Fréttabréf Evrópska skólanetsins 7. febrúar 2001, nr. 45
Helstu atriði


Hér er fréttabréfið í heild (á ensku).  Bent er á að leita nánari upplýsinga um verkefnin þar og þaðan er krækt í slóðir viðkomandi verkefna. 

4. febrúar 2001
Harpa Hreinsdóttir

Í leiðara vekur ritstjóri sérstaka athygli á eSchola verkefninu og því sem nú er á döfinni í myEurope verkefninu.  Jafnframt er tilkynnt að nú sé hægt að lesa fréttabréfið á katalónsku.

eSCHOLA
Á fundi ráðgjafanefndar myEurope, sem haldinn var dagana 27. og 28. janúar í Brüssel mætti margt góðra gesta, þ.á.m. Ulf Lundin, skrifstofusjóri Evrópska skólanetsins, sem kynnti viðburði tengda eSchola-verkefninu.  Í því á að leggja aðaláherslu á:


Evrópska eSchola síðan er á http://eschola.eun.org
_________________________________________________

eLearning verðlaun Evrópska skólanetsins 2001

Með þessum verðlaunum á að veita frumkvöðlum í tölvustuddri kennslu sérstaka viðurkenningu og benda á góð fordæmi. Verðlaun verða veitt fyrir þrenns konar efni:

1.  Frumkvæði í notkun Internetsins í skólastarfi
2.  Frumkvæði í tölvustuddri kennslu
3. Góða kennslu í málefnum Evrópu (verðlaun myEUROPE)
4.  Hæfni í menntun kennaranema svo þeir megi nota Internetið kennslunni til bóta.

Efnið sem verðlaunað verður má vera á hvaða tungumáli sem er.  Frestur til að skrá verkefni/sig rennur út 11. maí 2001. Fylgist með á síðu eSchola, http://eschola.eun.org

myEUROPE

„Ég elska þig“;  þetta verkefni felst í því að yrkja ástarljóð á sínu móðurmáli.  Sjá nánar á vefsíðu myEUROPE, á
http://myeurope.eun.org

Evrópa hin fagra! Markmiðið með þessu verkefni er að vekja athygli á fögrum stöðum í Evrópu en slíkt gagnast til dæmis ferðalöngum.  Þátttaka felst í því að taka myndir úr heimabyggð, tíunda sögulegt eða fagurfræðilegt gildi staðanna  í texta og senda inn til http://myeurope.eun.org.

Hreinsum Evrópu miðar að því að fullvissa nemendur um að sjónarmið þeirra skipti máli og þeir geti haft áhrif í umhverfismálum.  Nemendur eru hvattir til að ljósmynda þau svæði í sínum heimabæ þar sem umhverfismál eru í ólestri og skrifa síðan bæjarstjóranum bréf. Sjá nánar á http://myeurope.eun.org

Spjall um umhverfismál;  Frú Margot Wallström, forseti Framkvæmdarstjórnar Evrópubandalaganna í umhverfismálum, mun sitja fyrir svörum í spjalli á Netinu, þann 27. febrúar.  Æviágrip Margotar má sjá á
http://europa.eu.int/comm/commissioners/wallstrom/cv_en.htm og á síðu myEurope, á http://www.en.eun.org/myeurope/chats/wallstrom.html Spjallið fer fram á vefsvæði myEurope.  Skráið ykkur til spjalls með því að senda tölvupóst til Birgittu Parry, brigitte.parry@eun.org
_________________________________________________

myEurope netið mynda nú tæplega 500 skólar.  Þessu neti tilheyrir einnig hópur sérfræðinga í Brüssel og fjölmennur ráðgjafahópur víða um Evrópu.  Til að taka þátt í myEurope eða kynna sér málin nánar er bent á síðu á http://www.en.eun.org/myeurope/myeurope-schools/index.html

ÓSKIR UM SAMVINNU

ENO- Umhverfismál á Netinu, Finnlandi
Þetta er hnattrænt verkefni í sýndarheimi sem 50 skólar í 30 löndum taka þátt í.  Nemendur eru á aldrinum 12 - 18 ára.  Stjórnendur verkefnisins leita fleiri skóla fyrir næsta skólaár (ágúst 2001 - maí 2001) sem vildu taka þátt og flétta þetta verkefni inn í kennslu.  Frestur til að sækja um þátttöku rennur úr 31. mars.  Hægt er að skrá sig á netinu á http://pp.eno.fi/eno2000/application01.htm  og frekari upplýsingar um ENO má fá á www.enoschool.org
________________________________________________

