© Harpa HreinsdóttirÚtskýringar á nokkrum tökkum í Paint Shop Pro (athugið að forritið býður upp á ágætis hjálparsíður):
verkfæri
![]()
Mikilvægur
takkiÞessi mikilvægi eru stillingar fyrir alla pensla og margt fleira. Þegar þið hafið valið verkfæri af verkfæraslá til vinstri þá er gott að stilla verkfærin með því að ýta svo á þennan takka (t.d. hvað þið viljið breiðan pensil o.s.fr.)
Þessi slá er venjulega lóðrétt og lengst til vinstri á skjánum. Hér verður gerð örstutt grein fyrir þeim verkfærum sem líklegt er að þið þurfið að nota:
2: Stækkunarglerið minnkar eða stækkar fyrir ykkur myndir rétt meðan þið eruð að vinna með þær. Veljið stækkunarglerið og ýtið með venjulega músarbendlinum á myndina og hún stækkar. Ýtið með hægri músarbendli á mynd og hún minnskar.
6: Ferningurinn úr brotalínum velur svæði á mynd, ef þið ætlið t.d. að búa til nýja mynd úr myndbút (klippa út). Með stillingartakkanum (sjá fyrstu mynd) veljið þið ferning, hring, ellipsu eða annað.
7: Snaran (Lassó) er til að teikna fríhendis um myndbút til að velja hann.
8: Töfrastafurinn velur myndhluta eftir litum. Hann notar maður ef maður ætlar að stroka út bakgrunn eða einhvern hlut af myndinni. Stilla má næmi (tolerance) töfrastafsins af stillingartakkanum (sjá efst).
9: Dropateljarinn finnur eða greinir lit fyrir ykkur, sem sést á litavalmyndinni lengst til hægri.
10: Pensillinn er til að lita/teikna með. Pensillinn er stilltur með mikilvæga takkanum. (Sjá efst í þessum leiðbeiningum.)
11: Þetta er klón-pensillinn, sem öllum finnst svo gaman að nota. Veljið hann, ýtið einu sinni á bútinn sem þið viljið klóna og styðjið um leið á shift-takkann, farið svo á myndhlutann sem á að mála með klónuðu myndinni.
12: Þetta er verkfæri til að skipta út lit, þ.e. skipta alls staðar þar sem einn litur er fyrir yfir í annan lit.
13: Kám-verkfærið (smudge): Pensill sem kámar út og hylur þannig samskeyti.
14. Strokleður (stillið með mikilvæga takkanum efst).
15. Tubes-pensill - gleymið þessum ...
16. Spreyjar lit ...
17. Málningarfatan - hellir mismunandi gegnsæjum/ógegnsæjum lit á valið svæði. Stillt með mikilvæga takkanum!
18. Ritill - skrifar ofan í myndir (opnar sérstakt valblað fyrir letur o.þ.h.)
19. Tæki til að teikna strik - stillt með mikilvæga takkanum.
20. Tæki til að teikna ferninga, hringi o.þ.h. - stillt með mikilvæga takkanum.
Lengst til hægri á skjánum er þessi litla tækjastika. Hún sýnir hvaða liti maður notar; annars vegar forgrunnslit og hins vegar bakgrunnslit. Sé ýtt með músarbendli á annan litinn þá opnast litaspjald (paletta) og maður getur valið nýjan lit. Sé ýtt á litlu örvarnar við litafletina þá víxlast forgrunns- og bakgrunnlitur. Númerin sem standa við R G og B fyrir neðan tákna magn af rauðu, grænu og bláu (stendur fyrir Red Green Blue). Stundum er nauðsynlegt að sjá þessi númer ef maður ætlar t.d. að stilla litakóða á vefsíðu (t.a.m. á letri) í nákvæmlega sama lit og er á ákveðinni mynd. Meira um það seinna ...