Að prenta glærur eða vista á öðru formi en glærusýningu
Þegar glærurnar þínar eru tilbúnar áttu ýmissa kosta völ; Þú getur geymt þær sem glærusýningu í tölvu; prentað þær út í lit eða svart hvítu eða vistað þær á einhverju öðru formi en glærur (og þar með gert glærurnar hluta að einhverju annars konar skjali/afurð).1. Að prenta út glærur
2. Að vista glærur á öðru formi
3. Að breyta glærum í vefsíður
1. Til að prenta út er best að fara í File og velja Print (eða nota flýtilyklana (Ctrl) (P). Þá kemur upp eftirfarandi valblað (sem gæti að vísu litið aðeins öðruvísi út, það fer eftir prentaranum sem tölvan er tengd við):
![]()
Þetta er nú nokkuð auðskilið valblað. Þú velur hvort þú vilt prenta út allt skjalið (sem væntanlega er einhver fjöldi glæra) eða bara tiltekinn fjölda glæra/síðna. Svo velurðu hve mörg eintök (number of copies) þú vilt prenta út. Svo er bara að ýta á OK. Ef þú ert með einhverjar séróskir um upplausn mynda, pappírsstærð o.s.fr. geturðu stillt þetta nánar með því að fara í Properties.
2. Að setja glærur inn í aðrar skrár
Þú getur flutt valda glæru eða hluta af glærum í annað forrit. Veldu File og Export. Þá kemur upp Export-valblaðið:
![]()
Þú getur valið fleiri form sem má vista glæruna á, af File type. Flest formin eru fyrir myndir og líklegast myndirðu helst nota GIF eða JPG. Síðan gætirðu sett slíka mynd inn í ritvinnsluskjal.
Hér áttu bara eftir að gefa skjalinu nafn til að vista það sem HTML, þ.e. vefsíðu. Ef þú lendir inni í röngu skráasafni, þegar valblaðið kemur upp, geturðu "hoppað upp skráatréð" með því að ýta á hnappinn í miðjunni í hnapparöðinni til hægri, þ.e. þennan:
Ef þú flytur ("exporterar") heila glæru flyst hún sem heil blaðsíða. Til þess að exportera bara ákveðinn hluta (t.d. bara eina mynd af glæru) þarftu að velja þann hluta (með því að ýta á hlutann með músarbendli), velja síðan Export (úr File) og haka við "Selection" reitinn á Export valblaðinu, áður en þú vistar (með Save).
3. Að vista glærusýningu sem röð af vefsíðum
Ef þú velur að vista glæru sem HTML (af "export"-valblaðinu sem sýnt var hér að ofan) þá býr StarImpress (glærusýningarforritið) sjálfkrafa til yfirlitsvefsíðu (efnisyfirlit) sem vísar í hverja glæru. Hver glæra er svo vistuð á vefsíðu sem JPG-mynd. [Hægt er að vinna með vefsíðurnar eftir á í StarWriter (ritvinnsluforriti Star-Office svítunnar). Þá ferðu í File, velur New og velur HTML-document.]
Þú berð þig þannig að:
Velur File
Velur Export
Velur HTML í "file type" á Export-valblaðinu.
Þá kemur upp gandálfur sem leiðir þig gegnum HTML-export:
Þetta er fyrsta valblað HTML-gandálfsins. Láttu það standa eins og það er (með merkt við New design) og ýttu á Next. Næsta valblað: Láttu það líka standa eins og það er. Hvað varðar form mynda (image format) þá borgar sig að velja JPG því stórar GIF myndir eru fullviðamiklar til að hlaðast inn á vefsíðu. Sömuleiðis er hér hakað við lága upplausn (Low resolution) mynda til að gera þær ekki of þungar í flutningi. Til vinstri geturðu valið hvort setja eigi glæruna á vefsíðu með römmum (Browser frames).
Þarna fyllirðu inn nafnið þitt (nafn höfundar glæra), netfang, veffang heimasíðu og aðrar upplýsingar sem þú vilt gefa. Þú ræður hvort þú vilt að tilkynningin "Created with StarOffice" birtist á fyrstu vefsíðu eður ei. Hér velurðu hvernig hnapparnir á vefsíðuröðinni eiga að líta út. Þessir hnappar gera notanda (skoðanda vefsíðu) kleift að hoppa milli glæra í vefsíðuröðinni. Þarna geturðu valið lit á krækjur og texta. (Text: texti vefsíðu; Hyperlink: krækja;
Active Link: krækja meðan ýtt er á hana með músarbendli;
Visited Link: krækja sem búið er að skoða.)Í Background geturðu valið bakgrunnslit á vefsíðuna, sem kemur þá í kringum glæruna.
Svo er bara að ýta á Create!
Hér er dæmi um glærusýningu sem búið er að setja á vefsíðu með römmum:
![]()
Góða skemmtun!