Fréttabréf Evrópska skólanetsins 9. apríl  2001, nr. 48
Helstu atriði


Hér er fréttabréfið í heild (á ensku).  Bent er á að leita nánari upplýsinga um verkefnin þar og þaðan er krækt í slóðir viðkomandi verkefna. 

9. apríl  2001
Harpa Hreinsdóttir

Í leiðara talar Birgitte Parry um að nú sé farið að vora í Evrópu.   Hún  hvetur menn til að kynna sér möguleikann á að skiptast á heimilum, í HomeSwap verkefni Evrópska skólanetsins, ef fólk langar að eyða sumarfríinu í Evrópu.  Fara skal í flokkinn „Travel and Learn“ og síðan „HomeSwap“ undir honum, af eSchola-síðunni, http://eschola.eun.org.

eSCHOLA

eLearning verðlauninFyrstu verðlaun í hverjum flokki eru 10.000 evrur en önnur verðlaun eru 5.000 evrur.  Auk þess er fullt af aukaverðlaunum; fartölvum og öðru tæknidóti.  Keppt er í fjórum flokkum:

eSchool Awards; ætlaður skólum sem kerfisbundið nota internetið og aðra tækni til skólaþróunar.
eTeaching Awards;  ætlaður kennurum sem eru frumkvöðlar í notkun upplýsingatækni í kennslu.
myEUROPE Awards; ætlaður kennurum eða skólum sem kenna á áhrifaríkan hátt um Evrópu og evrópsk málefni.
eTeacher Training Awards; ætlaður stofnunum sem þjálfa og útskrifa kennara og þjálfa þá í tölvustuddri kennslu.

Frekari upplýsingar eru á eSchola-síðunni, http://eschola.eun.org, undir flokknum „eLearning Awards“



Opnar dyr (Open Doors) er tækifæri til að gefa öðrum innsýn í skólastarf einhverrar stofnunar eða kennara.  Ekki er tíundað nánar hvernig þessu verður nákvæmlega háttað, en ljóst að um er að ræða einhvers konar „opnar dyr“ á netinu, í eSchola-vikunni (7. - 11. mars).

Frekari upplýsingar eru á eSchola-síðunni, http://eschola.eun.org, undir flokknum „Excellence and Innovation“



Ný vefsíða;  Vakin er athygli á nýju eScholasíðunni sem þykir einkar glæsileg.  Sjá http://eschola.eun.org.

Evrópa í tíma og rúmi (Europe Across Time and Space) er mjög stórt verkefni.  Þetta er einhvers konar regnhlíf sem ýmis verkefni rúmast undir.  Þessa dagana er tekið við skráningu verkefna undir Evrópu í tíma og rúmi.  Verkefni á að flokka eftir því hvers konar farartæki á að nota í þessari sýndarferð um Evrópu.  Fljótlega verður svo hægt að sýna hvað búið er að skrá.  Þá verður hægt að velja fararmáta (farartæki), sjá kort af Evrópu með fjölda flagga og undir flöggunum verða skráðu verkefnin.  Fleiri hugmyndir um framsetningu verkefna undir þessum lið eru í gerjun, segir Brigitte.

Frekari upplýsingar eru á eSchola-síðunni, http://eschola.eun.org, undir flokknum „Travel and Learn“, síðan „Europe Across Time and Space“, þar undir.



Aðal opnun (Grand Opening), 7. maí;  Frú Ingegerd Wärnersson, menntamálaráðherra Svíþjóðar, opnar eSchola formlega í Stokkhólmi þann 7. maí.  Í tengslum við opnunina verður haldin sýning á ýmsu sem snertir tölvustudda kennslu í Evrópu, í Gallerian, sem er stærsta verslunarmiðstöð Stokkhólms.  Frá þeim viðburði verður birt efni á eSchola-síðunni.



eSchola Flash-kynning;  Hægt er að hlaða niður kynningu á eSchola sem unnin er í Flash, af http://www.eun.org/eun.org2/goto.cfm?did=5353



Vinakennari  í Evrópu (Twins in Europe);  Hér er bent á einfalda leið til að vinna saman, án mikillar aukavinnu eða yfirbyggingar.  Leiðin felst í að finna samstarfsaðila (kennara) sem er að kenna svipað efni og maður sjálfur, skiptast á upplýsingum og gera vefsíðu.  Evrópska skólanetið sér um að skaffa tólin til að gera vefsíðuna svo það eina sem þarf að kunna er að slá inn texta, skiptast á tölvupósti, skanna og taka við efni.  Bent er á dæmi um slíka samvinnu í enska fréttabréfinu.  Komið hefur verið upp vettvangi til að finna samstarfsaðila;  farið á http://eschola.eun.org, veljið „Travel and Learn“, síðan „School Pals“ og loks „Travel Pals“.

