JAR 113;  Margmiðlun
Fyrstu skref í glærugerð
Lokaskref í glærugerð

Glærusýning án gandálfs
og
glærur með þrívíddarmynd

 
 
1.  Gerð fyrstu glæru
2.  Næsta glæra
3.  Að setja inn þrívíddarmynd
4. Að vista
5. Að raða glærum fyrir sýningu
6. Að hefja sýningu
Markmið:
  • Að nemendur geti búið til glærusýningu án hjálpar gandálfs
  • Að nemendur geti sett inn þrívíddarform og valið áferð á það
  • Að nemendur geti raðað glærum fyrir glærusýningu.
1. Fyrsta glæra

Byrjaðu á að fara í File
Velja New
Velja From Template (sem er neðst)

(Flýtilykill fyrir þetta er (Ctrl) (N)

Þá kemur upp þetta valblað:

Þú velur eitthvert snið úr Categories.  (Hér prófaði ég að velja Education og fékk þá upp lista yfir möguleg snið innan þess flokks, t.d. snið til að gera grein fyrir ritgerð (Thesis) eða nota í fræðilegum fyrirlestri (Written Academic Lecture).  Sniðugast er sennilega að velja "Presentation Layout" því innan þess flokks er mesta úrval sniða.

Þegar sniðið hefur verið valið færðu sjálfkrafa valblað til að velja skipan texta á glæru (Modify Layout).  Að því loknu geturðu skrifað í textaboxin á glærunni.
 

Ef skjalið/glæran skyldi vera sýnt/sýnd í bakgrunnsham (Background Mode) þegar þú opnar það skaltu stilla það á glæruham (Slide Mode), með takkanum á tækjastiku neðarlega til vinstri.  Forritið opnar nefninlega skjal í þeim ham sem vistað var í síðast.  Hér fyrir neðan sést tækjastikan með tökkunum sem um ræðir.  Sá sem er lengst til vinstri stýri glæruham, sá næstlengst til vinstri stýrir bakgrunnsham:


 
 

2. Til þess að búa til næstu glæru:

Þú ýtir á takkann "sýningarbox á/sýningarbox af", sem er á tækjastiku fyrir ofan gluggann sem þú vinnur glæruna í, lengst til hægri.  Hér hefur takkanum verið ýtt niður:

Þá birtist þetta valblað í glugganum: 

Þú velur Insert Slide.  Upp kemur valblað þar sem þú velur skipan texta á glæru, eins og venjulega, og glæra tvö er tilbúin til ritunar í glugganum.

3. Nú skaltu prófa að setja inn mynd.
 

Vinstra megin við gluggann á skjánum er  tækjastika. Veldu  af henni þrívíddarmyndar-takkann (3-D object), sem hér er sýndur, með rauðan hring í kringum
Þú ýtir á þrívíddar-myndatakkann (athugaðu að maður þarf að ýta á pínulitlu grænu örina, svo valblað sjáist),  færð upp valblað og velur kúluna.

Svo ferðu með músarbendilinn á glæruna þar sem þú vilt fá myndina (gættu þess að glæran sé auð, þ.e ekki sé textabox fyrir, sem er reitur til að skrifa í texta.  Ef textareitur er fyrir á glærunni skaltu stroka hann út, með því að benda á hann og ýta á strokunarhnappinn á lyklaborðinu).  Þú teiknar svo ferhyrndan reit á glæruna með því að halda niðri músartakka og hreyfa bendilinn.  Reiturinn sést bara rétt meðan hann er teiknaður.  Þrívíddarformið sem þú varst búin að velja (kúlan) sést þá inni í reitnum.  Þú getur stækkað það og minnkað með því að taka í hornin á rammanum í kring og færa þau.  Þú getur líka hreyft þrívíddarformið með því að fara á miðja myndina og ýta henni til með músarbendli.
 
 

Ef þú vilt fá ákveðna áferð á kúluna, t.d. fá kúlu með skriðdýrshúð eða kúlu með yfirborð jarðarinnar (heimsálfum) ferðu á þrívíddar-áferðartakkann (3-D Effects).  Hér er hann sýndur, með rauðum hring í kring
og þegar ýtt er á hann kemur upp valblað, sem sýnt er hér að neðan, þar sem ýmis áferð býðst. Þú velur einhverja áferð, ýtir á græna hakið efst til hægri (á valblaðinu) og samstundis breytist myndin þín á glærunni.

Lokaðu svo þrívíddar-áferðar-valblaðinu (hryllilegt orð!) því þú þarft ekki að nota það meir.

4. Vistaðu nú glærusýninguna þína, annað hvort með því að fara í File og velja Save as eða með flýtitökkunum (Ctrl) (S) og passaðu að glærusýningin lendi örugglega í þitt skráasafn!

5. Röðun glæra fyrir sýningu

      Hægra megin við gluggann á skjánum er þessi tækjastika.

Ef þú ýtir á takkann eins og hér er gert (þennan með fjórum litlum ferningum) færðu upp valmynd þar sem þú getur dregið glærurnar til og frá og raðað þeim í þá röð sem þú vilt.

Til þess að hefja glærusýningu notar þú þennan takka .   Til þess að stöðva sýningu ýtirðu á Esc-takkann á lyklaborðinu.
 
 
 

JAR 113;  Margmiðlun
Fyrstu skref í glærugerð
Lokaskref í glærugerð