Fréttabréf Evrópska skólanetsins nr.
51, 3. sept. 2001
Helstu atriði
|
3. september 2001
|
Í leiðara óskar Brigitte Perry kennara velkomna úr sumarleyfi. Hún nefnir að fljótlega verði sett upp sérstakt kennarasvæði á vef Evrópska skólanetsins, þar sem m.a. verði að finna fréttabréfin sem ætluð eru kennurum.
myEurope; Kynntur er möguleiki manna á að senda inn fréttir á myEurope vefsetrið, á http://www.eun.org/eun.org2/eun/subdesc_myeurope.cfm?sub_id=360&language=enEinnig eru kynnt nokkur verkefni; Þjóðbúningar í Evrópu, á http://www.eun.org/eun.org2/eun/en/myeurope/content.cfm?lang=en&ov=6456; Hreinsum Evrópu, umhverfisverkefni sem brátt verður hleypt af stokkunum og ýmis svæði vefsetursins myEurope sem verða virk í vetur.
myEurope vefsetrið er á http://myeurope.eun.org
Tengill er Petru Dumitru, Petru.dumitru@eun.org
Svæði fyrir stjórnendur (SMC) er nýtt gagnvirkt svæði á Evrópska skólanetinu. Þema septembermánaðar er Skólar framtíðarinnar. Bent er á ýmis dæmi um hugvitsamlega notkun UT í skólastarfi, víða í Evrópu (s.s. á Írlandi, Finnlandi, Svíþjóð, Frakklandi o.fl. löndum).
Tengill er Anne Gilleran, anne.gilleran@eun.org
Fjársjóðavafri Evrópu (European Treasury Browser) er efni um Evrópu sett fram á mörgum tungumálum. Nú vantar hópa til að ljúka prófun á þessu efni, á skólaárinu 2001 - 2002. Efnið hentar vel þeim sem hyggjast stunda tölvustudda kennslu og vilja leggja áherslu á evrópsk málefni í kennslunni. Sjá http://www.en.eun.org/eun.org2/goto.cfm?did=7468. Frekari upplýsingar má fá hjá etb@eun.org.
Þátttaka í stúdíu í öryggi vefsins (Internet Safety Study Invitation); Mönnum gefst kostur á að tjá sig um hvernig þeir vilja haga internetmálum í sínum skóla svo öryggi barna og ungmenna sé tryggt, á http://www.culturalireland.org/dotsafe2/
Tengill: Margit Hofer, margit.hofer@eun.org
VERKEFNI
Le Méditerranéen er tímarit fyrir ungt fólk, á vefnum. Þetta vefrit hóf göngu sína 1997 og í því er fjallað um allt milli himins og jarðar, t.d. umhverfismál, menningartengt efni, samfélagið, hagfræði og hugmyndasögu. Sjá http://pedagogie.ac-aix-marseille.fr/journal/.
Louvre.edu; List handa öllum, er verkefni sem hófst í síðustu eSchola-viku. Það er sérstaklega hugsað fyrir sjónskert börn og markmiðið er að gera þeim kleift að njóta listaverka. Fyrir þessu verkefni stendur safnið fræga Le Louvre. Sjá http://www.educnet.education.fr/louvre/escholb.htm#r1
Tenglar: Daniele Valentin, daniele.valentin@education.gouv.fr, og Cyrille Gouyette, gouyette@louvre.fr
Vinnum saman, menningarleg samvinna (Working Together, Cultural Collaboration) er verkefni sem nýlega hefur hlotið viðurkenningu fyrir frábæra alþjóðlega samvinnu skóla. 16 kennarar og 193 nemendur skipa 8 skólastofur í sýndarheimi. Kjötheimar þessa fólks eru í Kanada, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi og Svíþjóð. Nemendurnir eru á aldrinum 16 - 20 ára. Meginviðfangsefnin snúast um þrjú þemu. Kennarar eru hvattir til að skoða þetta vefsetur, fá hugmyndir og leita til þessara kennara um ráðleggingar. Sjá http://wkto.free.fr/
Í fótspor Eratosþenesar; Eratosþenes var frægur grískur stærðfræðingur á 3. öld f. Kr., sem uppgötvaði rúmfræðilegar aðferðir til að mæla ummál jarðar. Verkefnið snýst um að endurtaka mælingar Eratosþenesar með sömu aðferðum. Það hentar sérstaklega vel til að kenna yngri grunnskólanemendum vísindalegar aðferðir af eigin raun.
Sjá http://www.inrp.fr/lamap/activites/ciel_terre/projet/eratos/eratos.html
ÓSKIR UM SAMVINNU
Góðar fréttir, gagnvirkt evrópskt vefrit, er rekið af Ledina grunnskólanum í Slóveníu. Öllum er heimil þátttaka í þessu vefriti og geta menn valið um að skrifa fréttir, skýrslur, gert skoðanakönnun, séð um lesendabréfadálk o.s.fr. Eins og nafnið bendir til er yfirbragð vefritsins heldur jákvætt og menn hvattir til að fjalla um eitthvað gott eða gleðilegt sem tengist skólanum eða umhverfinu. Verkefnið er ætlað 6 - 15 ára nemendum.
