Fréttabréf Evrópska skólanetsins 26.
febrúar 2001, nr. 46
Helstu atriði
|
25. febrúar 2001
|
Fréttabréf eSchola; Vísað er í slóðir til að gerast áskrifandi að þessu nýja fréttabréfi, ýmist bara texta eða fréttabréfinu á vefsíðu.Um Evrópu í tíma og rúmi; Nokkrar leiðir má velja til ferðalagsins (í þessu verkefni):
Ef verið er að vinna einhver verkefni sem gætu hugsanlega passað inn í eitthvað af þessu eru viðkomandi beðnir að hafa samband við Birgittu Parry, á birgitte.parry@eun.org, og senda henni örstutta lýsingu ásamt vefslóð í viðkomandi verkefni.
- Með tímavél; Um Evrópu á mismunandi tímaskeiðum, þ.e. áhersla á stjórnmálasögu, félagsvísindi og sögu vísinda
- Með rútu; Skemmt sér í Evrópu, þ.e. áhersla á hátíðir, viðburði, athyglisverða staði, upplýsingar fyrir ferðamenn
- Á hjóli; Um Evrópu á eigin hraða, þ.e. áhersla á umhverfið, landshætti, ár, gróður og dýralíf
- Með eldflaug; Evrópa af himni ofan, þ.e. áhersla á gervihnattamyndir, veðurfræði
- Á galdrastaf; Gandreið um Evrópu, þ.e. áhersla á goðsagnir, drauga, álfa, ævintýri og sagnir
- Fótgangandi; þ.e. að ganga um um og njóta lista í Evrópu.
myEUROPE bæklingurinn er nú til á 16 tungumálum, á http://www.en.eun.org/myeurope/about.html. Fylgist með fréttum af myEUROPE, á http://myeurope.eun.org.
Spjall á netinu 15. mars; Stækkum Evrópu. Einungis skráðir myEUROPE-skólar geta tekið þátt í þessu spjalli og þátttakendafjöldi er takmarkaður. Nánari upplýsingar um skráningu eru í ensku útgáfu fréttabréfsins.
Höldumst í hendur; kíkið á þetta frábæra safn af tekningum evrópskra krakka og takið þátt í að efla það.
myEUROPE er nú net 600 skóla. Skólar eru hvattir til að skrá sig í verkefnið.
ÓSKIR UM SAMSTARF
Hvernig er saga kennd í þínu landi? Virtual School óskar eftir upplýsingum um slíkt.
Kennsla í félagslegri vitund; Keith Ripley er að kanna áhuga á Comeniusar-samstarfi um hvernig skólastarf (og einnig menntun kennara) miðar að því að láta börnum finnast að þau tilheyri Evrópu.
Víkinga-skólabúðir; Skóli í Noregi sem rekur víkingabúðir, vill undirbúa Comeniusar-samstarf, sem hefjist haustið 2002, í tengslum við þetta.
Vakin er athygli á umræðum um ungdóm og fjölmiðla á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, sem fara fram á vef.
Latína í teiknimyndum; ítalskur skóli óskar eftir samstarfi við framhaldsskóla (latínu- og myndlistarkennara).
Misrétti kynjanna; umræða, á vef, á vegum Barnahjálpar SÞ.
KENNSLA
Þjálfun sænskra kennara í tölvustuddri kennslu; sagt er frá framtaki sænskra stjórnvalda sem lána kennurum tölvu heim taki þeir þátt í námskeiði.
TRANSPO-námskeið er Comeniusar-námskeið um hvernig hægt er að nota verkefnagerð og UT í kennslu. Námskeiðið er haldið í september 2001, í Skotlandi. Frestur til að skrá sig er til 1. mars.
BJARGIR
Englishpage.Com er vefsíða ætluð enskukennurum og nemendum.
Evrópskir innflytjendur í Bandaríkjunum, er síða sem sögudeild Virtual School hefur sett upp.
Geography Exchange er bresk síða með allrahanda landafræðiupplýsingum.
Próf og efni tengt eðlisfræði er þýsk síða með miklu efni tengdu eðlisfræði og stjarneðlisfræði.
Shakespeare í skólanum er dönsk síða, á vegum Virtual School, með kennsluefni um Shakespeare og Macbeth, eitt leikrita hans.
Kennsluefni með kvikmyndum og myndböndum; Frönsk síða með ýmsu efni tengdu kvikmyndum og myndböndum, ásamt kennsluefni á neti. Dæmi um efnisflokka eru sjónvarpsauglýsingar, Kosovo og þrælahald.
Mutopia er síða þar sem hægt er að hlaða niður nótum ýmissa tónverka á ýmsu formi, t.d. PDF-formi.
Theatron er síða þar sem skoða má í þrívídd bæði nútímaleikhús og leikhús fornaldar.
Roland safnið er safn kvikmynda og myndbanda um listir í 25 þjóðlöndum. Safnið telur 640 filmubúta og býður upp á leit.
Eurogame er viðskiptaspil, þar sem hver þátttakandi byrjar með 19 milljón evrur og á síðan að reyna að æxla sér fé af ýmsum viðskiptum í löndum Evrópu. Styður við hagfræðikunnáttu nemenda.
KEPPNI
Croton-verðlaunin á Ítalíu eru evrópsku tungumálaverðlaunin, í tilefni Evrópska tungumálaársins. Þátttakan snýst um ný viðhorf til margtyngdra samskipta á netinu innan Evrópu. Öllum skólastigum er heimilt að skrá sig til þátttöku um þessi verðlaun.
Á DÖFINNI
Minnt er á upplýsingasíðu Evrópska skólanetsins yfir viðburði í Evrópu, á http://www.eun.org/events/