Fréttabréf Evrópska skólanetsins nr. 50, lok maí 2001
Helstu atriði


Hér er fréttabréfið í heild (á ensku).  Bent er á að leita nánari upplýsinga um verkefnin þar og þaðan er krækt í slóðir viðkomandi verkefna. 

30. maí  2001
Harpa Hreinsdóttir

Í leiðara talar Brigitte Parry um að nú sé skólaárinu senn að ljúka. Hún hvetur fólk til að velta fyrir sér verkefnum næsta skólaárs, t.d. eSchola, myEurope eða Comeniusarverkefnum.  Næsta fréttabréf kemur út í lok ágúst eða byrjun september.



eSchola

eSchola síðan verður uppi út júnímánuð, á http://eschola.eun.org.  Fjallað er um hvernig til tókst með einstaka þætti eSchola:

Learn Space   Í eSchola-vikunni var þarna líf og fjör, þar sem menn prófuðu INTERWISE og LUVIT (hvort tveggja er heildstætt kennsluumhverfi á vef).  Jafnframt var kynnt heildstætt kennsluumhverfi frá KIKO, í Bandaríkjunum og BOXMAID (breskt fyrirtæki) sýndi dæmi um fyrirlestra á myndbandi.

Favourites     Undir þessum lið kynntu sérfræðingar á ýmsum sviðum skólamála það sem þeir töldu best.  Ekki gafst tími til að þýða allt efnið og verða þýðingar að bætast í safnið á næstu dögum.  Þessir sérfræðingar voru frá Svíþjóð, Frakklandi, Ítalíu, Austurríki, Þýskalandi, Bretlandi, Slóveníu og Írlandi.

Knowledge Pool    Hér var skipst á upplýsingum og reynslusögum um lausnir á ýmsum vandamálum sem fylgja nýrri tækni í skólastarfi.  Einkum var fjallað um hvernig tryggja má öryggi barna í notkun internetsins.

Open Doors     Rúmlega 100 skólar tóku þátt í þessum lið eSchola verkefnisins og má sjá mikla fjölbreytni í notkun nýrrar tækni í þessum skólum. Sjá má framlag skólanna á http://www.eun.org/eun.org2/goto.cfm?sid=314

School Portraits    17 skólar víðsvegar um Evrópu tóku þátt í þessu.  Menntamálaráðuneyti viðkomandi landa valdi skólana sérstaklega, sem frumkvöðlaskóla í notkun nýrrar tækni.

Europe Day     Meir en 300 kennarar sóttu sér efni um Evrópu til að nota í kennslu á Evrópudaginn.

eLearning verðlaunin Ótal mörg verkefni voru skráð til verðlauna, allt frá leikskólastigi til háskólastigs.

Evrópa  í tíma og rúmi   Í þessu verkefni má finna 210 verkefni víða að úr Evrópu.



COMENIUS SPACE

Nú hafa meir en 400 manns gerst áskrifendur að Comenius-fréttabréfinu.  Menn eru hvattir til að kynna sér Comenius Space vefinn, kynna eigin verkefni og finna samstarfsaðila á vefnum.



myEUROPE

myEUROPE er samvinnuverkefni rúmlega 840 skóla, 16 kennara og snýst samvinnan um alls kyns spennandi verkefni á netinu.  Nú er verið að leita leiða til að þróa verkefnið áfram, t.d. með beinni þátttöku foreldra og nemenda.  Óskað er eftir hugmyndum til að efla myEUROPE.



VERKEFNI

Cyberjournal, Frakklandi; Þetta veftímarit snýst um erlend tungumál.  Nemendur frá Portúgal, Sviss og Frakklandi hafa safnað efninu, t.d. reynslusögum þeirra sem læra erlend tungumál af áhuga einum saman.  Sjá
http://www.scolagora.com/pic-ossau/cyberjournal/index.htm
_________________________________________________

CLEMI, Frakklandi;  Clemi er þróunardeildin í franska menntamálaráðuneytinu og var stofnuð 1983. Markmið Clemi er að auka notkun upplýsingatækni í skólastarfi.    Hægt er að hafa samband við Clemi til að fá upplýsingar um verkefni í skólum og fjölmiðlum.
Clemi
391 bis, rue de Vaugirard,75015 Paris
tel ; 33 / (0)1 53 68 71 00 fax ; 33/ (0)1 42 50 16 82

http://www.clemi.org
_________________________________________________

European Resource Center, Bretlandi; Nýverið hefur stofnunin slegið upp stórum  krækjuvef þar sem finna má allskyns upplýsingar um evrópsk málefni, s.s. um skólastarf, menntun og atvinnu í Evrópu, stofnanir í Evrópu o.m.fl.   Í ensku útgáfu þessa fréttabréfs er bent á ýmsa möguleika til að notfæra sér þetta krækjusafn.
__________________________________________________

