Fréttabréf Evrópska skólanetsins nr. 57
13. janúar 2002
Fréttabréfið
í heild er hér.
Harpa Hreinsdóttir |
Í leiðara óskar Brigitte Parry, brigitte.parry@eun.org, lesendum gleðilegs árs. Hún nefnir að nú sé þetta fréttabréf einnig þýtt á japönsku og að öllum þýðingum meðtöldum nái fréttabréfið nú til 25.000 kennara um allan heim.
ESCHOLA 2002 er hafið og eru menn hvattir til að skrá sig í eSchola sem allra fyrst. Nánari upplýsingar gefa Angela Andersson, Angela.andersson@eun.org og Carmen Strigel, Carmen.strigel@eun.org
eSchola vefsíðan er á http://eschola.eun.org
COMENIUS SVÆÐIÐer á http://comenius.eun.org. Þar má m.a. finna samstarfsaðila í Comeniusar-verkefni (velja „Communication - Partner finding forum“), skoða hvers konar verkefni teljast til Comeniusar-verkefna (velja „About“) og einnig er hægt að biðja um að samstarfssvæði sé sett upp fyrir þá sem vinna saman í Comeniusar-verkefni (senda beiðni til community@eun.org)
VIRTUAL SCHOOL gefur út vikulegt fréttablað í tölvupósti, sem heitir Spartacus Newsletter. Þar birtast fréttir, greinar og úttekt á ýmsu varðandi UT í menntun og skólastarfi. Hægt er að skoða eldri tölublöð á http://www.spartacus.schoolnet.co.uk/internet.htm og skrá sig í áskrift á þeirri sömu síðu („Subscribe to Education on the Internet“) eða með því að senda tölvupóst til IwantEducation@keepAhead.com
Kjötkveðjuhátíðin í Feneyjum er vefsíða á ítölsku, ensku og frönsku sem fjallar um kjötkveðjuhátíðir (karneval) í ýmsum Evrópulöndum. Sjá http://www.carnivalofvenice.com/it/index.html
_________________________________________________Harry Potter kvikmyndiner vefsíða á vegum BBC og geymir hún ýmsar hugmyndir að kennsluefni í tengslum við kvikmyndina. Þar eru hljóðskrár og myndbandsbútar, ásamt prófi þar sem menn geta reynt þekkingu sína á Harry Potter. Sjá http://www.bbc.co.uk/films/harrypotter/
_________________________________________________Internetið á þýskuer hjálparsíða fyrir foreldra, kennara og krakka í Þýskalandi til að stíga sín fyrstu skref á internetinu. Sumt kann að nýtast þýskukennurum í öðrum löndum. Sjá
http://www.internet-abc.de/daten/html/index.php
_________________________________________________Myndir og vængir er glænýtt samvinnuverkefni stjórnenda „Le Quai des Images“ og „La Main à la Pâte“ (sem bæði fengu fyrstu verðlaun Náms á neti (eLearning) í Lissabon fyrir skömmu). Jafnframt standa ýmsar stofnanir og skólar að þessu verkefni. Verkefnið snýst um ýmislegt sem varðar kvikmyndir og loftsiglingar. Þar má finna fræðsluefni (myndir, texta og kvikmyndir) ásamt verkefnum. Enn sem komið er er efnið einungis á frönsku en má hafa samband við stjórnendur þess á ensku eða frönsku. Sjá http://www.ac-nancy-metz.fr/cinemav/imageaile/
Stjórnendur: David Jasmin, jasmin@inrp.fr og Dominique Coujard, d.coujard@ac-nancy-metz.fr
_________________________________________________UNICEF, The Teachers’ Place, er samvinnuvettvangur kennara sem kenna um sjálfstæði, frið, réttindi barna og ungmenna og félagslegt réttlæti. Þar er að finna kennsluefni, ráðstefnu og hugmyndir að samvinnu á neti. Síðurnar eru á ensku, frönsku og spænsku. Sjá http://www.unicef.org/voy/fr/research/reshome.html
__________________________________________________WWF keppi; Teiknaðu Alpana! Þarna er um að ræða keppni fyrir þá nemendur sem búa í nágrenni Alpanna en jafnframt eru á síðunni leikir, ráðstefna og myndir. Síðan er á þýsku, frönsku, ítölsku og slóvensku. Sjá http://www.kids-for-the-alps.net/
____________________________________________________
ÓSKIR UM SAMVINNU:
Miðjarðarhafið (Le Méditerranéen) er vefrit nemenda sem hefur það meginmarkmið að koma menningu íbúa við Miðjarðarhafið á framfæri. Nú er óskað eftir framlögum um efnið „Skáld frá svæðum við Miðjarðarhafið “ sem senda þarf fyrir 27. mars, til Dominique Bouquet
dominique.bouquet@ac-aix-marseille.fr____________________________________________________
Hefðbundnir leikir er alþjóðleg ráðstefna sem haldin verður í Nantes, Frakklandi, 3. - 5. október 2002. Vilji menn fá nánari upplýsingar, skrá sig eða bjóða sig fram sem fyrirlesara skal hafa samband við stjórnanda ráðstefnunnar, Falsab.Jaouen@wanadoo.fr
____________________________________________________Samskipti í tölvupósti óskast; Skóli í Hollandi óskar eftir samskiptum við annan skóla, í tölvupósti til að byrja með en stefnt skal að því að hittast síðar. Nemendur eru 13 - 14 ára. Heimsíða þessa skóla er á www.rsgsteenwijk.nl
Tengiliður verkefnisins er Geke Reijmerink, hg.reijmerink@hccnet.nl
____________________________________________________Umræða um breytta kennsluhætti; Barnaskólakennarinn Catherine, í Nice, Frakklandi, óskar eftir bréfaskiptum við kollega um breytta kennsluhætti sem ný tækni hefur í för með sér. Netfang hennar er jsaturno@wanadoo.fr
____________________________________________________Skipti á evrum; Kennari á Spáni vill setja á laggirnar verkefni sem snýst um að senda sýnishorn af evru-mynt milli landa svo nemendur sjái hvernig myntin lítur út annars staðar.
Netfang kennarans er treshernandez@teleline.es
____________________________________________________The Internet Fiesta er árleg alþjóðleg hátíð á vefnum sem snýst um sólkerfi og stjörnur. Í ár stendur hún frá 18. til 24. mars. Sjá http://www.internet-fiesta.org/
____________________________________________________Á DÖFINNI
Árleg EDEN-ráðstefnaverður haldin í Háskólanum í Granada, Spáni, dagana 16. - 19. júní 2002. Á ráðstefnunni verður fjallað um ýmislegt sem snertir alþjóðlega samvinnu í fjarkennslu og námi á neti. Frekari upplýsingar fást frá eden@eden.bme.hu
Sjá nánar: http://www.eden.bme.hu
____________________________________________________Fréttasíða Evrópska skólanetsins um ráðstefnur og viðburði tengt menntun og tækni í Evrópu er á http://www.eun.org/events
Loks eru upplýsingar um hvaða stofnanir standa að Evrópska skólanetinu.