JAR 113
Margmiðlun

Einföld glærugerð í STAR-OFFICE
(Að hluta er þessi texti íslenskun á hjálparsíðum forritsins)


Star-Office er forritapakki (svíta) sem býður upp á svipaða möguleika og Microsoft Office.  Innan Star-Office er að finna ýmis forrit, t.d. ritvinnsluforrit, töflureikni, glærugerðarforrit o.fl.  Hér er ætlunin að kenna fyrstu skref í glærugerðarforritinu.  Leiðbeiningarnar skiptast þannig:

1. Að opna Star-Office, finna glærusýningaforrit og ræsa gandálf
2. Velja útlit glæra og miðil sýningar
3. Velja birtingu glæra og tegund sýningar
4. Skrifa inn upplýsingar á titilsíðu sýningar
5. Velja fjölda glæra og velja glærur eftir tilgangi

Fjótlegri aðferð, ef gera á fáar glærur
 

Markmið:  Að nemendur geti búið til glærur í Star-Office, með hjálp gandálfs;  geti prentað þær út eða gert glærusýningu í tölvu.

1.  Fyrst skaltu opna Star-Office svítuna með því að tvísmella á táknmynd forritsins á skjánum.  Þegar Star-Office er opið (og lítur fremur óvingjarnlega út við fyrstu sýn, en ekki æðrast!) skaltu:
Fara í File (valmynd efst til vinstri)
Velja New
Velja Presentation

Þá ræsist glærugerðarforritið (heitir Presentation). (Miðað er við heila glærusýningu, þ.e. að margar glærur komi í röð). Strax fer í gang svokallaður gandálfur (autopilot) sem leiðir þig í gegnum verkið, með valblöðum, á borð við þetta:
 

Þú getur valið mismunandi sýningar, þ.e. tóma sýningu (Empty presentation), snið (Template) á sýningu og opnað sýningu sem þegar er til.  Ef þú velur tóma sýningu heldurðu bara beint áfram.  En á myndinni hér fyrir ofan hefur verið valið snið (Template) og  þá birtist listi yfir ýmis snið sem koma til greina.  Hér hefur verið valið snið sem hentar kynningu á einhverri söluvöru (Selling Presentation).

2.  Í þessu dæmi er haldið áfram, eftir að "Selling Presentation" sniðið var valið, og ýtt á Next, á valblaðinu.  Þá kemur næsta valblað:
 
 

Valblað 2 gefur kost á að velja útlit fyrir sýningu (Presentation Layouts).  Þú getur prófað hvert útlitið á fætur og sérð jafnharðan sýnishorn í glugga valblaðsins til hægri (meðan hakað er við Preview)..  Á þessu valblaði velurðu líka miðil fyrir sýninguna (Presentation medium selection), þ.e. glærusýningu í tölvu (Slide), glærur fyrir myndvarpa (Overhead) eða útprentun á pappír (Paper).  Spássíubreidd, stærð og staðsetning í sýningunni þinni eru háð því fyrir hvaða miðil þú ert að semja.

Í þessu dæmi er hvorki skipt um miðil né útliti breytt, heldur haldið beint áfram, með því að ýta á Next.

3. valblað:

Á valblaði 3 er birting (transition) glærunnar skilgreind (sem vitaskuld á aðeins við ef sýningin er í tölvu).

Í Effect valmyndinni er valið hvernig glæran á að birtast (hér er stillt á að hún birtist frá vinstri og verði sýnileg jafnframt því sem hún rennur yfir skjáinn - Cross-Fade from Left).
Í Speed valmyndinni er valið hversu hratt birtingin á að ganga fyrir sig.
Tegund sýningar (Presentation type) getur verið sjálfgefin (Default), sem þýðir að sýningunni er stjórnað handvirkt, þ.e. ýtt er á mús í hvert sinn sem ný glæra á að birtast, eða sjálfvirk (Automatically) sem þýðir að hver glæran af annarri, í sýningunni, er sýnd jafnt og þétt, uns einhver ýtir á Escape.

