![]()
Fréttabréf Evrópska skólanetsins, nr. 59
11. febrúar 2002Í leiðara talar Brigitte Parry um betri tíð með blóm í haga ... og nefnir einnig að nú hafi rúmlega 70 manns skráð sig á vinnusvæðið ICT Rebels, eða uppreisnarmanna í upplýsingatækni. Bestur árangur næst með því að bera virðingu fyrir sköpun, rannsóknum, tækni og jarðbundnu fólki og vænlegast er að reyna að rata hinn gullna meðalveg milli þessara ólíku þátta.
Fréttabréfið í heild, á ensku. Harpa Hreinsdóttir
Netfang Brigitte er brigitte.parry@eun.org
___________________Allir þeir sem hafa áhuga og jafnvel áhyggjur af þróun internetsins í skólastarfi eru hvattir til að taka þátt í umræðum á vinnusvæði uppreisnarmanna (Rebels Community). Þetta á einkum við þá sem ekki líst á blikuna þegar flestar ákvarðanir um þetta eru teknar af fólki sem ekki hefur neina reynslu sjálft af notkun upplýsingatækni í skólum. Hægt er að skrá sig á
http://www.eun.org/eun.org2/eun/community/entry_community.cfm?area=210___________________
eXplora
Menn eru hvattir til að taka þátt í eXplora, sjá http://explora.eun.org. Þátttaka er þannig að 3-6 manna lið nemenda býr til margmiðlunarefni (á vef eða annars konar) um eitthvert hugðarefni sitt, sem tengist námskrá eða ekki. Kostur gefst á að vinna með eXplora-liðum í öðrum löndum. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir glæsilegustu verkefnin.
Nánari upplýsingar gefur Angela Andersson, angela.andersson@eun.org
_________________________________________________Kerfisstjórum og öðrum sem hafa áhuga á tækni gefst kostur á að skrá sig á sérstakt vinnuvæði þar sem þeir geta tekið þátt í umræðu og sótt stutt námskeið um lýsigögn, leitarvélar og myndbönd. Svæðið er á
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/Collaboration_eschoolnet/sub_area.cfm?sa=1250Nánari upplýsingar gefur Thomas Maier, thomas.maier@eun.org
_________________________________________________Markmið eSchola er að vekja athygli á því sem vel er gert í notkun upplýsingatækni í evrópsku skólastarfi. Þessi kostur gefst stjórnendum, kennurum, nemendum, skólaskrifstofum og öðrum sem starfa að skólamálum. Sjá
http://eschola.eun.org (íslensk upplýsingasíða er á http://www.fva.is/harpa/eschola/index.html).
_________________________________________________Ákveðnir evrópskir skólar hafa verið beðnir um að skaffa upplýsingar um hvernig tölvur eru notaðar í hverjum skóla, hvar þær eru í skólunum, hve margir kennarar og nemendur nota tölvurnar o.s.fr.
Niðurstöður þessarar upplýsingaleitar má sjá á
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/practices_/content.cfm?ov=11200&lang=enÞar má opna .pdf skjöl sem skólarnir sendu.
__________________VAKIN ATHYGLI Á
__________________Bent er á heilmikið efni um þetta sem finna má á síðu um mannréttindi (Human Rights Watch web site). Upplýsingarnar eru á ensku, frönsku, portúgölsku, spænsku, rússnesku, arabísku og kínversku.
Sjá http://www.hrw.org/women/
_________________________________________________Europe Direct er þjónusta sem veitir allskonar upplýsingar um Evrópusambandið í tölvupósti, í síma og bendir á staði þar sem hægt er að fá frekari upplýsingar. Símtöl eru ókeypis, sjá
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/myeurope/content.cfm?lang=en&ov=11542Vilji menn fremur spyrja í tölvupósti er netfangið mail@europe-direct.cec.eu.int
_________________________________________________Evrópsku tungumálaverðlaunin eru veitt fyrir nýbreytni og elju í tungumálakennslu. Lista yfir skrifstofur í einstökum löndum þar sem fá má frekari upplýsingar um þessi verðlaun er að finna á
http://www.europa.eu.int/comm/education/language/contact.html_________________________________________________
Nú hefur verið komið á laggirnar gagnabanka yfir ýmislegt sem snertir sérkennslu í Evrópu.
