekki, prófið þá að "afvelja", þ.e. fara í Selections - Select none, og gáið hvort það er ekki skýringin.)
6. Nú reyni ég að klippa meira frá Vífli með töfrastafnum
. Töfrastafurinn er mjög mikilvægt verkfæri, en eðli hans er að velja myndhluta sem eru í sama eða svipuðum lit. Töfrastafurinn er stilltur með mikilvæga takkanum
og það sem skiptir mestu máli í stillingunni er Tolerance (sem ég kýs hér að kalla þröskuld). Best er að prófa sig áfram og finna hve hár litaþröskuldurinn (Tolerance) á að vera. Gott sýnist að byrja með stillinguna 30.
7. Á stillingunni 30 klippi ég fyrst það sem ég get, án þess að skerða Vífil sjálfan, með því að fara í Edit og velja Cut. (Ef ég geri mistök get ég alltaf farið í Edit og valið Undo). Síðan lækka ég þröskuldinn á töfrastafnum og reyni að klippa meira. Þannig prófa ég mig áfram. Þetta er þolinmæðisverk! Á þessu stigi vista ég öðru hvoru - undir nýju nafni - til að glata ekki vinnunni (ef t.d. rafmagnið tæki upp á að fara eða eitthvað kæmi upp á ...)
8. Misjafnt er hversu vel maður getur hreinsað úr mynd með töfrastafnum. Oftast þarf að enda á því að hreinsa með pensli, pixel fyrir pixel. Nú tek ég pensilinn
, stækka myndina með stækkunarglerinu (geri hana flennistóra) og lita það sem eftir er af umhverfi Vífils hvítt. (Þá þarf forgrunnslitur auðvitað að vera hvítur). Ég nota smæstu stillingu á oddi næst Vífli, en stærri odda þegar fjær dregur (stillt með mikilvæga takkanum - Brush Tip). (Ég get líka reyna að nota málningarfötuna á þau svæði sem ekki eru tengd Vífli en verð þá að hafa þröskuldinn - Tolerance - mjög lágan.). Svo passa ég að velja Select none svo pensillinn virki örugglega. Þetta er líka þolinmæðisverk!
9. Nú hef ég dútlað við að hreinsa Vífil þokkalega en enn mætti betur gera. Vandasamt er að hreinsa þar sem bakgrunnurinn er nánast í sama lit og t.d. hárið á Vífli. Auk þess er krakkinn með tvö hvirfla og síúfinn! En hreinsaða myndin heitir vifill2.jpg.
10. Næst ætla ég að klippa Vífill sjálfan út úr myndinni. Það er lítið mál þegar bakgrunnurinn er einlitur. Ég tek töfrastafinn og ýti á hvíta bakgrunninn. Þá er hvíti bakgrunnurinn valinn, en ég ætla ekki að klippa hann út heldur Vífil. Því fer ég í Selections og vel Invert (= Umsnúningur vals). Þá snýst valið við, þ.e. Vífill velst en ekki það sem var utan um hann. Ég fer í Edit og vel Copy. Nú helst afrit af Vífli í minni forritsins.
11. Svo skemmtilega vill til að ég á forrit sem m.a. fylgja nokkrir rammar. Hér er einn, sem heitir Text_back09.bmp. Ég opna hann í Paint Shop Pro. Nú sé ég í hendi mér að ramminn hlýtur að vera of lítill (640 x 480) , svo annað hvort verð ég að minnka Vífil eða stækka rammann. Ég byrja á að stækka rammann í svona 1000 pixela breidd. Af því ramminn er bitmap-mynd (.bmp) en Vífill er á jpg-formi þá vista ég rammann einu sinni sem jpg - undir nafninu rammi.jpg (og passa að velja þá jpg eða jpeg í Save as Type !).
12. Svo fer ég í Edit - Paste - As New Selection, til að líma Vífill ofan í rammann. Og kemst að því að það gengur ekki!
Ástæðan er sú að ramminn er ekki í sömu litadýpt og Vífill. Ég laga það umsvifalaust með því að fara í Colors - Increase Color Depth og vel 16 milljón liti á rammann. Reyni svo aftur, með Edit - Paste - Paste as New Selection.13. Nú sé ég að betra væri að klippa Vífil sjálfan eitthvað til: Fer á hreinsuðu myndina af Vífli (vifill2.jpg), byrja á að afvelja allt (Selections - Select none) og vel hluta af Vífli með valferningnum
. Verkfærið stilli ég með mikilvæga takkanum, á ferning, þ.e. Square. Þegar ég hef valið hluta af Vífli, sem ég tel í heppilegri stærð fyrir rammann, fer ég í Edit - Copy.
14. Nú fer ég í Edit - Paste - As New Image. Nú get ég alveg eins lokað gömlu myndinni af Vífli (vifill2.jpg) því ég ætla ekki að nota hana meira í bili. Myndhlutinn sem ég valdi með valferningnum er nú sérstök mynd.
15. Ég vel hvíta hlutann á nýju myndinni með töfrastafnum, fer í Selections og vel Invert, fer síðan í Edit og vel Copy (alveg eins og ég gerði í skrefi 10.).
16. Nú fer ég á rammann (rammi.jpg), fer í Edit, vel Paste - As New Selection. Svo kem ég Víflinum fyrir í rammanum, fer svo í Selections og vel Select none. Nú er Vífill kominn í rammann en einhverjar klessur hafa kannski fylgt (ef ég hef ekki litað bakgrunninn alveg allan hvítan) sem ég snyrti með því að velja lit úr rammanum (með dropateljara) og mála yfir með penslinum.
17. Ég vista þessa mynd undir nafninu vifill_i_ramma.jpg.
18. Svo get ég skrifað á myndina ef ég vil, sbr. fyrstu kennslustund. Dæmi um það er vifill_i_ramma2.jpg.
Hægt er að sjá hvernig myndin lítur út útprentuð, með því að fara í File - Print Preview.
Ég kom fyrir nokkrum römmum, inni á K:/abba/rammar/ sem þið getið notað ef þið viljið prófa ykkur áfram með eigin myndir. Til þess að sjá margar myndir í einu er best að nota Paint Shop Pro, fara í File og velja Browse (= gramsa). Veljið svo skráasafnið sem þið viljið gramsa í. Með því að tvísmella á mynd þegar verið er að gramsa opnast hún í réttri stærð. Athugið að myndirnar eru á mismunandi formum (.bmp, .jpg, .gif) og alltaf þarf að hafa myndir á sama formi og í sömu litadýpt ef afrita á eina mynd á aðra.
Æfið ykkur nú!