Fréttabréf Evrópska skólanetsins, nr.
60
25. febrúar 2002
Fréttabréfið í heild, á ensku. Harpa Hreinsdóttir
Í leiðara vekur Brigitte Parry athygli á vefsíðum Evrópusambandsins um umhverfismál og lýsir eftir áhugasömum kennurum sem gefi kost á sér til að skipa sérfræðihóp. Hópurinn á að koma með tillögur að því hvernig hægt sé að nýta þessar upplýsingar um umhverfismál í skólastarfi. Áhugasamir skrifi Brigitte og tíundi menntun og starfsreynslu en hún sér svo um að koma upplýsingunum áfram.
Netfang Brigitte er brigitte.parry@eun.org
_________________________________________________EVRÓPSKA SKÓLANETIÐ
Ábendingar til kennara um gott um námsefni á vefnum; Á vegum Evrópska skólanetsins hefur efni á vefnum verið vegið og metið og einungis er bent á það sem þykir bera af. Kennurum sem nýta internetið er sérstaklega bent á skýrslu, eftir sænska kennarann Günther Dippe, sem liggur frammi á
http://www.eun.org/etb/survey/d3.2_html#_Toc1549650Í skýrslunni er gátlisti yfir þau atriði sem vert er að hafa í huga þegar efni á vefnum er metið til kennslu, sjá
http://www.eun.org/etb/survey/d3.2_html#_Toc1549664Bent er á verkfæri sem nýtast við gerð kennsluefnis á vef, sjá
http://www.eun.org/etb/survey/d3.2_html#_Toc1549667Í lok skýrslunnar er bent á ýmsar vefsíður, amerískar og evrópskar, um svipað efni, sjá
http://www.eun.org/etb/survey/d3.2_html#_Toc1549673_________________________________________________
Fundur um frumkvöðlaskóla í Evrópu (ENIS) verður haldinn í Montecatini (lítilli borg nálægt Pisa) dagana 25. - 26. febrúar. Ítölsk menntamálayfirvöld hafa sett áherslur á upplýsingatækni til bætts skólastarfs á oddinn. Hluti af þeirri stefnu er að nýta reynslu þeirra skóla sem fram úr þykja skara. Fundurinn í Montecatini er haldinn í tengslum við TED, sem er stærsta sýning á sviði upplýsingatækni í skólastarfi, á Ítalíu. Á ENIS fundinn mæta fulltrúar skóla og menntamálaráðuneyta víða að úr Evrópu.
Upplýsingar um ENIS gefur Anne Gilleran á skrifstofu Evrópska skólanetsins en netfang hennar er
anne.gilleran@eun.org
_________________________________________________Öryggi á internetinu er verkefni sem snýst um að finna leiðir til að gera ineternetið hættulaust börnum. Þeim sem hafa áhuga á að fræðast um þessar leiðir er bent á að hafa samband við Nerina Milletti, neri@bdp.it
_________________________________________________
VAKIN ATHYGLI Á
Síðum Sameinuðu þjóðanna gegn kynþáttafordómumsem nýtast vel í kennslu, sjá
http://www0.un.org/cyberschoolbus/racism2001/orglinks.asp
_________________________________________________ICARE, gegn kynþáttafordómum í Evrópu eru síður með efni og tenglum fyrir þá sem vilja komast í samvinnuverkefni um efnið. Síðurnar eru aðallega á ensku og frönsku en sumar eru einnig á spænsku. Sjá
http://www.icare.to/
_________________________________________________Hér að neðan er svo vakin athygli á ýmsum síðum um alnæmi því einhverra hluta vegna hefur umræða um þennan hræðilega sjúkdóm dofnað heldur upp á síðkastið.
**********************************************************************
Varnir gegn alnæmi, síða á vegum World Bank; Tveimur áratugum eftir að alnæmi uppgötvaðist fyrst höfðu um 11, 7 milljónir manna látist af völdum sjúkdómsins. World Bank og aðrar alþjóðastofnanir líta alnæmi sem vandamál alls heimsins sem verði að leysa. Á þessari síðu er boðið upp á skjöl, myndbönd og ýmist efni sem nýtast mun nemendum.
http://www.worldbank.org/html/schools/issues/aids.htm
_________________________________________________Alnæmi, sjálfsvíg og forvarnir gegn fíkniefnum er viðfangsefni frönsku síðunnar sem bent er á hér að neðan:
http://www.multisexualites-et-sida.org/yapasque/yapasque.html_________________________________________________
ÓSKIR UM SAMVINNU
Spjall við Wallström ráðherra í tilefni grænnar viku; Nemendum gefst kostur á að spjalla á netinu við umhverfsmálaráðherra framkvæmdarstjórnar Evrópusambandins, frú Wallström. Spjallið ber titilinn Frá Ríó til Jóhannesarborgar og á að snúast um umhverfistengdar breytingar á veðurfari, verslun og umhverfi og heilsufar og umhverfi.