Verkefni um vatn:  Skóli í Frakklandi óskar eftir samstarfsaðila innan Comeniusar-áætlunarinnar, helst í Mið - eða Austur-Evrópu.  Tengiliður er Nadia Brunetto,  mediamazzarello@tin.it
________________________________________________

The Human Genome Project, Portúgal, snýst um ýmislegt tengt erfðasjúkdómum, s.s. hvernig er hægt að koma í veg fyrir þá, greiningur erfðasjúkdóma og meðferð við þeim.  Verkefnið stendur í janúar- maí 2001 og á að vera alþjóðlegt.  Það höfðar til líffræðikennara og kennara í öðrum greinum.  Frekari upplýsingar má finna á http://www.cienciaviva.mct.pt/healthxxi/
_________________________________________________

20 spurningar, Hollandi
Hollenskir nemendur hafa búið til 20 spurninga lista og vilja gjarna að aðrir nemendur í Evrópu svari spurningunum.  Markmiðið er að bera saman svörin og greina mismun eftir búsetu.  Sjá nánar
http://home-3.worldonline.nl/~nhoebe/school/T1A/t1a_start.htm 
_________________________________________________

Matargerð yfir landamæri, I*EARN í Hollandi

Hollenskur skóli hyggst taka fyrstu skrefin í notkun upplýsingtækni með þessu einfalda I*EARN verkefni.  Skólinn óskar eftir samstarfsaðilum, til að skrifast á með tölvupósti, senda myndir á milli o.fl.  Áhugasamir hafi samband við kennarann Jan Meys, jan.meys@tip.nl

Frekari upplýsingar um  I*EARN eru á http://www.iearn.org
_________________________________________________

Myndskreytingar sem lýsa hlutskipti minnihlutahópa, Noregi

Listaskóli í Noregi óskar eftir samstarfsaðilum um þetta efni.  Nemendur eru 16 - 19 ára gamlir.  Verkefnið á að felast í myndskreytingum sem lýsa hlutskipti minnihlutahópa víða í Evrópu.  Þetta verkefni getur tengst ýmsum námsgreinum, á borð við sögu, listgreinum, félagsfræði og upplýsingatækni.  Möguleikar Internetsins verða nýttir sem mest í verkefninum.  Tengiliður er  Kari G. Førre, kgforre@online.no
_________________________________________________

Menningarsamskipti á þýsku, Ítalíu;  Skóli í Cagliari héraði á Ítalíu óskar eftir samstarfsskóla sem vill hafa samskipti á þýsku.  Á næsta skólaári er vilji fyrir gagnkvæmum nemendaskiptum.  Tengiliður er Mauro Mascia,
mauromascia@tiscalinet.it
_________________________________________________

„Agenda 21 NOW!“ 2001, Þýskalandi

„Agenda 21 NOW!“ er ráðstefna sem haldin verður í sýndarheimi á Degi vatnsins, fimmtudaginn 22. mars 2001, klukkan 00:00 til 24:00 „World Time (U.T.C.)“ [sem ég veit því miður ekki hvað er].  Ráðstefnan er opin öllum nemendum eldri en 14 ára.  Nauðsynlegt er að hafa aðgang að tölvu tengdri Internetinu.  Frekari upplýsingar gefur
Martin Jarrath og aðrir sem eru í stjórn „Agenda 21 NOW!“, á netfanginu info@agenda21now.de.  Einnig má skoða heimasíðu á http://www.agenda21now.de
________________________________________________

Vefútsending (Webcam Exchange), Englandi;  Skóli í London óskar eftir frönskumælandi samstarfsaðilum til að tengjast með vefmyndavél.  Tengiliður er Mark Uttley, info@paddock.wandsworth.sch.uk
_________________________________________________

