Fréttabréf Evrópska skólanetsins nr. 53, 11. október  2001
Helstu atriði

Hér er fréttabréfið í heild (á ensku).  Bent er á að leita nánari upplýsinga um verkefnin þar og þaðan er einnig krækt í slóðir viðkomandi verkefna. 
8. október  2001
Harpa Hreinsdóttir

 
Í leiðara segir Brigitte Parry að nú sé skólastarf  2001 - 2002 komið í fullan gang og fullt af verkefnum á döfinni.  Hún auglýsir eftir myndbandsbútum, á tölvutæku formi, sem sýni skólalíf í löndum Evrópu.  Myndböndin mega ekki vera lengri en 30 mín. og þurfa að vera á ensku, frönsku eða þýsku.  Sjá nánar enska texta fréttabréfsins.
 
FRIÐARFRÆÐSLA

Slóðir sem nýtast kunna kennurum:

Síða um viðbrögð Evrópusambandsins við hryðjuverkunum  þann 11. september:
http://europa.eu.int/geninfo/keyissues/110901/index.htm

UNESCO-skólar í Slóveníu (á mörgum tungumálum);
http://www.asp-mreza.edus.si/kik2001/

Safn fallegra mynda:
http://thankyou.fast-networks.net/

Samtök um friðarfræðslu:
http://www.evergreen.edu/user/copred/SEP11.html

Svissnesk síða um rannsóknir í öryggismálum og deilum (á ensku og þýsku);
http://www.fsk.ethz.ch/news/news.htm

Alþjóðleg samtök um áfallahjálp (á ensku);
http://www.crisisweb.org/

Uppeldisfræðilegt efni (á frönsku);
http://www.clemi.org/nouveau.html

Sérstök síða helguð von, ætluð börnum á sjúkrahúsum;
http://www.macadam.nl/Webteam/korene.htm

Friður og friðsælar kennslustofur (á ensku);
http://homepages.ihug.com.au/~masonda/

Að læra og kenna um frið (áströlsk síða);
http://homepages.ihug.com.au/~masonda/UNESCOpack/contents/index.htm

Worldlink Online (enska);
http://www.nova.edu/worldlinkonline/html/un_day/worldlink_events.htm

Sérstök síða um Bandaríkin (á frönsku);
www.educnet.education.fr/documentation/dossier/usa.htm

Vonin er vörn barna gegn vondum heimi (á ensku);
http://www.globalschoolnet.org/

Ýmis efni sem hlaða má niður, frítt (á ýmsum tungumálum);
http://www.martinauer.net/KINDER/krieg/

Wired News, safn veffrétta (á ensku);
http://www.wired.com/news/print/0,1294,47184,00.html

myEurope verkefni;
Höldumst í hendur;
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/myeurope/content.cfm?lang=en&ov=6465
Segðu „Ég elska þig“
http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/myeurope/content.cfm?lang=en&ov=6459

Hollensk síða með ýmsu kennsluefni, undir titlinum „Árásir á umburðarlyndi“ (á hollensku);
http://www.kennisnet.nl/docent/
NIEUWS - LEERMIDDELEN - AANSLAGEN IN AMERIKA
---------------------------------------------------------------------------------------

eLEARNING VERÐLAUNIN

Verðlaunaveiting fer fram í Lissabon þann  6. desember 2001.  Nú eru 22 verkefni alls  í úrslitum fjögurra verðlaunaflokka (þar á meðal er íslenska verkefnið Lífsferlar náttúrunnar).  Fólk er hvatt til að fylgjast með þessu, á  http://eschola.eun.org

---------------------------------------------------------------------------------------

VÍDEÓRÁÐSTEFNUR

Yoko Takagi, yoko@jearn.jp, reynir að koma á samskiptum milli skóla í Japan og skóla í Evrópu, Ástralíu, Suður-Afríku, Taíwan og Hawaí.  Áhugasamir hafi samband við hana.

Lisa Perez, Von Steuben High School,  í Chicago óskar eftir samskiptum á vídeóráðstefnu.  Um er að ræða fjóra bekki 15 - 16 ára unglinga.  Samskiptin eiga að fara fram á frönsku.  Einnig er áhugi á bréfaskiptum í tölvupósti og jafnvel sameiginlegum vefsíðum.  Netfang Lisu er  Lperez59@aol.com.

