JAR 113
 



Þessar leiðbeiningar miðast við algera byrjendur, þ.e. þá sem aldrei hafa gert vefsíðu áður og hafa litla reynslu af vinnu á tölvum.  Leiðbeiningarnar eru settar í eitt skjal svo auðveldara sé að prenta þær út.  Í þeim er talsvert af myndum svo þær eru lengi að hlaðast inn. Þær  skiptast í:

1.  Búa til eigið skráasafn
2.  Búa til vefsíðu í Netscape
3.  Letur og útlit texta
4.  Útlit síðu
5.  Að setja mynd á síðu
6.  Að krækja í aðra síðu.

Leiðbeiningarnar eru miðaðar við stofu TV, þ.e. tölvuver nemenda gegnt bókasafni.  Ástæða þess að ég miða leiðbeiningar við Netscape er að ég nota það forrit sjálf við gerð vefsíðna.  Mín vegna mega menn nota ritvinnsluna í Star Office en ég ræð fólki eindregið frá því að nota Word (í Microsoft Office pakkanum) til vefsíðugerðar, vegna þess að það forrit gerir ótrúlegustu gloríur þegar það breytir skjölum í vefsíður.

Skv. reynslu minni af kennslu í vefsíðnagerð eru mikilvægast að ná valdi á þessum atriðum strax í byrjun:

1.  Að búa til skráasafn (möppu) og átta sig á uppbyggingu skráasafna.
2.  Að átta sig á muninum á Netscape Composer og Netscape Communicator.
3.  Að átta sig á tilvísunum í skráasöfn ("slóð") og leiðrétta algengustu villur sem vefgerðarforrit gera.

Seinna meir er ágætt að læra dálítið um html-kóða og myndvinnslu.
 

1. Búa til eigið skráasafn

Af því við erum í stofu 5 verðið þið að búa ykkur til skráasafn/möppu (directory) þar. Hér er miðað við að þið vinnið inni í skráasafninu JAR113, sem ég er búin að búa til.  Ég tek afrit af því reglulega en til öryggis er rétt að þið vistið líka á eigin diskling.
 

a) Ýtið á START-hnappinn lengst til vinstri. Veljið (með því að smella með músarbendli) Programs og síðan Windows Explorer (neðst á valmynd).

b) Farið í "rennilásinn" efst í horninu til vinstri og finnið K-drifið. Smellið á það. Þá opnast K-drif, sem er væntanlega hlaðið drasli annarra nemenda!

c) Opnið skráasafnið JAR113.

d) Ýtið nú með hægri músarhnappi inni  í JAR113 , veljið New af valmyndinni sem þá birtist, og síðan Folder.

 e) Skrifið nafnið ykkar í gluggann og ýtið á enter/return/vendi. Ágæt regla er að forðast séríslensk tákn, hástafi og að hafa nöfn skráasafna lengri en 8 stafi (skrifa t.d. thorstei en ekki Þorsteinn, stina en ekki Stína).


Nú ætti þetta að líta svona út:


 

Efst til hægri sést að skráasafnið Jar113 er opið.  Til vinstri sést hvað er inni í því skráasafni, í þessu tilviki annað skráasafn sem heitir stina.  Ef maður tvísmellir með músinni á stina opnast það skráasafn (sem er tómt því það er nýbúið að búa það til).  Inni í því skráasafni getur Stína svo geymt allt sitt dót.  Hún getur líka búið til aðrar hirslur/önnur skráasöfn inni í stina, t.d. sérstakt skrásafn sem heitir myndir.  (Það er ágætt að flokka dótið sitt í undirskráasöfn svo það fari ekki allt á rú og stú.)

Hér fyrir neðan sést inn í skráasafn Stínu. Einnig sést að þau Nonni, Siggi og Jóna eru búin að búa til sín eigin skráasöfn inni í JAR113.  Stína er óskaplega skipulögð, eins og sjá má; flokkar öll sín gögn samviskusamlega!


 

Annað sem e.t.v. þarf að skýra á myndinni er þetta:

    Plúsinn sýnir að inni í þessu skráasafni eru einhver fleiri skráasöfn.  Plúsinn breytist í mínus þegar skráasafnið er opnað.  Ef enginn plús er (eins og við astarbref Stínu) þýðir það að engin skráasöfn eru inni í þessu skráasafni en væntanlega eru þar margar skrár/mörg skjöl.

  Þessi takki gerir kleift að hoppa upp um eitt skráasafn, í "skráasafnatrénu".  Hann flýtir fyrir ef maður er mikið að flækjast milli mismunandi skráasafna og undirskráasafna.

  Þessir takkar, sem sjást efst í horninu til hægri, þjóna eftirfarandi tilgangi:
 - þýðir að skjámynd Explorers smækkar niður í ekki neitt þótt forritið sé áfram í gangi; hægt er að komast í það af verkfæraslá neðst á skjánum (í Windows 95/98), miðmyndin þýðir að skjámyndin minnkar og þekur nú t.d. hálfan eða kvart skjá, og X takkinn lokar forritinu alveg (svo það þarf að fara aftur í START hnappinn til að ræsa það á ný).
 

