Glærusýning í StarOffice, 4. hluti
Að setja inn mynd úr myndasafni
StarOffice fylgir heilmikið myndasafn, sem hægt er að nota í gerð glærusýninga, gerð vefsíðna eða setja inn í ritvinnsluskjal. Myndasafnið er á C:\Office51\GalleryTil þess að setja inn mynd á glæru byrjar maður á hefðbundinn hátt, þ.e. velur File-New-Presentation-Empty Presentation. Síðan er að velja einhvern heppilegan bakgrunn (Layout) og skipan texta á glæru (Modify Slide).
Þá er glæran komin.Til þess að setja inn mynd er farið á tækjastiku efst og valið Insert - Picture - From File. Þá kemur upp eitthvert skráasafn á valblaði og þú rekur þig áfram með
takkanum uns þú kemst í C:\Office51\Gallery. Þá lítur valblaðið svona út:
![]()
Gættu þess að hafa hakað við Preview, eins og hér er gert, því þá sérðu hvaða mynd er um að ræða í glugganum til hægri.
Smá skýring á undirskráasöfnum: bullets eru allskyns litlar kúlur, örvar o.þ.h. sem notaðar eru á vefsíðum; clipart er safn smámynda sem nota má í texta og glærur; flags eru fánar ýmissa þjóða; htmlexpo eru myndir sem henta best á vefsíður; maps eru kort; photos eru ljósmyndir; rulers eru mjóar stikur sem algengar eru á vefsíðum; sound er safn hljóða; surface er bakgrunnasafn fyrir t.d. glærur; symbols eru allskyns tákn; www-anim eru hreyfimyndir á vefsíður; www-back er bakgrunnasafn fyrir vefsíður og www-graf eru örvar og smátakkar fyrir vefsíðu.
Athugaðu að myndir sem eiga að fara á vefsíður verða að vera .gif eða .jpg myndir. Margar myndirnar í undirskráasöfnunum eru hins vegar .wmf (Windows metafile) sem gengur alls ekki á vefsíðu en er ágætt á glærur eða textaskjöl. Í rauninni þarftu ekkert að pæla í þessu ef þú ert bara að hugsa um glærur.
Opnaðu nú skrásafnið photos og veldu railroad (sem er mynd af járnbrautarteinum, á jpg-formi). Myndin fer nú á glæruna þína, en er sennilega alltof stór. Taktu í hornin á henni og lagaðu stærðina.
Þú getur ráðið því hvernig myndin birtist í glærusýningu; Veldu myndina (þ.e. ýttu á hana með músarbendli svo grænir ferningar séu í hornum myndarinnar); Ýttu niður hægri takka á músinni: Þá birtist valblaðið sem sýnt er hér til vinstri:
Hér gætirðu t.d. valið Effects. Þá kemur upp svona valblað:
![]()
Hér hef ég valið Fade from Center og valið síðan Fast, því ég vil að þetta gerist hratt. Svo ýti ég á græna hakið efst til að staðfesta þetta val.
Nú er best að athuga hvernig glæran lítur út, með því að ýta á glærusýningartakkann, á tækjastiku lengst til hægri, þ.e. þennan
. Þú þarft að ýta með músarbendlinum einu sinni á glæruna til að myndin birtist, ef þú hefur valið Effects. Vistaðu glæruna til að nota hana í næsta hluta.