Fréttabréf Evrópska skólanetsins 25.
apríl 2001, nr. 49
Helstu atriði
|
22. apríl 2001
|
Í leiðara talar Brigitte Parry um að þetta sé síðasta fréttabréfið sem komi út fyrir opnun eSchola, í Stokkhólmi þann 7. maí. Þess vegna er fréttabréfið meira og minna helgað eSchola. Brigitte hvetur fólk til að kynna sér eSchola, hafi menn ekki þegar gert það.
ESCHOLA http://eschola.eun.org
FERÐAST OG LÆRTEvrópa í tíma og rúmi
Menn eru hvattir til að skoða Evrópukortið sem nú er búið að setja upp, smella á mismunandi lönd og kynna sér þau verkefni sem skráð hafa verið í viðkomandi landi. Væntanleg eru einnig framlög utan Evrópu, s.s. frá Ísrael og Bandaríkjunum.Hægt er að skrá efni á vefnum en ef það vefst fyrir fólki má skrifa Brigitte og hún segist öll af vilja gerð til að veita aðstoð, enda æskilegt að kortið verði fullt af litríkum flöggum! Í eSchola-vikunni (7. - 11. maí) verður vakin sérstök athygli á því efni sem tengist vikunni og eSchola-viðburðum á einhvern hátt.
Undir þessum lið er kominn nýr þáttur sem er Ferðasögur með margmiðlun (Multimedia Travel Stories). Þar má láta nemendur kynna sér það efni sem skráð er undir Evrópu í tíma og rúmi og skrifa síðan ferðasögu með krækjum í vefsíður, myndir og hljóð. Tólin til verksins er að finna á síðunni sjálfri og þarf enga sérstaka kunnáttu til að gera þetta.
Tengiliður fyrir Evrópu í tíma og rúmi er Brigitte, netfang hennar er Brigitte.Parry@eun.org
Evrópudagurinn http://eschola.eun.org
Hægt er að sækja kennsluefnispakka um Evrópu og evrópst málefni, eftir Petru, frá Rúmeníu. Einnig geta kennarar sent inn hugmyndir sínar ætli þeir að hampa Degi Evrópu, sem er 9. maí, eitthvað sérstaklega í sínum skóla.Tengiliður fyrir Evrópudaginn er Petru, netfang hans er petru.dumitru@eun.org
Skipst á hýbýlum (Home Swap) http://eschola.eun.orgNú hafa borist 5 boð um skipti á heimilum, tvö frá Ítalíu, eitt frá Rúmeníu, Belgíu og Frakklandi. Fólk er hvatt til að skoða þennan möguleika á dvöl erlendis.
Tengiliður er Brigitte, Brigitte.Parry@eun.org
Skólavinir (School Pals) http://eschola.eun.orgHér má finna jafnt vini sem samstarfsfélaga erlendis.
Séu menn að leita að samstarfsaðila í verkefni er best að velja ”PalFind”.
Séu nemendur að leita að kunningsskap er best að velja “School Yard”
Í eSchola-vikunni verður opnuð spjallrás fyrir kennara.Tengiliður er Brigitte, Brigitte.Parry@eun.org
NÁM Á NETINUNámssvæði (Learn Space) http://eschola.eun.org120 kennarar í Virtual School Evrópska skólanetsins sjá um þetta svæði. Þarna verða kynntar ýmsar tæknilausnir sem nýtast við nám og kennslu á netinu. Jafnframt fer fram kennsla, í eSchola-vikunni.
Tengiliður er Anna, netfang hennar er anna.strom@eun.org
FRAMÚRSKARANDI OG FRUMKVÆÐIUppáhald (Favourites) http://eschola.eun.orgKennarar og allskonar fræðingar hafa bent á dæmi um þá sem sýna hvað mest frumkvæði í notkun nýrra tækni í skólastarfi. Nú eru komnir 5 aðilar í þennan hóp en verið er að þýða efni eftir fleiri og enn á eftir að bætast við. Héðan er líka krækt í hið nýja Comeniusar svæði Evrópska skólanetsins.
Tengiliður er Anna Maria, netfang hennar er annamaria.fichera@eun.org
Þekkingarbrunnurinn (Knowledge Pool) http://eschola.eun.org
Hér á að safna alls kyns upplýsingum um reynslu, og vandamál sem komið hafa upp, í notkun nýrrar tækni í skólastarfi.