----------------------------------------------------------------------------------------

VERKEFNI

Kidlink friðarverkefnið býður börnum upp á að tjá sig um hryðjuverkin  í New York og Washington, á
 KIDCLUB dagbókinni;  senda inn ljóð, sögur eða annað um ofbeldi, stríð og frið; segja hvernig vingast má við börn af ýmsum þjóðernum. Sjá:
http://galaxy.kidlink.org/kidspace/start.cfm?HoldNode=696

Heimurinn, verkefni í Hollandi, snýst um að skoða heiminn frá sjónarhóli listamanna, hagfræðinga, lækna eða heimspekinga.  Verkefnið er þverfaglegt og ætlað unglingum frá 14 ára til 19 ára.
Tengiliður hefur netfangið  j.clemens@aps.nl
Vefur verkefnisins (á hollensku og ensku) er á  http://heelaldemo.aps.nl/

Eratosþenes uppgötvaði árið 205 fyrir Krist hvernig væri unnt að mæla ummál jarðar.  Nemendur geta nú endurtekið tilraun/aðferð Eratosþenesar.  Áhugasamir hafi samband við Emmanuel di Folco,  edifolco@eso.org

Telelearn II, Grikklandi miðar einkum að því að efla notkun nútíma samskiptatækni og veftækni í barnaskólum.  Þeir sem vilja kynnast þessu nánar eða geta lagt af mörkum reynslu sinnar hafi samband við Nancy, ineag@otenet.gr
Vefsíða verkefnisins er á  http://www.ineag.gr/Research/Telelearn2/indexEn.htm
 

Á okkar tímum, Hollandi, er árlegt internetverkefni fyrir framhaldsskóla.  Boðið er upp á ráðstefnuspjall, gagnvirkt nám, sýndarferðalag í tíma og verkefni í skapandi hugsun.  Verkefnið snýst um samskipti fólks af fjölbreyttum toga og sprottið úr margs konar menningu.
Sjá: http://www.timeproject.org/ Sérstaklega er bent á efni tengt friðarfræðslu á http://www.timeproject.org/information/information.htm
 

Associated Schools er net  á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.  Á sjöunda þúsund menntastofnanir tengjast þessu neti og boðið er upp á ýmiss konar verkefni.  Sjá  http://www.unesco.org/education/asp/

-------------------------------------------------------------------------------------------------

BJARGIR
 

Síða á vegum sendinefndar Evrópubandalagsins í Bandaríkjunum,  geymir miklar upplýsingar sem gagnast gæti kennurum, m.a. um ferðalög, nám, störf o.fl. í Evrópu.
http://www.eurunion.org/infores/teaching/Young/EUYoungPeople.htm
 

Scuola In Web er síða Ítalska menntanetsins með mörgum krækjum í efni sem nýtast mun kennurum og nemendum í margskonar fögum, sjá  www.scuolainweb.it
 

Gagnvirka hjartað er efni sem hlaða má niður og skoða í eigin tölvu.  Eins og nafnið bendir til er þetta kennsluefni um starfsemi hjartans. Sjá
http://www.new-media.co.uk/scienceyear/heart.asp or www.scienceyear.com

Sjá, heyra og gera sér í hugarlund  er sýning á nokkrum verka finnska listamannsins Hugo Simberg, ætluð sjónskertum. Sjá  www.fng.fi/hugo.htm
 

Franska menntamálaráðuneytið hefur safnað saman efni sem nýtist í kennslu fatlaðra.  Síðan er á frönsku en velja má  “Europe et International” til að komast í krækjusafn í vefsíður annarra landa. Sjá 
http://www.education.gouv.fr/thema/special/default.htm

Teachers’ International Professional Development  virðist vera einhvers konar styrkjakerfi fyrir starfandi breska kennara og er útskýrt á  http://www.dfee.gov.uk/tipd/backgov.cfm?Doc=289#summary
 

ÓSKIR UM SAMVINNU

Tónlistarkennarinn Michel Lemeu, í grunnskóla á Bretaníuskaga í  Frakklandi,  undirbýr nú tvöfalt Comeniusarverkefni;  annars vegar  samstarfsverkefni um þjóðmenningu og mállýskur, hins vegar tungumálaverkefni um ensku, frönsku, spænsku og þýskur.  Hann óskar eftir samstarfsaðilum hið fyrsta.  
Áhugasamir hafi samband við Michel á  michel.lemeu@ac-rennes.fr

