Fréttabréf Evrópska skólanetsins nr. 54,  4. nóvember  2001
Helstu atriði

Hér er fréttabréfið í heild (á ensku).  Bent er á að leita nánari upplýsinga um verkefnin þar og þaðan er einnig krækt í slóðir viðkomandi verkefna. 
31. október  2001
Harpa Hreinsdóttir
 
Í leiðara kynnir Brigitte Parry nýja útgáfu á vefsetri Evrópska skólanetsins, þar sem mun einfaldara er að rata og finna upplýsingar.  Sjá http://www.eschoolnet.org.  Jafnframt óskar Brigitte Ednu frá Ísrael til hamingju með verðlaun fyrir kennsluverkefni í upplýsingatækni.

Kynning á Skólanetinu (eSchoolnet, þ.e.a.s. ný útgáfa á vefsetri Evrópska skólanetsins):

Frumkvæði og starf í skólum;  Um þennan hluta sér Anna Maria Fichera (sem talar ítölsku, þýsku og ensku), annamaria.fichera@eun.org.  Þessi hluti vefsins er skipulagður eins og bóksafn.
Sjá http://www.eschoolnet.org
_________________________________________________

Bjargir og leitarvél;  Um þennan hluta sér Magnús Sæmundsson (sem talar ensku, íslensku og sænsku),
magnus@eun.org

Á heimasíðu Skólanetsins er titilmyndin hluti af frægu listaverki.  Sé smellt á hægra horn titilmyndar opnast síða með upplýsingum um listaverkið og mynd af því öllu.  Vakin er athygli á þessu, einkum fyrir listgreinakennara.
Síðarmeir mun titilmynd krækja í fjölbreyttara kennsluefni, sem verður ætíð kynnt nánar á
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/Resources_eschoolnet/sub_area.cfm?sa=760

Bjargir (efni sem nýtist í ýmsum kennslugreinum) er að finna á: http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/Resources_eschoolnet/entry_page.cfm?id_area=77

Efninu er skipt í þrennt:

_________________________________________________
 

Skólastarf og verkefni;  Um þennan hluta sér  Petru Dumitru (sem talar ensku, rúmensku og frönsku),
Petru.dumitru@eun.org
Krækt er í ýmiss konar verkefni og ábendingar um verkefni á
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/Resources_eschoolnet/sub_area.cfm?sa=711

myEUROPE tengist þessum þætti Skólanetsins og er þar efst á baugi;

_________________________________________________

Fólk, samskipti og samvinna;  Um þennan þátt sér Brigitte Parry (sem talar ensku og frönsku), Brigitte.parry@eun.org
 

__________________________________________________

Námskeið og endurmenntun;  Um þennan þátt sér Anne Gilleran (sem talar ensku og frönsku),
Anne.gilleran@eun.org

__________________________________________________

Fréttir;  Um þær sér Alexa Joyce (sem talar ensku og frönsku), Alexa.joyce@eun.org

_________________________________________________

ESCHOLA

eSchola viðburðurinn stendur 8. apríl til 9. maí 2002.  Nánari upplýsingar eru á  http://eschola.eun.org.
Má gerast áskrifandi að  eSchola-fréttum á http://eschola.eun.org/subscribe og skrá skóla nú þegar á http://eschola.eun.org/register
_________________________________________________

EXPLORA

Nánari upplýsingar verða  á http://explora.eun.org undir lok nóvember.  Þetta er keppni fyrir nemendur og snýst um að lið 3- 6 nemenda búi til margmiðlunarefni um hvað sem er.  Bestu lausnir eru verðlaunaðar.

_________________________________________________
 

ÓSKIR UM SAMSTARF

Netd@ys vikan í ár stendur 19. - 25. nóvember og verður Netd@ys formlega sett í Chapelle des Brigittines í Brüssel.  Aðalþemu Netd@ys núna snúast um æsku, eða ungt fólk, í tengslum við Netið, borgararéttindi og menningarflóru Evrópu.  Skrá má verkefni til þátttöku í Netd@ys á www.netdays2001.org
 eða í tölvupósti til netdays@cec.eu.int

Netd@ys í Ástralíu stendur frá 22. okt. - 25. nóv. 2001 og má fræðast um það á http://netdays.edna.edu.au/2001

____________________________________________________

Vinir sættast er verkefni sem snýst um hvernig hægt er að sættast eftir deilur.  Nemendum er boðið að lýsa slíku ferli, á ensku.  Tengiliður verkefnisins er Natasha Cherednichenko, julia@host.kr.ua

____________________________________________________

Keppni í gerð leiðarvísis fyrir ferðamenn er haldin á vegum frönskudeildar Virtual School, http://www.en.eun.org/vs/french/french.html, í samvinnu við
Canal Rêve,http://babelnet.sbg.ac.at/canalreve,  sem er sérstök rás fyrir þá sem kenna og læra frönsku sem erlent mál.  Keppnin felst í að búa til leiðarvísi, á frönsku, fyrir ferðamenn.  Frestur til að skrá sig rennur út í lok nóvember.  Sjá  http://babelnet.sbg.ac.at/canalreve/event6

____________________________________________________

Listamenn, listir og menninger verkefni sem felst í því að nemendur kynna listamenn frá sínu landi og kynnast öðrum evrópskum listamönnum.  Jafnframt eiga nemendur að tjá sig með eigin listaverkum, sem síðan verða send sem farandsýning milli þátttökulanda.   Verkefnið fer fram á ensku.  Tengiliður er  Grete Jensen,  grete.jensen@sola.kommune.no

____________________________________________________

« Courir La Francophonie » er verkefni til að koma frönsku á framfæri og koma á fót skólaleikvelli í Senegal.  Verkefnið stendur frá 12. nóv. - 15. mars og fer fram á frönsku.  Rétt til þátttöku hafa nemendur frá 10 - 16 ára aldri.  Frönskukennarar, sem og listgreina-, sögu-, landafræði-, raunvísinda- og upplýsingatæknikennarar eru hvattir til að taka þátt.  Frestur til að skrá sig er til 9. nóvember. Nánari upplýsingar má fá á http://www.courirlafrancophonie.org
____________________________________________________

Il Mondo di Fantasia  er tímarit á vefnum um menntun og þrívíddargrafík.  Tímaritið er á ensku og ítölsku.  Fólk er hvatt til að skrifa um reynslu sína af notkun þrívíddarmynda í menntun og skólastarfi , sjá
http://web.tiscali.it/3dfantasia/index.htm

____________________________________________________

Umræðuhópar skóla á heimsvísu er vettvangur meir en 2500 skóla, frá 39 löndum þar sem skipst er á skoðunum og mynduð tengsl milli skólafólks.  Sjá nánar á  http://www.mimosasoftware.com

____________________________________________________

Á DÖFINNI

Minnt er á síðu Evrópska skólanetsins yfir ráðstefnu og viðburði í Evrópu, á
http://www.eun.org/events
 

Loks er að finna upplýsingar um Evrópska skólanetið, s.s. hvaða stofnanir standa að því.