Samskipti í raunheimum og sýndarheim, Sviss
40 nemendur, á aldrinum 14-15 ára, leita að samsvarandi bekk í enskumælandi landi til að hafa samstarf við um menningu, tómstundagaman og skipuleggja gagnkvæmar heimsóknir.  Skólinn er í Lugano, Sviss.  Tengiliður er
Gideon Bough, Gideon.bough@ti.ch
_________________________________________________

Nám á netinu, Ítalíu;  Um er að ræða ítalska tilraun til að setja upp heildstætt kennsluumhverfi á neti.  Fræðast má af Ítölum hvernig þetta hefur gengið en einnig óska þeir eftir samstarfsaðilum til að prófa, meta og bæta þetta kennsluumhverfi.  Áhugasamir hafi samband við  Roberto Cuccu, rcuccu@tiscalinet.it
_________________________________________________

Samskipti í tölvupósti, Írlandi;  10 - 11 ára enskumælandi krakkar, í 30 manna bekk, vilja eignast pennavini um tölvupóst til að ræða tungumál, tónlist, sögu, íþróttir o.fl.  Um er að ræða dagleg samskipti sem hefjist sem fyrst og standi út mars.  Nánari upplýsingar fást á netfanginu danescastlejnr.ias@eircom.net
_________________________________________________

Samskipti, Rúmeníu;  Í þessum skóla eru nemendur á aldrinum 7 - 14 ára.  Þeir óska eftir frönskumælandi samskiptaaðilum eða nemendum sem eru að læra frönsku.  Samskiptin eiga að snúast um menningartengd málefni og eitt markmiða þeirra er að efla frönskukunnáttu nemendanna.  Tengiliður er Mihaela Gabor, mihaela_medias@yahoo.com

ÞJÁLFUN KENNARA

Námskeið í lestrarkennslu, Slóveníu

Þetta námskeið er skipulagt af hópi háskólakennara frá Svíþjóð, Hollandi, Portúgal, Slóveníu og Englandi.  Efni námskeiðsins er lestrarkennsla og þjálfun 6 - 11 ára barna í lestri.   Hægt er að sækja um Comenius 2 styrk til að fara á þetta námskeið.  Umsóknareyðublað og frekari upplýsingar má fá í Comeniusar námskeiðsbæklingnum, á
http://europa.eu.int/comm/education/socrates/comenius/cat2001-2002/en.html Umsóknarfrestur  rennur út 1. mars.  Frekari upplýsingar um þetta námskeið gefur  Dr.Monika Tratnik, ZR Slovenije za Solstvo, Poljanska 28, 1000 Ljubljana í fíma +386-1-3005-159, fax +386-1-3005-199, eða tölvupósti til  monika.tratnik@guest.arnes.si
____________________________________________________

Leiðir til að taka í notkun skólamiðað mat í erlendum tungumálum, Portúgal. Þetta er námskeið sem stendur 3. - 10. nóvember 2001, í Lissabon.  Námskeiðið fer fram á ensku en einnig er boðið upp á verkefnavinnu á frönsku, hollensku, þýsku og portúgölsku.  Hægt er að sækja um Comenius 2 styrk til að fara á þetta námskeið.  Umsóknareyðublað og frekari upplýsingar má fá í Comeniusar námskeiðsbæklingnum, á
http://europa.eu.int/comm/education/socrates/comenius/cat2001-2002/en.html Umsóknarfrestur rennur út 1. mars. Sækið um til Rudi Schollaert, í síma  + 32 2 511 6839
____________________________________________________

Áhrifarík stjórnun starfsfólks, Grikklandi.  Þetta er enn eitt Comeniusar-námskeiðið, ætlað fyrir stjórnendur.  Það er haldið í Aþenu, 22. - 28. september 2001.  Hægt er að sækja um Comenius 2 styrk til að fara á þetta námskeið.  Umsóknareyðublað og frekari upplýsingar má fá í Comeniusar námskeiðsbæklingnum, á
http://europa.eu.int/comm/education/socrates/comenius/cat2001-2002/en.html Umsóknarfrestur  rennur út 1. mars. Sækja skal um til Rudi Schollaert í síma  + 32 2 511 68 39
_____________________________________________________

Námskeiðsbæklingur með upplýsingum um Comeniusar-námskeið (haldin í september 2001 - 2002) og umsóknareyðublöðum er á
http://www.europa.eu.int/comm/education/socrates/comenius/cat2001-2002/teachers_en.html

