Fréttabréf Evrópska skólanetsins nr.
52, 24. sept. 2001
Helstu atriði
|
22. september 2001
|
Í leiðara sendir Birgitte Parry innilegar samúðarkveðjur til amerískra áskrifenda vegna hinna hörmulegu atburða í Bandaríkjunum þann 11. september. Vegna þeirra atburða er sérstakur hluti fréttabréfsins helgaður friðarfræðslu og friðarumræðu.
Hér er séstakt krækjusafn yfir síður sem tengjast friðarumræðu, kennsluefni tengt friði á jörðu og síður þar sem nemendur og aðrir tjá viðbrögð sín við hryðjuverkunum í Bandaríkjunum:
Peace education, UNO
http://www0.un.org/cyberschoolbus/peace/index.aspPeace education in UNICEF
http://www.unicef.org/pdeduc/education/peace_ed.htmPeace is in our hands, UNESCO
http://www3.unesco.org/iycp/Red Cross International
http://www.redcross.org/Nobel Peace Prize winners
http://almaz.com/nobel/peace/alpha.htmlThe official Mahatma Gandhi web site
http://www.mkgandhi.org/Swedish Network’s discussion forum
http://www.skolverket.se/katastrof/katastrof.shtmlFrench ministry of Education, articles for teachers
http://www.educnet.education.fr/actu/pr-crash.htmSpeech given by the Norwegian Prime Minister
http://www.dep.no/smk/norsk/aktuelt/taler_statsmin/001001-090216/index-dok000-n-n-a.htmlIceland, invitation to a peace action
http://skolavefurinn.is/lok/kennarar.htmGermany, discussion for children
http://www.kidstation.de/index.htmlArts, Swedish pupils express their sorrow
http://www.alexandersajt.koping.se/europeNorway, "Terroraksjonen i USA", pupils from the whole world write about their reactions
http://www.skolenettet.no
eLEARNING VERÐLAUNIN
Búið er að velja verkefni sem keppa til úrslita í hinum 4 flokkum í verðlaunasamkeppni eSchola. Menn eru hvattir til að fylgjast með eSchola-síðunni, á http://eschola.eun.org
myEUROPE
Innan skóla eru síður með kynningum á þeim skólum sem standa að myEUROPE.
Sjá http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/myeurope/content.cfm?ov=8138&lang=enUmræðuvettvangur alheimsborgara um frið
Menn eru hvattir til að taka þátt í umræðunni, á
http://www.eun.org/eun_forum/forum.cfm?id_template=8140&cpt=1&oid=8140
VERKEFNIMontage Plus verkefni; Þetta er breskur vettvangur fyrir kennara og nemendur þar sem sækja má sér verkfæri, samstarfsaðila og taka þátt í allskyns verkefnum. Finna má efni fyrir alla aldurshópa og í öllum námsgreinum. Sjá
http://www.montageplus.co.uk/projects/
Dudley Challenge Europa er sem stendur sett upp sem ferð í loftbelg umhverfis Evrópu, í sýndarheimi vitaskuld. 10 lönd og 10 borgir verða heimsótt. Á síðunum er að finna allskonar verkefni og vísbendingar handa nemendum um næsta ákvörðunarstað. Verkefnin fjalla mörg um menningu þessara þjóða. Í nóvember birtist annar hluti á þessum síðum, þ.e. The Trek sem ætlaður er ungum lesendum og byggir á ferð frá upptökum Rínar til ósa hennar við Norðursjó. Í þessum hluta verður líka komið inn á reikning og undirbúin gildistaka evrunnar sem gjaldmiðils.