____________________________________________________
- Spjallið stendur þriðjudaginn 16. apríl frá 9.30 - 11.00. Væntanlegir þátttekendur verða að skrá sig fyrir 29. mars, í pósti á netfangið env-chat-wallstrom@cec.eu.int og taka fram nafn skóla, hvaða bekk er um að ræða, nafn kennarans og á hvaða máli (einu af hinum 11 opinberu tungumálum Evrópusambandsins) á að spjalla
- Spjallað verður á http://chat.europa.eu.int/chatapplet/chat_en.html
- Frekari upplýsingar má sjá á http://europa.eu.int/comm/environment/greenweek/chat_en.htm
- Tengiliður þessa hjá Evrópusambandinu er Birgitta.Bodin@cec.eu.int
Ósk um samstarf, frá Benjamin-Franklin-Oberschule í Þýskalandi: Þetta er hefðbundinn 600 manna gagnfræðaskóli í Berlín, nemendur eru 12 - 16 ára og læra ensku og frönsku. Skólinn hefur aldrei unnið í evrópsku samstarfsverkefni áður. Nú á að byrja, þegar hefur fengist finnskur skóli í tilvonandi samstarf en flest annað er óljóst. Hér með er óskað eftir samstarfsaðila/aðilum víðar að úr Evrópu.
Áhugasamir hafi samband við Jutta Hugow, jhugow@snafu.de____________________________________________________
Samskipti á þýsku í tölvupósti; Sænskur kennari, Bodil að nafni, óskar eftir pennavinum fyrir bekkinn sinn, alls 30 nemendur sem eru 17 ára. Samskiptin eiga að fara fram á þýsku. Áhugasamir hafi samband við
Bodil Hegardt, bodil.hegardt@TYCHO.HELSINGBORG.SE
____________________________________________________Keppni í ástralskri frumbyggjalist er verkefni sem snýst um að nota sama stíl og ástralskir frumbyggjar til að skapa ný listaverk sem endurspegla eigin menningu eða landssvæði. Keppnin stendur frá 10. janúar til 30. júní 2002. Sjá http://www.westminster.iinet.net.au/noongar/art/
____________________________________________________Erfðafræði er verkefni sem snýst um að nemendur safna upplýsingum um ýmis einkenni manna sem erfast. Þeir greina síðan hvaða einkenni erfast með víkjandi og hvaða einkenni erfast með ríkjandi genum. Meðan á verkefninu stendur munu nemendur setja fram tilgátur og nota upplýsingar frá öðrum nemendum til að prófa þessar tilgátur sínar. Verkefnið á að fara fram á ensku og hentar framhaldsskólanemendum. Sjá
http://k12science.ati.stevens-tech.edu/curriculum/genproj/
____________________________________________________Comeniusar-verkefnið MultiDICO felst í því að safna orðskýringum í frönsku. Gert er ráð fyrir að efnið vinni nemendur á aldrinum 11 - 16 ára. Nemendur mega nota texta, teikningar og hljóð í orðskýringum sínum. Afraksturinn birtist væntanlega á geisladiski, sem margmiðlunarorðabók. Verkefnið á að hefjast 1. ágúst 2002 og standa fram til ársins 2006. Nú þegar hafa 4 skólar skráð sig í þetta verkefni og enn vantar 6 skóla. Sérstaklega er óskað eftir skólum frá Suður-Evrópu en aðrir sem áhuga hafa eru samt hvattir til að hafa samband.
Nánari upplýsingar má fá á http://www.multidico.org eða með því að skrifa til multidico@skynet.be
____________________________________________________
Keppnin „Með eða á móti farsímum“ eða “Le portable, oui! Mais!…” er rekin af frönskudeild Evrópska skólanetsins í samvinnu við vefstjórann Didier og á vegum Canal Rêve (http://babelnet.sbg.ac.at/canalreve). Markmiðið er að rökræða um farsímanotkun, á frönsku. Öll framlög birtast á vef og þau bestu fá viðurkenningu. Frestur til að skrá sig er til 8. mars 2002.
Sjá nánar http://babelnet.sbg.ac.at/canalreve/event7
Tengiliður er Christian Ollivier, Christian.Ollivier@sbg.ac.at____________________________________________________
LIPSS – Vandamál við færslu milli grunnskóla og framhaldsskóla; Allt frá 1987 hafa ýmsir aðilar í Evrópu unnið að því að gera greiða götu nemenda á milli skólastiga. Árið 1999 tók til starfa samstarfshópur skipaður fólki frá Kýpur, Þýskalandi, Englandi og Póllandi. Samstarf þeirra var Comeniusarverkefni. Nú hefur komið út skýrsla eða handbók með niðurstöðum þessa hóps. Fyrsti hluti handbókarinnar (Manual 1) er yfirlit yfir ýmsar kenningar um þetta mál, í næsta hluta (Manual 2) er fjallað um hvernig hrinda megi þessum kenningum í framkvæmd. Sá hluti geymir góð ráð til kennara, nemenda og foreldra hvað þetta varðar. Síðasti hlutinn (Manual 3) á að koma út á árinu og þar verður bent á líkön sem kynna ætti í kennaranámi og hafa reynst vel í ýmsum löndum. Í apríl 2003 stendur þessi hópur svo fyrir Comeniusar-námskeiði. Sjá nánar á
http://www.eduhi.at/schule/lipss/
____________________________________________________Óskað eftir upplýsingum um einelti og skólaumhverfi; Hiroko Togo starfar á Englandi og óskar eftir frásögnum af árangursríkri skólastefnu gegn kynþáttahatri, einelti og brottfalli, í grunn- og framhaldsskólum. Hún hyggst skrifa skýrslu um þessi mál fyrir japönsk yfirvöld, sem vinna að lausn svipaðra vandamála. Hafið samband við hana á netfangið togo@nep21.co.uk
eða í faxnúmer +44-20-7393-0901____________________________________________________
Á DÖFINNI
Minnt er á síðu Evrópska skólanetsins yfir viðburði og ráðstefnur í Evrópu á
http://www.eun.org/events____________________________________________________
Í lok fréttabréfsins eru upplýsingar um hvaða stofnanir standa að Evrópska skólanetinu.