2.  Búa til vefsíðu í Netscape

Fyrst er að átta sig á Netscape forritinu;

Netscape Communicator heitir forritið í heild.  Þar í eru svo forrit sem sýna vefsíður (Navigator), gefa manni kost á að lesa nota póst og ráðstefnur (Messenger), gera manni kleift að búa til vefsíður (Composer) o.fl.  Sem sagt:  Netscape Communicator er allur pakkinn!
 
 
a) Opnaðu Netscape Communicator (mynd af vita).  Byrjaðu á að fara í Edit, veljið Preferences, veljið Composer, veljið Publishing.  Passaðu að ekki sé hakað við þá tvo möguleika sem þar birtast.  (Þetta er best að gera fyrst til að krækjur (linkar) verði örugglega réttir.  Biddu Hörpu um nánari útskýringar ef þig langar að vita meira um þetta..) 
b) Farðu í File og veldu  New ->Blank Page. Þá opnast ritillinn í Netscape (heitir Netscape Composer og þú  þekkir hann á verkfæraslá á því að þar er mynd af penna.) 
c) Veldu  Save As í File og gefðu síðunni eitthvert nafn, t.d. stina.htm. Passaðu að vista hana á réttum stað (í K:\JAR113\eigið_skráasafn). Þú verður beðin um titil á síðu og velur hann sjálf, t.d. Heimasíða Stínu.
d) Smækkaðu nú Netscape Composer í bili með því að ýta á strikið _ sem er í horninu efst til hægri. Ritillinn er samt í gangi og þú sérð hann neðst á skjánum, á verkfæraslá. 

Nú er síðan þín til en aftur á móti er ekkert á henni.   Prófaðu að opna hana aftur, skrifa eitthvað á hana og vista. (Núna er allt í lagi að nota bara skipunina Save, úr File, því sú skipun vistar á sama stað og síðast var vistað.)

Skoðaðu nú síðuna  með því að opna Netscape Navigator, sem þú sérð neðst á skjánum, á verkefnaslá, með mynd af skipsstýri:

(Hér sést verkefnasláin neðst á skjánum.  Opið er skráasafnið Netið, Explorer er í gangi með skráasafnið stina opið.  Síðan er þessi síða (sem hefur titilinn Leiðbeiningar um vefsíðugerð) opin í  Navigator og einnig opin í Composer)
 

Notuð eru tvo forrit meðan á vefnaði stendur.  Þau eru  Netscape Composer     og Netscape Navigator   .  Vefsíðan er skrifuð í Netscape Composer (þessu með pennanum), vistuð og síðan skoðuð í Netscape Navigator (þessu með skipsstýrinu).  Eftir að hafa skoðað síðuna fer maður aftur í Netscape Composer, breytir og bætir, vistar aftur og skoðar aftur. 

  Í hvert sinn sem síðunni hefur verið breytt þarf að muna að ýta á reload takkann, á verkfæraslá efst  í Netscape Navigator, til að endurhlaða hana svo breytingar sjáist.  Athugaðu að breytingar sjást heldur ekki nema þær hafi verið vistaðar (í Netscape Composer). Þannig flakkar maður milli forritanna tveggja, til að skrifa og til að skoða.
 

3.  Letur og útlit texta


  1. Hér sést verkfærasláin fyrir letur í Composer.
  2. Fremsta valmynd sýnir að valið hefur verið venjulegt (normal) letur, en einnig er hægt að velja fyrirsagnir (Heading) o.fl.
  3. Næsta valmynd sýnir að stillt er á þá breidd stafa sem vefsjá notandans vill sýna.  Í þessari valmynd velur maður líka leturgerð (font).  Ágætt er að hafa í huga að velja algenga fonta/leturgerð svo mismunandi vefsjár (t.d. Netscape,  Internet Explorer, Opera) í mismunandi tölvum (t.d. PC eða Machintosh) geti sýnt síðuna rétt.  Forðist sjaldgæfa fonta!
  4. Á þriðju valmynd sést að stillt er á 12 punkta leturstærð.  Því má auðveldlega breyta.
  5. Svo sést að valinn er svartur litur á textann.  Þarna er hægt að velja mismunandi liti á hluta texta, en ef þú vilt hafa allan texta á síðunni í lit skaltu ekki nota þessa valmynd heldur velja lit á texta um leið og þú velur útlit síðu.
  6. Næstu takkar skýra sig sjálfir;  Þeir tákna feitletrun, skáletrun, undirstrikun og að hætta við eitthvað af þessu þrennu.
  7. Svo er gefinn kostur á að nota "bulletet list", þ.e. hafa punkta fyrir framan hverja efnisgrein, en síðan kemur takki til að tölusetja hverja efnisgrein, eins og hér er gert.
  8. Næstu tveir takkar eru mjög nytsamlegir.  dregur texta lengra út á vinstri spássíðu, meðan  dregur textann lengra inn á síðuna.
  9. Loks er þessi takki    fyrir skipan texta á síðu.  Akkúrat þessi mynd sem sést hér þýðir að textinn fær vinstri jöfnun en ekkert annað.  Litla örin sem sést neðst til hægri þýðir að valmynd er að baki takkanum.  Sé ýtt á litlu örina sést þetta:
  10. Þarna er hægt að velja, auk vinstri jöfnunar, miðjun á texta og hægri jöfnun.
4.  Útlit síðu