Sjá http://www.edu.dudley.gov.uk/c2000
Heimspeki í kennslustofunni er eftir ítalskan kennara en frönsk þýðing er væntanleg fljótlega. Þetta er merkilegt framtak og eru menn hvattir til að skoða síðuna, á http://dolanf.monrif.net/
Ungir fréttaritarar er verkefni sem snýst um að nemendur geta skráð sig sem fréttaritara, síðan safna þeir efni og skrifa fréttir sem allar verða tengdar saman. Umfjöllunarefnið eru umhverfismál. Hægt er að skrá sig í þetta verkefni frá 1. september til 15. október. Sjá http://www.youngreporters.org
ÓSKIR UM SAMVINNU
Námskeið (Workshop) um gæði náms á vef verða haldin í 3 vikur, frá 17. september 2001. Þau eru haldin á vegum European Treasury Browser- verkefnisins (http://etb.eun.org) og Evrópska skólanetsins (http://www.eun.org). Námskeiðin eru þrjú talsins og bera yfirskriftina:
Quality standards set by communities of knowledge are they conservative? (lauk 22. september), CEN/ISSS Learning Technologies Workshop (endanlegur titill ákveðinn seinna, stendur 24. - 29. september) og Recommendation on Quality Assurance and Selection of resources for the ETB-network (stendur 1. - 6. október).
Hægt er að skrá sig á http://www.en.eun.org/eun.org2/eun/community/entry_community.cfm?area=65,
(smellt á JOIN!) eða með því að senda póst til etb@eun.org með efnislínunni QUALITY!
Tungumálaþraut á Internetinu er verkefni franskra kennara í tilefni Evrópska tungumáladagsins þann 26. september 2001. Þetta er í annað sinn sem þeir vinna slíkt. Á síðunni verða ýmsar þrautir fyrir nemendur sem læra þýsku, ensku, portúgölsku, spænsku eða frönsku sem erlent tungumál. Verkefnum er skipt í þrennt eftir skólastigum. Hver þraut er 20 spurningar um eitthvert ákveðið efni.
Sjá http://www.ac-versailles.fr/pedagogi/defi
Tengill: Olivier.Colas@ac-versailles.fr
Umræða um réttindi barna og annað þeim tengt stendur á vegum Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna út september, á http://www.unicef.org/voy/misc/chforum.html
Prof-Inet er verkefni rekið í Quebec, Kanada, og ætlað frönskumælandi skólum. Þarna má finna krækjur í skóla, fjölbreytt verkefni og dæmi um kennsluefni. Sjá http://www.cslaval.qc.ca/prof-inet/index.asp
Tengill: Jean-Guy Dufort, jgdufort@vl.videotron.caÞrjár óskir um tölvupóstsamskipti, frá Hollandi, tengdar verkefninu he Image of the Other, sem fer fram á ensku, þýsku eða frönsku.
Fyrst er auglýsing frá skóla sem vill skrifast á um þetta á ensku. Um er að ræða fjóra hópa af stelpum og strákum, 13 - 14 ára gömlum, sem vilja byrja bréfaskipti um þetta í október.
Tveir skólar vilja reka verkefnið undir heitinu Das Bild des Anderen, sumsé á þýsku. Þeir nemendur eru annars vegar á aldrinum 14 - 15 ára og hins vegar 15 - 17 ára. Þeir vilja hefj verkefnið í mars á næsta ári.
Áhugasamir hafi samband við Marjo Bollen, ICT-coordinator RSG Broklede, marjo.bollen@wxs.nl
Sjá http://users.educ.uva.nl/henks/image/teacher.html
Skapandi listir á tækniöld er verkefni barnaskóla á Englandi. Verkefnið á að snúast um sköpun og listir, en jafnframt verði þessu miðlað með nýrri tækni og samskipti höfð á Internetinu, þ.á.m. um vídeóráðstefnu.
Tengillt: Elaine, ej.bowen@talk21.com
Framhaldsskólakennari í Magdeburg, Þýskalandi, leitar að nemendum í Frakklandi eða Sviss sem vilja skrifast á við nemendur hennar, sem eru 17 og 18 ára gamlir. Tölvuóstskipti fari fram á frönsku og/eða þýsku.
Tengill: Mirja Panskus, mpanskus@gmx.de
Franskur enskukennari leitar að pennavinum fyrir nemendur sína í Norður-Evrópu, helst á Norðurlöndunum. Nemendur hafa áhuga á tækni ýmiss konar. Tölvupóstskipti fari fram á frönsku og ensku.
Tengill: coberfr@yahoo.fr
Á DÖFINNIMinnt er á síðu Evrópska skólanetsins yfir ráðstefnur og viðburði, á http://www.eun.org/events/
Í lok fréttabréfsins er gerð grein fyrir hvaða stofnanir standi að Evrópska skólanetinu.