Tengiliður: Welmoed, netfangið er welmoed.lockefeer@eun.org
Í fararbroddi (Leading Edge) http://eschola.eun.org
Hér hefur verið safnað saman krækjum í vefsíður sem sýna hið besta sem skólar eru að gera á sviði upplýsingatækni, í Evrópu.
Tengiliður: Anja, netfang anja.balanskat@eun.org
Opnar gáttir (Open Doors) http://eschola.eun.org
Undir þessum lið gefst mönnum kostur á að sýna verkefni sín, á hvaða tungumáli sem er.Tengiliður er Bengt, netfang bengt.larsson@eun.org
Svipmyndir úr skólanum (School Portraits) http://eschola.eun.orgValdir skólar í Evrópu sýna svipmyndir sem eiga að gefa til kynna hvernig skólastarfi er þar háttað. Við verkið eiga skólarnir að nýta sér margmiðlunartækni.
Tengiliður er Margit, netfang margit.hofer@eun.org
eLEARNING VERÐLAUNINVerðlaun verða veitt fyrir frumkvæði í notkun upplýsingatækni í skólastarfi. Veitt verða verðlaun í fjórum flokkum:
* eSkóla-verðlaun - til skóla sem nota upplýsingatækni til hagsbóta fyrir nemendur sína
* eKennslu-verðlaun - til kennara sem sýna frumkvæði í notkun upplýsingatækni í kennslu
* myEUROPE verðlaun - til kennara eða skóla sem kenna um Evrópu, stofnanir í Evrópu og evrópsk borgararéttindi
* eKennaraskóla-verðlaun -til stofnana sem mennta kennara og sýna gott fordæmi í þjálfun þeirra í notkun upplýsingatækni í skólastarfiNú er búið að skrá um 400 verkefni eða aðila til verðlauna. Taktu líka þátt! Hægt er að skrá til loka eSchola-vikunnar, 11. maí.
Tengiliður er Roger, netfang roger.blamire@eun.org
FRÉTTIRAlexa sér um fréttirnar og hún vill gjarna fá ábendingar um sem flest sem gæti tengst eSchola eða markmiðum þess. Netfang Alexu er alexa.joyce@eun.orgPanta má hjá John, netfang john.rolin@eun.org, geisladisk með Flash-kynningu á eSchola.
COMENIUSAR-SVÆÐIKominn er á laggirnar nýr vefur sem fjallar um Comeniusar-verkefni, jafnt undir lið 1, 2 eða 3. . Þar má kynna verkefni sem menn taka þátt í, í, undir liðnum Gallery. Kynna má viðburði sem menn standa fyrir undir liðnum Calendar. Ef leita á að samstarfsaðila er hægt að senda inn auglýsingu. Svæðið er á http://comenius.eun.org.
Vefari er Didi, dietmar.hackl@eun.org og ritstjóri vefs er Brigitte, brigitte.parry@eun.org
Eratosthenes verkefnið
Þetta verkefni snýst um meir en 2000 ára gamla aðferð Eratosþenesar við að mæla radíus jarðar. Til að taka þátt þarf 2 hópa nemenda sem mæla, á sömu stundu en á ólíkum stað, lengd skugga. Niðustöður verða síðan bornar saman á Internetinu.
Hafa skal samband við Alessandra Zanazzi, zanazzi@cittadellascienza.it
Persónulegar dagbækurVerið er að leita að persónulegum dagbókarskrifum á netinu, í tengslum við undirbúning á alþjóðlegri ritunarkeppni. Viti menn um eitthvað slíkt á að hafa samband við Jean-luc Davagle, jld@leaweb.org
Spænskukeppni Babelnetsins (Babelnet Spanish Competition), sjá http://www.knm.fi/babelnet
"Un día en Europa" felst í að bjóða einstaklingum eða hópum að skrifa vefsíðu um dæmigerðan skóladag. Veitt verða verðlaun fyrir 5 bestu framlögin. Hægt er að taka þátt til 26. maí.
Nánari upplýsingar gefur Ulrike Hofmann, ulrike.hofmann@sbg.ac.at
Á DÖFINNIMinnt er á síðu Evrópska skólanetins með upplýsingum um ýmislegt á döfinni í tengslum við menntun og tækni í Evrópu. Síðan er á http://www.eun.org/events/
Loks eru upplýsingar um hvaða stofnanir standa að Evrópska skólanetinu.