Fréttabréf Evrópska skólanetsins, nr. 58
29. janúar 2002

 
 
Fréttabréfið í heild, á ensku.
Harpa Hreinsdóttir

 

Í leiðara nefnir Brigitte Parry mikilvægi samvinnuverkefna milli skóla á Internetinu. Slík samvinna feli í sér nýsköpun og þróun Internetsins sem sé nauðsynleg svo Vefurinn vaxi og styrkist. Síðan segir Brigitte: „Ég hef áhyggjur af þróun Internetsins.  E.t.v. deila sum ykkar þessum áhyggjum mínum yfir því valdi tækni og staðla sem kemur í veg fyrir innihaldsríkt eða skapandi efni. Ég man þá tíð þegar ég byrjaði að gera vefsíður og hve gaman það var.  Nú eru þessir tímar liðnir og nú verðum við öll að íklæðast sama þrönga tæknistakknum og hlýða þeim reglum sem tæknimenn setja. Þess vegna hef ég útbúið netfang handa þeim sem stendur sama ógn af þessari framtíðarsýn og mér.  Ef þú vilt ræða um óhefðbundna möguleika á því að skapa eitthvað nýtt á Internetinu hafðu þá endilega samband á Netinu. Netfangið er ict_rebels@yahoo.com og lykilorðið er internet.  Þekkir þú einhvern sem er ekki ánægður með þá þróun sem Internetið virðist stefna í skaltu benda þeim hinum sama á þennan vettvang.  Þarna verða menn hvergi skráðir, hvorki á póstlista né í gagnabanka;  Uppreisnarmennirnir vita hvernig tala má saman!“
Að þessum orðum loknum biður Brigitte kærlega að heilsa öllum, jafnt uppreisnarmönnum sem staðlasinnum.
brigitte.parry@eun.org

_________________________________________________
 


Teiknimyndasamkeppni;  Nemendum á aldrinum 5 - 18 ára gefst kostur á að vinna tölvuver (3 Apple iBook fartölvur, prentara og skanna) auk teiknimyndasagna og fleiri verðlauna, sem Apple tölvufyrirtækið og Utopia, sérhæfð verslun í teiknimyndasögum, gefa.  Skilyrði er að teiknimyndin tengist þemanu umburðarlyndi.
Nánari upplýsingar eru á  www.eschoolnet.org
Tengiliður verkefnisins er Alexa Joyce, alexa.joyce@eun.org

_________________________________________________

Sérfræðingar í samvinnu er hópur evrópskra kennara sem eru til í að ráðleggja þeim sem hyggja á fjölþjóðleg samvinnuverkefni.  Sjá nánar
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/Collaboration_eschoolnet/sub_area.cfm?sa=579
 _________________________________________________
 


Margmiðlunarsögurer verkfæri á Vefnum sem gerir nemendum kleift að skrifa sögur eða ljóð og krækja síðan í uppáhalds vefsíður sínar, myndir og / eða hljóð.  Afraksturinn verður „margmiðlunarsaga“. Kennarar eru beðnir að lesa kennsluleiðbeiningar áður en þeir láta nemendur sína byrja að vinna í þessu. Sjá http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/myeurope/content.cfm?lang=en&ov=10619

Tengiliður er Petru Dumitru, petru.dumitru@eun.org

_________________________________________________

Land orðanna er vefsíða þar sem orðtök og málshættir frá ýmsum löndum eru útskýrð.  Útskýringarnar eru á ýmsu formi, s.s. teikningar, ljóð eða annað.  Tungumálakennarar eru sérstaklega hvattir til að nýta sér þetta verkefni, jafnt til að skoða síðuna sem láta nemendur sína leggja sitt af mörkum. Sjá nánar
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/myeurope/content.cfm?lang=en&ov=9777

Tengiliður er Petru Dumitru, petru.dumitru@eun.org
________________________________________________

Samaner Comeniusarverkefni sem á að stuðla að betri vinnubrögðum við samvinnuverkefni.  Nemendur hafa samskipti í tölvupósti og gefið er út veftímarit á vegum nemenda og kennara í verkefninu.  Greinar í tímaritinu eru birtar á móðurmálinu ásamt stuttum útdrætti á ensku.  Núverandi tungumál sem eru notuð í þessu verkefni eru ensku, austurríska (?), ítalska, spænska og galisíska. Á næsta ári munu fleiri skólar bætast í hópinn í þessu verkefni, frá Englandi, Rúmeníu og Þýskalandi.
Sjá  http://personal2.redestb.es/cruce

Tengiliður er Milagros Trigo, gorcam@teleline.es
_________________________________________________

Englandskort er vefsetur þar sem krakkar geta skoðað bæði yfirlitskort og beint sjónum að nákvæmari kortum.  Einnig má finna þarna krossapróf úr efninu.  Sjá  http://www.mapzone.co.uk/
_________________________________________________

Stærðfræðisíða breska sjóhersins þykir spennandi fyrir nemendur og kennara, sjá
http://www.rn-maths.co.uk/
_________________________________________________

Námefni í umhverfisfræði er síða á vegum Margot Wallström, sem er fulltrúi framkvæmdarstjórnar Evrópusambandsins í umhverfismálum.  Efnið er á ensku.
Sjá
http://europa.eu.int/comm/environment/youth/index_en.html