BJARGIR

„Goðsögnin mikla“ er safn allskonar goðsagna um sköpun heimsins, sem gaman getur verið að bera saman.  Flash-tækni er notuð til myndlífgunar hverrar goðsögu svo nauðsynlegt er að hafa Shockwave Player Plug-In, viðbót við vefsjána, til að njóta þeirra.  Síðan er á  http://www.bigmyth.com

____________________________________________________

Intellectual Property Rights Helpdesk [hygg að hér muni átt við ýmislegt sem snertir höfundarétt, einkum á uppfinningum] er upplýsingasíða á www.cordis.lu/ipr-helpdesk Einnig má skrifa til info@ipr-helpdesk.org
____________________________________________________

Fjársjóðakista kennara í Evrópu;  Hér hefur Evrópska skólanetið safnað saman ýmsu sem kennurum getur nýst og krækt í efni víða um lönd.  Síðan er á   http://www.eun.org/etb
____________________________________________________

Ljósmynda-atlas af tunglinu, á stafrænu formi
Tungl- og stjarnfræðistofnunin (The Lunar and Planetary Institute eða LPI) birtir nú á vefsíðu þessar myndir sem teknar voru úr gervitungli og komu fyrst  út á prenti 1971. Hægt er að fletta smámyndum, leita eftir stafrófsröð, hnitum, o.fl. og fá birtar stórar myndir að vild.   Síðan er á  http://www.lpi.usra.edu/research/lunar_orbiter/index.html
____________________________________________________

Breska dagblaðagagnasafnið, í Colindale, hefur nýverið birt skrá yfir 50.000 titla úr dagblöðum og tímaritum, á vefnum.  Hægt er að leita í skránni eftir titlum, útgáfudag eða útgáfustað.  Mjög gagnlegt fyrir þá sem eru á leiðinni á safnið sjálft, í Colindale. Skrána má sjá á http://www.bl.uk/collections/newspaper/newscat.html

KEPPNI

„Evrópska eldhúsið“ eða  Eurocuisines, á vegum frönsku deildarinnar í Virtual School, er keppni sem stendur 15. jan. - 16. mars, 2001.  Lokamarkmiðið með þessu framtaki er að safna saman í evrópska matreiðslubók á vefnum.  Að venju fá bestu framlög verðlaun.  Skráning og frekari upplýsingar eru hér:
http://www.en.eun.org/vs/french/french.html
____________________________________________________

 „trans-mission“, myndbandskeppni, Austurríki

„trans-mission“ er keppni meðal nemenda í Evrópu og er haldin í tilefni af Evrópska tungumálaárinu 2001.  Takmark keppninnar er að auka áhuga á tungumálanámi og efla hæfni í notkun fjölmiðla.  Senda má inn myndbönd af hvaða tagi sem er;  mestu skiptir að þau séu sem frumlegust. Sjá nánar http://www.mediamanual.at
_____________________________________________________

Spænska Babelnetið

Þátttaka Spánverja í Babelnetinu er hafin.  Nemendum, jafnt einstaklingum sem hópum er boðið að smíða vefsíðu um heimabæ skólans síns svo „Carlitos“ geti kynnt sér staðinn.  Leiðbeiningar, keppnisreglur og frekari upplýsingar má fá á http://www.knm.fi/babelnet  Verðlaunuð verða 5 bestu framlögin.
 

EVRÓPSKIR VIÐBURÐIR
_____________________________________________________

Fylgist með síðu Evrópska skólanetsins yfir ráðstefnur og viðburði.  Síðan er uppfærð vikulega.  Hana er að finna á  http://www.eun.org/events/

Hægt er að gerast áskrifandi að fréttabréfum Evrópska skólanetsins á  http://www.eun.org/newsletter
eða með því að senda tölvupóst til  brigitte.parry@eun.org

Síða Evrópska skólanetsins er á http://www.eun.org/

Evrópska skólanetið er rekið fyrir styrki frá eftirtöldum áætlunum Framkvæmdastjórnar Evrópubandalaganna:

Socrates (DG EAC), Telematics Application (DG XIII), Esprit (DG III) og
TEN-Telecomm (DG XIII) áætlununum og frá  ISPO (DG XIII).

****************************************************************************