Sjá www.european-agency.orgSérkennurum er líka bent á hóp sérkennara í Sýndarskólanum (The Virtual School), sjá
http://www.eun.org/eun.org2/eun/sv/vs-specialneeds/sub_area.cfm?sa=266og í sérfræðihópi ESkólanetsins, á
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/Collaboration_eschoolnet/content.cfm?ov=10425&lang=en_________________________________________________
Hollenskur stærðfræðingur hefur sett upp samskiptavef í tengslum við athuganir á því hve víða að úr Evrópu evrur berast inn í Holland. Meir en 1000 manns hafa sent inn athuganir sínar. Því miður er síðan aðallega á hollensku en þó má finna útdrátt á ensku, á http://www.wiskgenoot.nl/eurodiffusie/engindex.html
_________________________________________________
"Scottish Schools Online" er nýr gagngrunnur sem má leita í á vefnum. Ætlunin er að þetta framtak ýti undir samskipti og samráð milli skóla. Hver skóli skráir upplýsingar um sig og getur breytt þeim að vild. Sjá
http://www.ngflscotland.gov.uk/schoolsonline/_________________________________________________
SCENT er skammstöfun á "the Sick Children's Educational Network for Teachers mailing list". Þetta er, eins og nafnið bendir, til póstlisti fyrir kennara sem kenna börnum á spítölum og börnum með langvarandi sjúkdóma. Sjá
http://www.becta.org.uk/inclusion/discussion/scent.html____________________________________________________
“La Seine aux mille visages aujourd’hui et il y a 100 ans », er verkefni þar sem fljótið er lagt til grundvallar en síðan unnið með úr þessu þema / hugtaki / náttúrufyrirbrigði á fjölbreyttan og þverfaglegan hátt. Sjá
http://www.petit-prince-euro.org/SITES/siteseine/index.htmTengiliður: Rubén Ibañez, ruben.ibanez@versailles.iufm.fr
___________
ÓSKIR UM SAMVINNU
____________________________________________________Frönskukennari í Portúgal óskar eftir samstarfsmönnum; Helena Pedrosa vill komast í kynni við frönskukennara í Evrópu eða um allan heim til að stofna net slíkra kennara. Þannig ætti að vera auðveldara að setja upp samstarfsverkefni og koma á bréfaskipum. Einnig væri hægt að ræða kennslufræðileg málefni á slíku neti. Áhugasamir hafi samband við Helenu á netfanginu nunilena@netvisao.pt
____________________________________________________Lestur og skrift; Hilde Øen, barnaskólakennari í Spetalen í Noregi, óskar eftir að hefja samstarf um kennsluaðferðir í lestri og skrift. Hún býðst til þess að vera stjórnandi í slíku samvinnuverkefni og sjá um að semja styrkumsóknirnar. Netfang Hildu er hilde.oen@rade.gs.of.no
____________________________________________________
Skoðanir nemenda á tölvunotkun í skólum; Svissneskir skólamenn hafa áhuga á að kynnast viðhorfum nemenda til þessa. Spurningalisti, á frönsku, liggur frammi á http://www.educa.ch/dyn/9.asp?url=23853.htm , og svara má á hvaða formi sem er; í texta, hljóði eða myndum; á geisladiski, myndbandi o.s.fr.
____________________________________________________Hópur manna vinnur að undirbúningi Comeniusar-verkefnis fyrir frönskumælandi nemendur eða nemendur sem læra frönsku. Markmiðið er að búa til margmiðlunarorðabók. Verkefnið er ætlað nemendum á aldreinum 12 - 15 ára. Rúmenskur samstarfsaðili hefur fengist og undirbúningsheimsókn er fyrirhuguð til Rúmeníu í október 2002. Þeir sem hafa áhuga á að slást í hópinn hafi samband við stjórnanda verkefnisins fyrir 21. mars 2002.
Stjórnandi: André Rombauts, ccm.ar.alleur@win.be____________________________________________________
Margmiðlunarsýning verður haldin í 4. sinn á Ítalíu dagana 12, 13. og 14. apríl 2002. Annars vegar verða sýnd margmiðlunarverkefni unnin í ýmsum skólum og hins vegar eru haldnir margmiðlunarólympíuleikar, þ.e. verðlaunasamkeppni. Skólum býðst að taka þátt í þessari sýningu, með því leggja fram margmiðlunarefni og kynna það (senda nemendur og kennara). Annað en ferðir er þátttakendum að kostnaðarlausu.
Nánari upplýsingar gefa Giuseppina Paternoster eða Orietta Laviano, sem hafa netfangið liceomelfi@tiscali.it____________________________________________________
Á DÖFINNI
____________________________________________________
TED, Hátíð náms á neti og fjölgreindar verður haldin í Genúa á Ítalíu dagana 27. febrúar til 1. mars 2002
Þetta er stærsta sýning og markaður á sviði upplýsingatækni, á Ítalíu. Kennarar eru hvattir til að sækja sýninguna. Sjá www.ted-online.it____________________________________________________
Upplýsingasíða Evrópska skólanetsins yfir ráðstefnur og viðburði í Evrópu er á
http://www.eun.org/events
Í lok fréttabréfsins eru upplýsingar um hvaða stofnanir standa að Evrópska skólanetinu.