_________________________________________________
 


Samskipti á þýsku;  Marianne er þýskukennari í framhaldsskóla í Derby, Englandi.  Hún vill láta nemendur sína skrifast á við aðra þýskunemendur eða við þýskumælandi nemendur.  Áhugasamir hafi samband við Marianne Porter,
Marianne@amber-valley.demon.co.uk

____________________________________________________

Samvinna og heimsóknirHugmyndin í þessu verkefni er að  fyrst hittist kennarar og ákveði nánar vinnuferlið, síðan hafi nemendur í skólum í ólíkum þjóðfélögum samskipti í tölvupósti,  og umræðu á vef og á næsta skólaári verði stefnt að gagnkvæmum heimsóknum þessara skóla.  Umræðuefnin eiga að vera samanburður á skólakerfi, réttindum ungs fólks, jafnrétti o.fl. Netfang tengiliðs bendir til þess að viðkomandi sé í Svíþjóð, en tengiliður er  Inkeri, inkeri.book@eskilstuna.se
____________________________________________________

Sagnaritun á frönsku er verkefni fólks  frá Belgíu, Alsír, Kanada og Frönsku Gæjana.  Nemendur og kennarar skrifuðust á í tölvupósti og sögurnar voru samdar í fjórum þáttum. Frönskukennarar eru hvattir til að kíkja á vefsíðu verkefnisins og annað hvort leggja sitt af mörkum eða fá hugmyndir til að nota í sinni kennslu.  Sjá  http://users.swing.be/villers/vie_ecole/contes/conte_intro1.htm
Tengiliður þessa verkefnis er Bernard Verhaeghe,  bernard.verhaeghe@skynet.be

____________________________________________________

Samvinnuverkefni með Rúmeníu;  Cioara Dana kennir í framhaldsskóla sem hefur að sérsviði ferðmennsku, þjónustu og viðskipti.  Hún vill gjarna hefja samvinnuverkefni við annan framhaldsskóla. Netfang skólans er licecohd@tvnethd.ro

____________________________________________________

Samskipti á spænsku við sænskan skóla;  Kennarinn Pernille Valén vill gjarna komast í samband við spænskukennara, á Spáni, í Suður-Ameríku eða annars staðar.  Netfang Pernille er
pernilla_valen@yahoo.com
____________________________________________________

Upplýsingatækni í leikskólum; Flavia, sem kennir í leikskóla á Ítalíu, vill endilega komast í kynni við leikskólakennara sem hafa prófað sig áfram í  tölvunotkun leikskólabarna. Netfang hennar er

flaviarobi@libero.it
____________________________________________________

Trjáræktun í barnaskóla; Borist hefur bréf frá 6. bekk (sennilega í Belgíu) þar sem segir á þessa leið:  Við ætlum að gera tilraun til að rækta tré (Rhamnus Frangula) af fræjum.  Ef bekkurinn þinn vill taka þátt í þessu með okkur sendum við honum fræpakka.  Bekkurinn á svo að senda okkur skýrslu vikulega, með myndum, teikningum og fleiru sem lýsir trjáræktinnni.  Þetta sjáum við um að setja á vefsíðu og allir geta svo fylgst með hvernig trjáræktin gengur í ýmsum löndum.  Verkefnið hefst núna og stendur út febrúar eða lengur.  Tengiliður er Jef Theys, de.kriebel@pi.be

____________________________________________________

Babelnet spænskukeppnin heitir í ár  Carlitos cumple años.  Til að taka þátt í þessari keppni eiga nemendur að skipuleggja afmælisveislu Carlitosar, útbúa boðskort, gera innkaupalista og myndskreyta hann, velja tónlist í afmælisveisluna o.fl.  Allt á þetta náttúrlega að vera á spænsku. Skráning í keppnina og nánari upplýsingar eru á
http://babelnet.sbg.ac.at/carlitos/eventos/cumpleanos/index.htm

____________________________________________________

Líf við sjávarsíðuna; Skóli á suðvestanverðum Bretaníuskaganum, Frakkalandi, vinnur nú að þemaverkefni um líf við sjávarsíðuna.  Enskukennarinn  vill gjarna koma á samskiptum við nemendur í öðrum löndum sem einnig búa við sjóinn, og ætlast til að nemendur hennar og þeir ræði ýmislegt sem tengist búsetunni, t.d. fiskveiðar, báta, störf tengd sjósókn, vandamál tengd mengun o.s.fr.
Tengiliður er Claude Mariana, Claude.Mariana@ac-rennes.fr

____________________________________________________

Straumar mynda og fljót orða; er verkefni eða keppni sem öllum skólum sem standa við ána Loire í Frakklandi býðst að taka þátt í.  Sjá nánar í enskri útgáfu þessa fréttabréfs en einnig má fá nánari upplýsingar á http://www.rivernet.org/educ/rivima_f.htm
Tengiliður er  Cécile Simonet, cecile.simonet@rivernet.org
 

Minnt er á fréttasíðu Evrópska skólanetsins, yfir ráðstefnur og viðburði í Evrópu, á
http://www.eun.org/events

____________________________________________________

Í lok fréttabréfsins eru upplýsingar um Evrópska skólanetið og þær stofnanir sem að því standa.