Fréttabréf Evrópska skólanetsins 6. desember,
nr. 43
Helstu atriði
Hér er fréttabréfið
í heild (á ensku). Bent
er á að leita nánari upplýsinga um verkefnin þar
og þaðan er krækt í slóðir viðkomandi
verkefna. Til að forðast misskilning skal tekið fram að
ég þýði þetta fréttabréf fyrir
Evrópska skólanetið og þigg ekki laun fyrir.
Þetta kemur vinnu minni sem framhaldsskólakennari ekkert við
... ekki frekar en útsaumur og málningarvinna, sem ég
vinn einnig mjög að þessa dagana, eða önnur
handavinna.
Harpa Hreinsdóttir |
Í leiðara biðst Birgitta Parry afsökunar á því að hafa að hafa gleymt að telja Svía með í norræna verkefninu Nordit, sem kynnt var í síðasta fréttabréfi. Einnig auglýsir hún eftir barnaskólakennara í Frakklandi, en óskað er eftir enskumælandi manni til að kenna 5 ára börnum.
Sagt er frá Le Salon de l’Education í Paris en það var sýning um mennmál sem stóð 22. - 26. nóvember.
Sagt er frá úrslitum í listakeppninni l’Europe des Cultures, sem kynnt voru í París sunnudaginn 26. nóvember.
Sagt er frá Netd@ys 2000 en Netd@ys vikan hófst 23. nóvember.
Barnaskóli þroskaheftra í Slóveníu óskar eftir samstarfi við evrópskan skóla sem sinnir svipuðum nemendum. Nemendur eru 8 - 15 ára og geta bara haft samskipti á einfaldri ensku.
Spænskur skóli óskar eftir samskiptum sem fari fram á spænsku og frönsku. Nemendur eru 13 - 15 ára.
Skóli á Sikiley óskar eftir samskiptum. Stungið er upp á fjölda þema sem samskiptin gætu snúist um en upplýsingar um aldur nemenda, tungumál o.fl. vantar.
Á Ítalíu; Evrópskt félag sér um að skipuleggja fundi og ráðstefnur í skólum og óskar félagið eftir tveimur skólum sem gætu hjálpað til við skipulagningu funda og hýst fundi.
Kyn og alnæmi; Fylgist með umræðum á vef Barnahjálpar SÞ.
Skóli í Hollandi óskar eftir tímabundnum tölvusamskiptum á frönsku.
Tvö samstarfsverkefni á Ítalíu, fyrir efstu bekki grunnskóla; Annað verkefnið snýst um að 14 - 15 ára nemendur safni upplýsingum á vefnum og velji það sem þeim sjálfum finnst gagnlegt. Krækjum verði svo safnað saman á vefsíðu. Hitt verkefnið er heimabyggðaverkefni.
Vínmenning; Ungverskur framhaldsskóli óskar eftir tveimur samstarfsskólum, sem helst skulu vera í vínræktarhéruðum, til að vinna saman á ensku. Efniviður á að vera vínmenning.
Barnaskólakennari á Ítalíu óskar eftir evrópskum mataruppskriftum og hugsanlegu samstarfi sem snýst um þær.
Samstarf við baltnesku löndin; þetta á að snúast um það að afla upplýsinga um þau og setja fram á vef, á ensku.
VERKEFNI
e-Français, í Belgíu er síða með margskonar efni sem nýtist frönskukennurum og nemendum þeirra.
Barnaorðabók, í Þýskalandi. Ekki kemur fram á hvaða máli þessi orðabók er.
Ungir fréttaritarar umhverfisins; er samstarfsverkefni 130 skóla í Evrópu. Samstarfið snýst um umhverfistengd mál, s.s. orku, vatnsbúskap, úrgang, strandlengju o.s.fr. Verkefnið er að hefjast og skólarnir hafa verið að tengjast síðan 1. nóv. Enn er tækifæri til að skrá sig í þetta verkefni.
Margmiðlun á sjúkrahúsum, á Ítalíu; Verkefni þetta snýst um að styðja kennara sem sinna kennslu á sjúkrahúsum. Efnið er á ítölsku og ensku.
Kennsluáætlanir o.fl. í stærðfræði. Vefsíða á frönsku með ýmiss konar fróðleik um stærðfræðitengt efni.
Heimspeki og menning; Vefsíða á frönsku sem fjallar um heimspeki, menningarsögu, fornaldarsögu, bókmenntir og listir.
Kennt á Internetið; Þessi síða er á ensku. Hún fjallar um hvernig eigi að nýta netið, nota tölvupóst, finna upplýsingar á vefnum, hlaða niður efni, taka þátt í ráðstefnum (newsgroups), gera vefsíður o.fl.
Evrópska geimrannsóknarstofnunin (European Space Agency) auglýsir samkeppni um heimsfána. Börn á aldrinum 8 - 10 ára mega taka þátt. Heimsfáninn mun prýða hliðar Ariane-eldflaugarinnar, sem drífur nýtt gervitungl, Envisat, á loft. Vinningshafa verður boðið til Frönsku Gvæjana til að fylgjast með þegar Ariane verður skotið á loft. Einnig fá 14 einstaklingar frá jafnmörgum Evrópulöndum, ásamt einum frá Kanada, tölvu og prentara í verðlaun. Þátttöku lýkur 31. mars 2000.
Minnt er á yfirlitssíðu Evrópska skólanetins yfir ráðstefnur og viðburði í Evrópu.