vernig á að finna punt á vefnum? 

1.  Maður getur notað punt eftir aðra, eins og hér er gert.  Leita á að clipart í leitarvélum á vefnum.  Ágætt að reyna að finna söfn, leita þá að clipart collection. Svo má rekja sig niður Yahoo, með því að fara á www.yahoo.com, velja Computers og finna þar undir myndasöfn (man ekki leiðina en hún ætti að vera augljós - graphics eða clipart hlýtur að koma fyrir).  Sumir búa til sett (bakgrunnur, stikur, takkar, myndir;  allt í stíl) sem má nota ef maður krækir í síðu listamannsins.  Slík sett heita image sets eða themes.  Þannig sett má t.d. finna á: 
http://www.morion.com  - veljið Design sets (þaðan er hörpubakgrunnurinn á þessari síðu), eða http://www.joanngraphics.com/linkware.html

Uppáhaldsstaðurinn minn til að finna bakgrunna, letur eða smámyndir er www.mediabuilder.com.  Þar eru líka vélar sem búa til takka og þrívíddarmyndir fyrir mann.  Skoðið Online Tools! Svo ekki sé minnst á ágætar síður um forrit - fyrir tölvunörda ;-) 

2.  Hægt er að búa til sitt eigið punt.  Best er að prófa sig áfram í í Paint Shop Pro eða Photoshop (eða öðru myndvinnsluforriti.  T.d. fylgir lítið myndvinnsluforrit StarOffice vöndlinum.). Þetta er tímafrek en skemmtileg vinna!  Sjálf sæki ég oft myndir eftir aðra og breyti (passa samt að þær séu án höfundarréttar, þ.e. royalty free).  Svo má líka skanna allt mögulegt og búa til úr því, sjá t.d. brauðbretti heimilisins, sem er uppistaðan í titiltakka Fornra fræða

Sjá má leiðbeiningar um notkun mynda á vef hjá Atla mínum, á http://www.fva.is/kennsla/tolvufr/tol103/inetglos/namsk.htm#2-2

og leiðbeiningar sem ég gerði fyrir kennara, á http://www.fva.is/~harpa/namskeid/myndhljod.htm

Svo er ágætt að ná sér í kennsluefni, af t.d. www.mediabuilder.com, velja Tutorials o.s.fr.