[Sé sjálfvirk sýning (Automatically) valin er hægt að stilla eftirfarandi:
Hve lengi hver glæra sést á skjánum - með Duration of Page;
Hve langt hlé verður milli hverra tveggja glæra í sýningunni - Duration of Pause]

Hvort sem þú velur sjálfgefna (Default) = handvirka glærusýningu eða sjálfkrafa, ýtirðu á Next til að fá næsta valblað.

4. valblað lítur svona út:

Þarna geturðu skrifað inn þær auka upplýsingar sem þú vilt að komi fram í kynningunni þinni. (Þ.e. nafn þitt eða fyrirtækisins sem þú ert fulltrúi fyrir, hvert umfang kynningar þinnar er og hvaða hugmyndir þú hyggst kynna.)  Þetta mun svo birtast í glærukynningunni, á titilsíðu.  Ýttu svo á Next.

5. valblað (lokavalblað gandálfsins) lítur svona út:
 

Hér geturðu valið hve margar glærur þú ætlar að hafa í glærusýningunni.  Þú sérð líka lista yfir nöfn/titla allra glæranna í sýningunni, sem tilheyra þessu tiltekna sniði sem þú valdir á fyrsta valblaðinu.  (Þetta eru ótal síður sem boðið er upp á því + fyrir framan möguleika til hægri þýðir að undir þeim möguleika eru margir fleiri möguleikar!)  Ef þú vilt ekki hafa svona margar glærur í glærusýningunni þinni geturðu eytt glærum úr sýningunni.  Þú ýtir á takkann með græna hakinu, sem er við hlið nafnsins á glærunni sem eyða á.  Þegar græna hakið er horfið mun þessi síða ekki lengur birtast í sýningunni þinni.  Svo geturðu auðvitað breytt aftur til baka, með því að haka á ný við síður og bæta þeim þannig inn í glærusýninguna.

Ef hakað er við Create Summary reitinn mun gandálfurinn gera nýja glæru með titlum allra fyrri glæra, þ.e. búa til yfirlit yfir allar glærur í sýningunni.  (Oftast er þetta óþarfi því flest snið (Templates) geyma hvort sem er svona yfirlitsglæru.)

Loks velurðu að búa til, þ.e. ýtir á Create hnappinn.  (Reyndar geturðu hvenær sem er ýtt á Create og þarft ekki að fara í gegnum allar valmyndir gandálfsins.)

Nú er sýningin þín tilbúin!  Þú getur svo lagfært hana, vistað hana, prentað hana o.s.fr.
Til þess að ræsa sýninguna á skjánum ýtirðu á (Ctrl) (F2) eða ýtir á sýningartáknið   á tækjaslá hægra megin á skjánum.

Ath.  Til þess að komast hjá því að þurfa á síðasta valblaði að eyða fullt af glærum, sem ekki eiga að vera í glærusýningunni, er miklu sniðugra að:

1)  Velja Tóma sýningu (Empty presentation) á fyrsta valblaði gandálfsins
Þá færðu bara upp 3 valblöð (en ekki 5 eins og þegar þú hefur upphaflega valið eitthvert snið - Template), en af þeim geturðu valið útlit og birtingarform glærunnar.  Svo ýtirðu á Búa til (Create), færð upp glæru og getur valið skipan texta af sérstöku valblaði sem þá kemur upp.  Þegar þú hefur skrifað glæruna og vilt búa til næstu glæru, gerirðu þetta:

2) Ferð í Insert (á tækjaslá efst) og velur Slide. Þá birtist næsta glæra og þú getur aftur valið skipan texta.

Fyrir neðan glæruna sem þú ert að gera sérðu alltaf á skjánum hve margar glærur þú hefur gert og getur hoppað á milli þeirra: 

Að búa til glærusýningu án gandálfs og setja inn þrívíddarmynd