© Harpa Hreinsdóttir

Starfsfólk FVA athugið

Ég hef verið ráðin til að aðstoða menn við tölvuvinnslu eina klukkustund á viku.  Hef hugsað mér að byrja á að kenna þeim sem hafa áhuga á myndvinnslu ýmiss konar.  Þetta hentar m.a. öllum þeim sem fást við vefsmíðar eða hafa hug á að vinna með myndir (t.d. búa til jólakortin næstu jól!) eða nota digital myndavél og skanna.  Ég ætla að kenna á fimmtudögum eftir fundartíma og byrja í dag, 13. janúar, kl. 16.30  í fyrrverandi deildarstjórahorni.  Kennt verður í 10 - 15 mínútur og síðan æfir fólk sig.  Kennsluefni verður lagt í möppur við tölvur í vinnuaðstöðu kennara og getur fólk því æft sig á öðrum tímum eða numið sjálft ef það vill.

Áætlun
 

13.  jan.:   Verkfæri í Paint Shop Pro útskýrð1) verkefni:  Að minnka mynd;  2) verkefni:  Að búa til einfaldan takka (svona): 

20. jan.:  Kennt að velja myndhluta með töfrastafnum. Nota pensil, málningarfötu og stækkunargler.  Verkefni:  Velja myndhluta og skipta um lit á honum. (1. verkefni, 2.verkefni)     Svona: 

27. jan.:   Vegna fjölda áskorana: Kennt að sækja forritið WinStitch (sem má nota ókeypis í 15 daga), setja það upp og nota.   Sýnt hvernig má fækka litum á tölvutækri mynd, í Paint Shop Pro, og láta svo WinStitch búa til krosssaumsmynd (munstur) úr myndinni.  Karlmenn eru hvattir til að fjölmenna ;-)

3. febrúar:  Kennt að möndla við letur í Paint Shop Pro og búa til flott letur á takka (með notkun effekta og Plug-in filters. 1) verkefni:  Búa til takka með skuggaletri (Svona: )

2) verkefni:  Búa til takka með upphleyptu letri og þrívíddaráferð (Svona: 

10. febrúar:  Kennt að klippa út myndhluta og breyta þeim t.d. í takka (svona - bútur af mér verður takki:    sem er hægt að setja letur á ... svona  ....  Kennt að nota mismunandi pensla (custom-pensla) sem grunn að myndskreytingum, t.d. þennan: 
 
 
 
 

17. febrúar:  Kennt að breyta myndum með því að nota klón-pensil og afrita þannig búta af einni mynd yfir á aðra.  Dæmi:       ÚFF!
 

24. febrúar:  Kennt að breyta myndum með því að nota Deformation og filtera.  (Ef einhver hefur áhuga).  Líka farið betur yfir palettur og kennt hvernig á að gera hluta af myndum gagnsæja.
 

Svo er ég ekki búin að ákveða lengra fram í tímann.  Hef þó áhuga á að kenna undirstöðuatriði í að nota digital myndavélina.  Einnig að skanna.  Einnig að vísa fólki á hvar er hægt að finna aukadót með Paint Shop Pro (s.s. fleiri pensla og tubes).  Ef enginn hefur áhuga á neinu af þessu þá fellur Paint Shop Pro námskeiðið niður.  Látið mig vita á hverju þið hafið áhuga.

                                                                            Harpa