Fréttabréf Evrópska skólanetsins nr.
55, 20. nóvember 2001
Helstu atriði
|
18. nóv. 2001 Harpa Hreinsdóttir |
Í leiðara auglýsir Birgitte Parry eftir stöðum eða skólum þar sem sjá megi útilistaverk sem minni á Evrópusamfélagið. Þessi auglýsing er að beiðni ljósmyndarans Yann Artus Bertrand sem hefur áhuga á að mynda slík verk. Vefsíða Bertrands er á www.yannarthusbertrand.com og hafa má samband við Sibylle d’Orgeval,
sibylle@yannarthusbertrand.com
eSKÓLANET (eSCHOOLNET), www.eschoolnet.orgKynnt er formleg opnun eSkólanetsins sem verður í Brussel þann 29. nóvember. Þetta skólanet á að tengja saman evrópska kennara og gera mönnum kleift að læra af reynslu hver annars. Jafnframt opnuninni hefst keppni í teiknimyndagerð á vegum Evrópska skólanetsins. Þeir sem vilja frekari upplýsingar um keppnina ættu að hafa samband við Alexu Joyce, Alexa.joyce@eun.org
Nánari grein er gerð fyrir nokkrum þáttum eSkólanetsins;
Fréttir um nám á neti (eLearning News); Hér munu birtast fréttir um hvaðeina sem snertir nám og kennslu á netinu. Senda má fréttir til Alexu Joyce, á netfangið news@eun.org
Sjálf fréttasíðan er á http://news.eun.orgTímarit í sýndarveruleika (Virtual Magazine) ætlað kennurum er á http://www.eschoolnet.org/magazine. Þar má finna umfjöllun um eftirfarandi:
- Viðburðir (Events) s.s. ráðstefnur, sýningar, fundir o.fl. eru kynntir á http://www.eun.org/eun.org2/goto.cfm?sid=774
- Fréttir af samstarfsverkefnum og góð ráð þar að lútandi má finna á http://www.eun.org/eun.org2/goto.cfm?sid=775
- Um endurmenntun má fræðast á http://www.eun.org/eun.org2/goto.cfm?sid=776
- Sjónum beint að nýrri tækni (Techwatch) geymir fræðslu um nýjasta nýtt í kennslu, á http://www.eun.org/eun.org2/goto.cfm?sid=777
- Fréttabréf á vegum Evrópska skólanetsins má nálgast af http://www.eun.org/eun.org2/goto.cfm?sid=778
- Stefnur í skólamálum og styrkir eru kynnt á http://www.eun.org/eun.org2/goto.cfm?sid=779
- Skóli morgundagsins (Tomorrow's school) fjallar um framtíðarsýn í skólmálum, http://www.eun.org/eun.org2/goto.cfm?sid=780
Hægt er að senda fréttir til Alexa Joyce, fréttastjóra, á alexa.joyce@eun.org
- Í skólastofunni (In The Classroom) flytur fréttir af ýmsu sem gerist í skólum í Evrópu, http://www.eun.org/eun.org2/goto.cfm?sid=781
ESCHOLA 2002 verður formlega sett í Salon de l’Education, París, kl. 11.30, þann 22. nóvember. Aðalviðburðir eSchola 2002 standa 8. apríl til 9. maí. Sjá nánar: http://eschola.eun.org
og Salon de l’Education Paris, http://www.salon-education.org/
COMENIUS-VIKAN stendur 24. - 27. nóvember. Í Brussel verður mikið um dýrðir af þessu tilefni, sjá nánar
http://comenius.eun.org og http://europa.eu.int/comm/education/socrates/comenius/
Almennar upplýsingar um hvað Comenius er má fá af http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/cs_about/sub_area.cfm?sa=346
Svissnesk menntagátt hefur verið opnuð. Af henni eiga kennarar, nemendur og annað skólafólk að geta fengið upplýsingar, ráð og ábendingar um margt í kennslu og námi. Sjá http://www.educanet.ch
_________________________________________________Menntamálaráðuneytið í Lúxembúrg hefur opnað menntagátt, sjá http://myschool.education.lu
Stjórnandi hennar er Daniel Weiler, weiler@myschool.lu_________________________________________________
Vakin er athygli á listasýningu í tengslum við atburðina á New York þann 11. september. Sýningin er á vegum 4 myEUOROPE-skóla. Hana má sjá á http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/myeurope/content.cfm?lang=en&ov=9815
Ennfremur er minnt á síðu myEuorpe, á http://myeurope.eun.org
_________________________________________________Fréttir af frönsku samvinnuverkefni, sem felst í eftirfarandi; Nemendur kynnast Quickplace hugbúnaði IBM, semja síðan kynningu á sér sjálfum, búa svo til sýningar (texta og myndir) um eitthvað sem tengist menningu eigin þjóðar og loks vinna þeir saman að verkefni sem tengist hagfræði. Nú eru uppi hugmyndir um að nýta fjölbreyttari verkfæri til þessarar samvinnu, t.d. vídeó-ráðstefnur. Hafi menn áhuga á að taka þátt í svona verkefni (sem virðist fara fram á ensku) er hægt að hafa samband við stjórnandann Bernard Garcin, bernard-garcin@wanadoo.fr.