Á valmyndaslánni efst í Composer () er valmynd sem heitir Format.  Næst neðst á henni er Page Colors and Properties.  Sé Page Colors and Properties valið kemur upp svona valblað:

Af  því  velur maður síðan liti á allan texta á síðunni (Normal text), liti á krækjur (Link text, Active Link text og Followed Link text) og loks lit á síðuna sjálfa (Background).  (Einnig  er hægt að velja bakgrunnsmynd, í stað bakgrunnslitar, en út í þá sálma verður ekki farið að sinni.)  Hvað varðar litinn á krækjur þá þýðir:
Link Text = liturinn á krækjunni eins og hún sést á síðunni í fyrsta sinn
Active Link Text = liturinn á krækjunni rétt á meðan ýtt er á hana með músarbendli
Followed Link Text = liturinn á krækjunni þegar hún hefur verið "heimsótt" eða skoðuð.

5.  Að setja mynd á síðu og passa að slóð/tilvísun í skráasafn sé rétt.

Á þessari verkfæraslá sést táknið fyrir mynd (Image) .  Ef þú ætlar að hafa mynd á síðunni þinni byrjarðu á að staðsetja músarbendilinn á síðuna þar sem myndin á að koma.  Þú getur notað sömu aðferð og til að staðsetja  texta, þ.e.  og miðjar, ef myndin á að lenda á miðri síðu, o.s.fr.  Þegar staðsetningin er á hreinu ýtir þú á táknið fyrir mynd,
. Þá birtist þetta valblað:

Það eina sem þú þarft að hugsa um að sinni er að slóðin að myndinni/tilvísun í myndina sé rétt, þ.e. Image location.  Þú ýtir á takkann sem stendur á Choose File og finnur myndina í skráasafni þínu.  Þessi mynd heitir my-valm.gif og sjáðu hvað gerist þegar ég geri þetta:

Myndin my-valm.gif er nefninlega geymd í skrásafninu jar-vefsid, sem er inni í skrásafninu finnbogi, sem er inni í skráasafninu fva, sem er á F-drifinu í tölvunni minni.  Og ef ég samþykki þetta, með því að ýta á OK, og sendi síðuna svona inn á vefinn, heldurðu þá að vefurinn/internetið finni þessi skráasöfn?  Onei, þau eru nefnilega bara til í minni tölvu á mínu heimili.  Svo ég verð að laga tilvísunina.  Það geri ég einfaldlega þannig að ég stroka út allan óþarfa (með því að fara með músarbendil fyrir framan my-valm.gif og nota strok-takkann á lyklaborðinu).  Eftir stendur:

Og svo ýti ég á OK!  Þetta er náttúrulega vesen en svona rangar tilvísanir/slóðir er algengasta ástæðan fyrir því að vefsíðugerð mistekst.  Þetta finnst mér böggur í Netscape og mörgum öðrum forritum.

6.  Að krækja í aðra síðu

Setjum svo að þú sért búin að búa til tvær síður.  Önnur síðan heitir stina.htm og er heimasíða Stínu.  Hin heitir unnusti.htm og fjallar um kærastann hennar Stínu.  Þú ætlar að setja krækju (link) úr heimasíðu Stínu í síðuna um kærastann:
 
 

Heimasíða Stínu
Ég heiti bla bla og er kölluð Stína.  Ég er bla bla bla bla og bla bla bla bla bla bla bla bla bla.  Aðaláhugamál mitt og köllun í lífinu er hann Nonni, kærastinn minn!
Blabla bla bla bla bla  ...

Það fyrsta sem þú gerir er að blokka orðin sem eiga að vera krækja, t.d. hann Nonni, kærastinn minn!
Svo ferðu á þessa valmynd:

og velur .  Þá birtist þetta eyðublað:

Það eina sem þú þarft að gera er að skrifa nafnið á síðunni sem á að krækja í, í reitinn "Enter text to display for a new link".  Skrifaðu unnusti.htm og ýttu á OK.  Ef þú velur að skrifa þetta ekki beint heldur nota Choose File takkann þá lendirðu í því nákvæmlega sama og þegar myndir eru settar inn, þ.e. færð ógurlega langa skrá og verður að stroka helminginn af henni út ( sjá 5.  Að setja mynd á síðu og passa að slóð/tilvísun í skráasafn sé rétt.)

Nú ertu búin að búa til krækju úr síðunni "Heimasíða Stínu" (stina.htm) í síðuna "Unnusti minn" (unnusti.htm).  Þegar þú skoðar síðuna í  Navigator  ætti þetta að virka smurt, þannig:
 
 

Heimasíða Stínu
Ég heiti bla bla og er kölluð Stína.  Ég er bla bla bla bla og bla bla bla bla bla bla bla bla bla.  Aðaláhugamál mitt og köllun í lífinu er hann Nonni, kærastinn minn!
Blabla bla bla bla bla  ...