Sjá http://www2.arnes.si/~osljledina3s/dobren/intnewspaper.html
Upplýsingar um þetta verkefni eru á http://www2.arnes.si/~osljledina3s/gnews/gnews.html
Athugasemdir og hugmyndir sendist til home.osljledina@guest.arnes.si
Tengill verkefnisins er ljubica.kosmac@guest.arnes.si
Efni í umhverfinu árið 2000 er efnafræði- og líffræðiverkefni rekið í Slóvakíu. Verkefnið er ætlað nemendum á aldrinum 12 - 18 ára. Slóvakískir nemendur hafa þegar unnið nokkuð efni um lífefnafræði, efnafræði snyrtivara, efnisfræði/ raunvísindi (materials science), umhverfisfræði, flugeldagerð o.fl.. Skólar, sem láta vinna verkefni á þessu sviði, eru hvattir til að hafa samband og taka upp samvinnu við kollegana í Slóvakíu. Vefurinn er á ensku, frönsku, þýsku og slóvakísku.
Sjá www.gymsnv.sk/lon2001
Kynnumst (Getting to Know you) er írskt verkefni sem snýst um nánasta umhverfi (skólalóðina). Skólinn, sem stendur fyrir þessu verkefni, hefur mörg járn í eldinum hvað verkefni varðar og þetta er aðeins eitt af mörgum. Þar er mikill áhugi á að starfa með evrópskum kollegum. Sjá http://homepage.eircom.net/~foregan/
Heimur skordýranna er verkefni nokkurra 12 - 14 ára pilta í Úkraínu. Þeir hafa mikinn áhuga á pöddum, rækta nokkrar tegundir, lesa sér til og fara í rannsóknarferðir á vettvang. Þeir vilja gjarna kynnast öðrum hópum með sama áhugamál. Tengill er vasia54@farlep.net
BJARGIR
Museofile er gagnabanki allra franskra safna. Þetta er fjársjóður fyrir þá sem vilja kynna sér franska og alþjóðlega arfleifð sem og þá sem hyggja á skólaferð til Frakklands.
Sjá http://mistral.culture.fr:8004/cgi-bin/multione/MUSEOFILE/MFsommaire?MID=dS7
0EzryTHKe
Eitraðar plöntur og dýr er vefsetur með miklum og fjölbreyttum upplýsingum um efnið. Mörgum tegundum er lýst og þær flokkaðar eftir búsetu og ætt. Sérstök áhersla er lögð á allt sem viðkemur eitruðum snákum og skordýrum, m.a. góð ráð til að forðast þessi kvikindi.
Sjá http://library.thinkquest.org/C007974/
Listaverkafjársjóður heimsins (World Art Treasures) geymir meir en 100.000 skyggnur frá Jacques-Edouard Berger stofnuninni þar sem sjá má listaverk víðsvegar að, t.d. frá Egyptalandi, Kína, Japan, Indlandi og Evrópu. Þetta er ómetanlegt vefsetur fyrir myndlistarkennara eða áhugamenn um listir.
Sjá http://www.bergerfoundation.ch
Vefur horfinnar veraldar (The Ancient World Web) er safn krækja yfir allt mögulegt sem tilheyrir fornum menningarheimum, s.s. fornleifafræði, bókmenntir, tungmál, heimspeki, goðsögur, vísindi fornaldar o.s.fr.
Sjá http://www.julen.net/ancient/
Helförin kennd með frímerkjum er verkefni sem nálgast hina hræðilegu atburði síðari heimsstyrjaldarinnar með því að skoða frímerki, myndir og málverk eftir börn. Sögukennarar ættu að finna eitthvað til að moða úr á þessum vef og tekið er við teikningum nemenda.
Sjá http://web.macam98.ac.il/~ochayo/einvert.htm
EVRAN (EURO FOCUS)
Eurolandia er ítalskur vefur sem hefur það markmið að undirbúa nemendur undir myntbreytinguna næstu áramót. Þar má finna leiki, upplýsingar og fréttir. Vefurinn er á ensku og ítölsku.
Sjá http://eurolandia.tin.it/euro/eng/index.html
Evran, einn gjaldmiðill í Evrópu, er opinber vefur um evruna, á 11 tungumálum. Vefurinn skiptist í tvo meginþætti, þ.e.a.s. grunnatriði og leiðbeiningar um hvernig best er að undirbúa sig undir myntbreytinguna.
Sjá http://europa.eu.int/euro/html/entry.html
Evru-fræði (Euro-Education) er upplýsingavefur franska fjármálaráðuneytisins um evruna. Þar má einnig finna kennsluefni fyrir grunn - og framhaldsskóla. Bent er á, í fréttabréfinu, að sjálfsagt megi víða um lönd finna sambærilega vefi og þessi er einungis tekinn sem dæmi.
Sjá http://www.euro.gouv.fr/enseignants/index.htm
KEPPNI
Childnet-verðlaunin eru veitt á vegum Childnet International, sem eru góðgerðarsamtök með það meginmarkmið að greiða leið barna að internetinu. Verðlaunuð verða verkefni sem sýna hugkvæmni og ná út yfir landamæri í þeim skilningi að þau nýtast börnum um allan heim. Veitt eru peningaverðlaun auk þess sem fylgir ferð á verðlaunahátíðina, í París 2002.
Sjá http:// www.childnetawards.org
Á DÖFINNIMinnt er á yfirlitssíðu Evrópska skólanetsins yfir viðburði og ráðstefnur, á
http://www.eun.org/events/
Loks eru upplýsingar um hvaða stofnanir standa að Evrópska skólanetinu og hvað Evrópska skólanetið er.