Vefsíða verkefnisins er á http://www.ac-grenoble.fr/wkto
_________________________________________________
Cyberschoolbus, UNO, er vefsíða um menntun, rekin á vegum Sameinuðu þjóðanna. Þar á að vera hægt að leita fanga í efni til kennslu. Óskað er eftir að kennarar vegi og meti efnið. Að launum fá þeir sent alls kyns kynningarefni um Sameinuðu þjóðirnar. Sjá nánar
http://www.un.org/Pubs/CyberSchoolBus/survey/surveyq.html_________________________________________________
Hefbundnir leikir er vefur sem rekinn er frá Bretaníuskaganum í Frakklandi. Þar er hægt að fræðast um leiki í ýmsum héruðum Evrópu og má gjarna senda inn eigið framlag. Vefurinn er á http://www.bzh5.com/falsab/. Tengiliður vefjarins er Falsab Jaouen, Falsab.Jaouen@wanadoo.fr.
Fáðu þér félaga (Twin up) í Ísrael, snýst um að koma á tengslum milli hópa fólks eða samfélaga. Sjá
http://www.jajz-ed.org.il/twin/twintro.html
Almennar upplýsingar um fáðu þér félaga- verkefni má fá á http://www.jajz-ed.org.il/twin/twinproj.html
Frekari upplýsingar gefur Gila-ab@jazo.org.il
Mikilvægt í mínum augum, er verkefni í barnaskólanum Itä-Pakilan ala-aste, í Helsinki, Finnlandi, sem snýst um að búa til klippimyndir í tölvu. Til þess vantar stafrænar myndir sem víðast úr Evrópu, helst með einlitum bakgrunni. Nánari upplýsingar, gefur Tommi Tikka, tommi.tikka@edu.hel.fi, sem og tekur við framlögum.
Eignist vini á Ítalíu; Þetta er ósk um pennavini fyrir 10 - 11 ára gamla krakka. Bréfaskipti fara fram á ensku. Hafið samband við Raffaella Berlucchi, elmape@spedernet.it
Ódysseifs geim-verkefnið er spil eða tafl (board game) sem snýst um geiminn og stjörnufræði. Það er ætlað 8 - 14 ára nemendum og er á vegum ESA (European Space Agency, eða Evrópsku geimferðastofnunarinnar). Nemendur þurfa að finna spurningar og svör, prófa spilið og bera reynslu sína saman við aðra skóla, í tölvupósti. Úr sjóði nemenda verður svo valið besta efnið og notað til að fullgera þetta spil, sem á a koma út annað hvort í júní eða desember 2002. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessari vinnu hafi samband við Gilles CAPPE,
gilles.cappe@wanadoo.fr
Smásögur í sýndarheimi 2002 er keppni í að skrifa smásögur í samvinnu. Þær eiga að vera á frönsku, ensku, þýsku, spænsku eða arabísku. Á sjötta þúsund nemendur frá 30 löndum hafa þegar spreytt sig á þessu verki. Þeir eru á aldrinum 8 - 18 ára. Sjá nánar http://www.wanadoo-edu.com/participer/romansvirtuels/romansvirtuels.asp
Til að skrá sig skal skrifa til webmaster@wanadoo-edu.com
Listasamkeppni fyrir ungt fólk stendur frá 25. nóvember 2001 til 10. febrúar á næsta ári. Veittar verða viðurkenningar fyrir tvenns konar verk, annars vegar myndlistarverk og hins vegar bókmenntaverk. Keppnin er opin öllum Listaverkin eiga að snúast um mannréttindi og jafnrétti, baráttu gegn ofbeldi og hryðjuverkum o.fl., ásamt því að höfða sérstaklega til ungs fólks í Kirgisíu. (Í fréttabréfi EUN fylgir engin frekari skýring en ætla má að stjórnvöld í Kirgisíu (Kirgizistan) standi á einhvern hátt að þessari keppni.) Nánari upplýsingar gefur Lubov Matytsina mlubov@hotmail.kg
Á DÖFINNIMinnt er á síðu Evrópska skólanetsins um viðburði og ráðstefnur í Evrópu, á http://www.eun.org/events
Í lok fréttabréfsins er tíundað hvaða aðilar standa að Evrópska skólanetinu.