COMENIUS SPACE

Þetta er síða sem snýst um Comeniusar-verkefni og er búist við að verði mjög stór.  Hún opnar um miðjan apríl.  Veffangið er http://comenius.eun.org.  Hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfi með efni tengdu síðunni með því að senda Brigitte póst, á netfangið birgitte.parry@eun.org.



ÓSKIR UM SAMSTARF

Dagur í Evrópu, Virtual School;  Hvatt er til þátttöku í „Canal Rêve“ keppninni sem frönskudeild Virtual School stendur að.  Þátttakan felst í því að skrifa lýsingu á venjulegum skóladegi í viðkomandi landi.  Bestu framlög verða birt á netinu.  Keppnin stendur yfir dagana 3. apríl til 26. maí.  Í tengslum við hana verður spjall á netinu 8. maí, frá kl. 12 - 13 (Parísartími).

Nánari upplýsingar fást á http://www.en.eun.org/vs/french/french.html



Skipst á landafræðiupplýsingum við grunnskóla á Írlandi.  Christine Flangan er kennarinn og vill að þetta standi  frá því núna og til 1. maí.  Um er að ræða 6. bekk í grunnskóla og verkefnið á að fara fram með tölvupósti.  Netfang hennar er cflanagan90@hotmail.com.



European Label 2001, Ítalíu;  Framhaldsskóli í Calabriu, Ítalíu, vinnur að vefsíðum um heimahérað sitt.  Nemendur þar vilja gjarna fá upplýsingar um önnur svæði í Evrópu og munu birta þær á sínum síðum.  Vefsíðurnar eru á http://www.bdp.it/icgirifalco og netfang nemendanna er scmgir@libero.it.



Skapandi listir á tækniöld;  Elaine Brown er yfirkennari í breskum grunnskóla.  Hún vill fá samstarfsaðila í 1 - 2 löndum Evrópu, helst Mið- og Austur-Evrópu,  en er þegar í samstarfi við aðila á Englandi, í Þýskalandi og á Ítalíu. Netfang hennar er ej.bowen@talk21.com

BJARGIR

Exploratorium, í San Francisco, Bandaríkjunum, er stofnun þar sem skólakrakkar og aðrir geta fengið að gera alls kyns tilraunir.  Vefsíða hennar er athyglisverð, sérstaklega „Learning Studio“.  Hún er á http://www.exploratorium.edu.



Æfingapakki fyrir lesblinda;  þetta er stoðefni fyrir kennara, nemendur og foreldra, sem samanstendur af myndbandi og handbók.  Sjá nánar á vefsíðunni http://www.ditt-online.org

Tungumálakennarar eru hvattir til að skoða vefsíðu ECML (sem ég veit því miður ekki hvað stendur fyrir en eitthvað tengist það Evrópusambandinu) og skrá sig. Markmið síðunnar er að hvetja og efla tungumálakennara í starfi og til að styðja aðra tungumálakennara.  Skráning fer fram annað hvort á ensku eða frönsku.  Eftir það geta menn ráðgast við kollega sína og eru einnig kynntir á síðunni.  Veffangið er:  http://www.ecml.at



Útskrift myEurope spjallsins;  Á dögunum gafst nemendum kostur á að spjalla við einn af ráðherrum Evrópubandalagsins, Wallström, um umhverfismál.  Nú má sækja útskrift af spjallinu og e.t.v. nota í kennslu. Sjá http://www.en.eun.org/myeurope/chats/chat4-trans.html.



Á DÖFINNI

Fylgist með því sem er að gerast með því að skoða yfirlitssíðu Evrópska skólanetsins yfir hvers kyns ráðstefnur og viðburði í Evrópu, á http://www.eun.org/events/.

Loks eru upplýsingar um fréttabréf Evrópska skólanetsins og hvaða stofnanir standa að því.