Climate Facts, Sviss

ProClim er svissneskur umræðugrundvöllur fyrir málefni tengd veðurfari og loftslagsbreytingum heimsins.  Efnið er á frönsku, þýsku og ensku.  Sjá http://www.proclim.ch/ClimateFacts.html

Vilji menn vinna með efni þessu tengt hafið þá samband við:
theres.grau@sanw.unibe.ch

__________________________________________________

Þjóðmenning og leikir, Chile

Hér er áhugavert verkefni fyrir spönskukennara og þá sem vilja fræðast um menningu og þjóðlega leiki í Chile.  Sjá http://www.uchile.cl/cultura/oplath

Tengill: Karen Muller Turina
karenmullerturina@entelchile.net


ÓSKIR UM SAMVNNU



Saga evrópskra uppfinninga, Frakklandi

Þetta vefsetur spratt upp úr eSchola-verkefninu.  Grunnskólanemendur geta tekið þátt í að rannsaka og "enduruppgötva" ýmsar uppfinningar, auk þess að kynnast sögu vísinda.  Verkefnið er tengt franska verkefninu
 “La Main à la Pâte” sem miðar að því að auka þekkingu grunnskólabarna á vísindum. Fólk er hvatt til að hafa samband við stjórnanda verkefnisins sem fyrst hafi það áhuga á að taka þátt.  Verkfæri og kennslufræðileg aðstoð verður veitt af hálfu verkefnisstjórnar en verkefnið sjálft verður unnið á netinu og niðurstöðurnar tilbúnar til kynningar í eSchola 2002.Gert er ráð fyrir að niðurstöðurnar verði uppistaðan í einhvers konar Alfræðibók vísinda.

Tengill: David Jasmin, jasmin@inrp.fr

Saga evrópskra uppfinninga: http://www.eun.org/lmalp

La Main à la Pâte : http://www.inrp.fr/lamap/accueil.html
____________________________________________________

Sólarorka, Spáni

Um er að ræða 500 nemenda framhaldsskóla í nágrenni Barcelona, sem hefur aðgang að einhvers konar "sólarorkuveri" (photovoltaic installation).  Af vefnum þeirra má t.d. fá upplýsingar um útgeislun sólar, hita sólar o.fl.  Kennarinn Franchesca auglýsir eftir samstarfsaðilum í sólarorkuverkefni, með nemendum á aldrinum 12 - 18 ára.  Hún gefur upp nokkur vefföng til frekari upplýsingar:

http://www.xtec.es/centres/a8045628/.
http://www.xtec.es/centres/a8045628/fotovoltaica/
http://www.xtec.es/centres/a8045628/fotovoltaica/temps_real.htm

Tengill: mguerola@pie.xtec.es

____________________________________________________

Skipst á hugmyndum, Ítalíu;  Barbara kennir stærðfræði og raunvísindi í Róm.  Hún leitar að evrópskum kollega til að skiptast á hugmyndum og jafnvel hefja samvinnuverkefni.  Áhugasamir hafi samband sem fyrst við 
Barbara Fragni,  fragni.b@tiscalinet.it
____________________________________________________

Connecting the Continent, Ástralíu;  Þetta er viðburður sem stendur 18. júní til 1. júlí 2001, á http://www.connectingthecontinent.com en skólar eru hvattir til að skrá sig til þátttöku frá 30. apríl. Viðburðurinn snýst um möguleika náms á neti og er sérstaklega óskað þátttöku 4. - 10 ára barna.
Sjá nánar: http://www.connectingthecontinent.com
Tengill er Kate Dibben, kdibben@oac.sa.edu.au



Á DÖFINNI

Minnt er á yfirlitssíðu Evrópska skólanetsins yfir viðburði og ráðstefnur, á
http://www.eun.org/events/



Loks eru upplýsingar um hvaða stofnanir standa að Evrópska skólanetinu og hvað Evrópska skólanetið er.