Fréttabréf Evrópska skólanetsins nr. 56
10. desember 2001
 
 

Fréttabréfið í heild er hér.
Harpa Hreinsdóttir
 
Í leiðara nefnir Brigitte Parry að nú líði að jólaleyfi og á döfinni sé margt spennandi og áhugavert á næsta ári, t.d. eSchola og  eXplora.


eSchola

Á EMINENT ráðstefnunni (http://eminent.eun.org) og verðlaunahátíð eLearning var opnað nýtt eSchola vefsetur, fyrir eSchola 2002.
Tengiliður er Angela Andersson Angela.andersson@eun.org

Vefsetrið er á  http://eschola.eun.org


Comeniusar-vikan stóð 24. - 27. nóvember og var haldin hátíðleg víða um Evrópu.  Fólk er hvatt til að kynna sér fréttir af vikunni og fræðast um möguleika Comeniusar.
http://comenius.eun.org



Skólanetið (eSchoolnet), á  http://www.eschoolnet.org geymir margt gagnlegt fyrir kennara og skólafólk.  Má þar nefna:

Samstarfsvettvang;
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/Collaboration_eschoolnet/entry_page.cfm?id_area=76

Fréttabréf kennara;
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/Collaboration_eschoolnet/sub_area.cfm?sa=80

Samvinnusvæði;
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/Collaboration_eschoolnet/sub_area.cfm?sa=578

Spjall, ráðstefnur o.þ.h.;
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/Collaboration_eschoolnet/sub_area.cfm?sa=974

Opin verkefni;
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/Collaboration_eschoolnet/sub_area.cfm?sa=577

Tengiliður:
Brigitte.Parry@eun.org


MyEUROPE

Vefkort myEurope;
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/myeurope/content.cfm?lang=en&ov=10091

Ýmislegt um jólin;
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/myeurope/content.cfm?lang=en&ov=9570

Hreinsum Evrópu (umhverfsverkefni fyrir börn og unglinga);
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/myeurope/content.cfm?lang=en&ov=9792

Ráðstefna myEurope;
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/myeurope/content.cfm?lang=en&ov=8289

Þjóðbúningar í Evrópu;
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/myeurope/content.cfm?lang=en&ov=6456

Tengiliður:  Petru Dumitru
petru.dumitru@eun.org


VIRTUAL SCHOOL

Deild fyrir neðri bekkja grunnskóla hélt fund í Brussle 21. - 15. nóvember.  Þar var m.a. tekið saman safn yfir rúmlega 80 ókeypis forrit sem gætu nýst þessu skólastigi.  Listi og krækjur í þessi forrit verður birtur fljótlega.  Einnig er í bígerð að útbúa matsblað fyrir nemendur þar sem þeir geta tjáð sig um forritin.
Sjá:  http://www.eun.org/vs
Tengiliður: Fernand MESDOM
fernand.mesdom@skynet.be



The Trek, Bretlandi, er verkefni sem snýst um loftbelg sem ferðasta um Evrópu.  Verkefnið byggist  á lausnarleitarnámi (problem based learning) og hentar börnum og unglingum.Vefsíðurnar eru á 7 tungumálum.  Sjá http://www.edu.dudley.gov.uk/c2000/

Olivier, enskukennari í Frakklandi, heldur úti skemmtilegum vef sem nýtist enskukennurum, jafnvel öðrum tungumálakennurum.  Sjá http://english.teacher.online.fr/
Nafn og netfang:  Olivier P. Colas
Olivier.Colas@ac-versailles.fr


Eurogame er kennsluefni um landafræði Evrópu, á margmiðlunarformi.  Efnið er tvískipt, annars vegar ætlað 11 - 14 ára og hins vegar 15 - 18 ára.  Sjá http://eurogame.silogic.fr
Tengiliður er  sylvie@silogic.fr


Öryggi í skólanum er hollenskt verkefni sem miðar að því að fá nemendur á aldrinum 10 - 12 ára til að velta fyrir sér spurningunni:  "Hvernig get ég lagt mitt af mörkum til að tryggja öruggar aðstæður í skólanum mínum?"
Nemendur setja sér markmið og allur bekkurinnn vinnur saman að því að ná þeim.  Mánuði síðar segja þeir hvernig gekk, jafnt því sem vel gekk sem illa.
Sjá:  www.mysafeschool.net



Musagora, vettvangur fyrir kennara fornra mála;  Þetta verkefni er styrkt af franska Menntamálaráðuneytinu.  Hér má finna ýmislegt kennsluefni, ásamt ráðstefnum á latínu og forngrísku.
Sjá:  http://www.educnet.education.fr/musagora/

Jólasveinninn á frönsku;  Á þessum vef gefst kostur á að senda jólasveininum bréf og fæst svar frá honum ... á frönsku.  Sjá http://www.csdm.qc.ca/fl/perenoel/
Netfang jólasveinsins:
perenoel@swing.be



Nokkrir ítalskir skólar, úr nágrenni Feneyja, óskar eftir samskiptum í tölvupósti.  Nemendur eru á aldrinum 9 - 11 ára.  Samskiptin ættu að fara fram á ensku eða frönsku.
Sjá:   http://progetti.webscuola.tin.it/multilab/trev05
Tengiliður: Costantini Maria Cristina, edeami@tin.it

Ítalskur barnaskóli óskar eftir samskiptum um vídeóráðstefnur.  Þemað á að vera "Vinátta nemenda um allan heim" og markhópurinn er mjög ung börn.
Áhugasamir hafi samband við Corinna Farchi,
CorinnaFarchi@it.ibm.com


Skipti á heilladýrum, við skóla í Bandaríkjunum;  Kennarinn, Rod Kissinger, segir nemendur sína vera 10 - 11 ára gamla og þeir vilji gjarna skiptast á uppstoppuðum leikföngum (böngsum eða öðrum dýrum)  við bekki í Evrópu. Hver nemandi í bekknum fær að hafa dýrið með heim eina nótt, ásamt stafrænni myndavél.  Síðan ættu nemendur að skrifa texta og myndskreyta með tölvutæku myndunum.  Textar og myndir væru svo send skólanum (bekknum) sem skaffaði dýrið.    Jafnframt verður afraksturinn birtur á vefsíðu.
Áhugasamir geta haft samband við Rod á  kissinger@spsmail.org


Ferðumst saman er alþjóðlegt verkefni, sett upp í samvinnu við samtök landafræðikennara á Ítalíu.  Nemendur á aldrinum 9 - 19 ára rannsaka umhverfi sitt, útbúa kort fyrir ferðalanga um eigið land og bjóða jafnöldrum að ferðast með sér.  Sjá  www.aiig-lombardia.net
Tengiliður er Claudia Gaeta,  a.minoli@inwind.it.


Ritunarsamkeppni í Belgíu;  Ætluð nemendum 11 ára til 18 ára.  Nemendur setja sig í spor einhverrar persónu og skrifa dagbók í orðastað hennar.  Framlög verða að vera á frönsku.  Frestur til að skila inn framlögum rennur út 28. janúar 2002.  Sjá  http://www.restode.cfwb.be/francais  (Smelltu á “Concours d’écriture”)
Tengiliður er  Jean-Luc Davagle, jld@leaweb.org



Á döfinni:  Minnt er  á síðu Evrópska skólanetsins yfir ráðstefnur og viðburði á næstunni, á
http://www.eun.org/events



Í lok fréttabréfsins eru upplýsingar um hvaða stofnanir standa að Evrópska skólanetinu.