Slóvenskur skóli óskar eftir samstarfsaðila til að ganga inn í Comeniusar-verkefni sem þegar er hafið.  Verkefnið heitir „Matur, veisluhöld og skemmtun í landi mínu“.  Áhugasamir hafi samband við netfangið
guidodemerre@yahoo.com
 

Alþjóðlegt dagblað ungmenna, rekið af franska menntamálaráðuneytinu:  Nemendur eiga að skrifa grein um „Hver er baráttan fyrir friði“ (?) og senda inn fyrir 25. október, í tölvupósti eða á faxi.  (Upplýsingar á hvaða tungumáli þetta á að vera vantar.) Stjórnandi verkefnisins er Marif Poulain, m.poulain@clemi.org
Senda á greinar til:
Sarah Benamram, Pierre Dupanloup, Gabriel Thullen
dupanloup.p@cnv.ch
Fax : 41/22 779 28 80

Nemendaskipti við framhaldsskóla á SpániSkólinn heitir „I.E.S. LA Serra“ og er í  Mollerussa - Lleida, smáborg vestan við  Barcelónu.  Samskipti eiga að snúast um fjölbreytta tungumálaflóru Evrópu og evrópskar listir. Nemendur eru 16 - 17 ára gamlir.  Áhugi er á að fjármagna þessi nemendaskipti með Comeniusar styrk.
Tengiliður er Ana Rivera,  arivera@pie.xtec.es
 

Verkefni um eðlisfræði og upplýsingatækni, GrikklandiMeiningin er að tengja saman framhaldsskóla og háskóla og sækja um Minervu-styrk til að þróa þetta net skóla.  Áhugasamir hafi samband við  Anestis Papadopoulos, aip63@spark.net.gr, sem fyrst.

Listsýning, Slóveníu;  Verkefnið snýst um að safna eins mörgum listaverkum af ýmsum toga og frá eins mörgum löndum og kostur er.  Skólar eru beðnir að takmarka þátttöku sína við 9 listaverk.  Nemendur allt að 16 ára aldri mega taka þátt.  Listaverkin verður að senda á tölvutæku formi.  Listsýningin verður formlega opnuð í maí en áður verður hægt að skoða jafnóðum hvað kemur inn.  Tengiliður er viljenka.savli@guest.arnes.si
Sjá nánar http://www2.arnes.si/~osngso3s/artgallery_e.htm
 

Evrópska skólablaðið; franska samsteypan J.Presse býður framhaldsskólanemendum að senda inn hugleiðingar sínar um skólamál, á hvaða tungumáli sem er.  Senda má texta eða myndir;  í tölvupósti, faxi eða sniglapósti.
Nánari upplýsingar gefur Larissa (fdelaire@jpresse.org) og einnig má skoða vefsíðuna http://www.jpresse.org
----------------------------------------------------------------------------------------

Á DÖFINNI

Margmiðlunarhátíðin Perseo verður formlega sett við hátíðlega athöfn við þing Evrópuráðsins í  Strasbourg, Frakklandi, þann 23. október 2001.  Hátíðinni er ætlað að höfða til ungs fólks og hvetja það til að tjá sig á ýmsum tungumálum með hjálp nýrrar tækni.  Frekari upplýsingar má fá frá  icsociety@tin.it
 

Atelier de Lecture, Belgíu, snýst um að fá krakka á aldrinum 11 - 18 ára til að skrifa dagbókarbrot í orðastað ímyndaðrar persónu.  Dagbókarskrifin verða að vera á frönsku.  Þetta má senda inn fyrir 28. janúar 2002, í faxi, tölvupósti, á vefsíðu eða sniglapósti.  Nánari upplýsingar gefur  Jean-Luc DAVAGLE jld@leaweb.org
Vefsíða með frekari upplýsingum er á www.restode.cfwb.be/francais
 

Babelnet kynnir nýja spænskukeppni ”Español con Carlitos”. Verkefnið snýst um að lýsa heimabyggð á spænsku og verður afrakstrinum safnað í stóran alþjóðlegan ferðamálavef ætlaðan ungu fólki.  Verðlaun verða veitt fyrir bestu framlög. Sjá nánar  http://babelnet.sbg.ac.at/carlitos/

Minnt er á upplýsingasíðu um ráðstefnur og viðburði í Evrópu, á http://www.eun.org/events/
 

Fréttabréfið endar á upplýsingum um hvaða stofnanir standi að Evrópska skólanetinu.