Nýjustu fréttir

4. maí
Athygli mín hefur verið vakin á að ekki sé auðvelt að sjá lista yfir skóla sem taka þátt í eSchola, þ.á.m. íslenska skóla.  Skásta leiðin er að fara á eSchola-síðuna, http://eschola.eun.org, þykjast þar ætla að skrá verkefni til verðlauna með því að smella á litlu bláu örina við eLearning Awards, á
valmyndaslá efst á síðunni.  Þá opnast Evrópukort og má sjá skóla sem eitthvað hafa skráð undir hverju landi.

4. maí
Menntamálaráðuneyti í Evrópu hafa valið 20 skóla til að útbúa svokallað "Schoolportrait" eða svipmyndir af skólunum.  Á Íslandi taka Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi og Menntaskólinn á Akureyri þátt í þessu.  Evrópska skólanetið hyggst opna þessi skólaportrett með pompi og
prakt á tilteknum tíma.  Schoolportrait Fjölbrautaskóla Vesturlands verður opnað þriðjudaginn 8. maí, kl. 11 - 12 að miðevrópskum tíma, sem ég held að sé tveimur tímum á undan okkur, þannig að þetta ætti að vera kl. 13 - 14. Kann að vera að tímamismunur sé einungis klukkustund. Sams konar athöfn verður við opnun skólaportretts Menntaskólans á Akureyri, þriðjudaginn 8. maí, klukkan 14 að miðevrópskum tíma.   Íslensk útgáfa af skólaportretti FVA er þegar tilbúin, á http://www.fva.is/svipmynd/ en enska útgáfan er ofurlítið fyllri.  Portrett MA er enn í smíðum.

Fylgist með Schoolportrait af eSchola-síðunni;  http://eschola.eun.org, en þar er valið Excellence and Innovation og þar undir er þegar hafið að kynna þá sérvöldu evrópsku skóla sem taka þátt.  Af sömu síðu má einnig skoða skóla sem bjóða upp á Opnar dyr (Open Doors) en þar tekur Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri þátt.

Alls hafa 19 skólar eða skólatengd fyrirtæki skráð verkefni í eitthvað af eSchola-viðburðinum (til verðlauna, í Europe across Time and Space eða annað) og telst það mjög góður árangur, miðað við Danmörku, Noreg eða lönd af svipaðri stærð, t.d. Lúxembúrg.

26. apríl
Opnar gáttir eru til að vekja athygli á því hvernig skólar og kennaraskólar nýta nýja tækni í skólastarfi.  Þetta er gott tækifæri til að koma skólum á framfæri.  Finna má "Open Doors" undir liðnum "Excellence and Innovation" af eSchola-síðunni, http://eschola.eun.org.  Efnið sem kynnt er má vera á hvaða tungumáli sem er en á skráningarsíðunni ("the Submit-form" er beðið um stutta lýsingu á ensku).

Til að komast beint á "Open Doors" liggur slóðin
http://www.eun.org/eun.org2/goto.cfm?sid=314

Allar nánari upplýsingar fást hjá
bengt.larsson@eun.org
eða
eschola@eun.org

25. apríl
Eftirfarandi upplýsingar um eSchola eru úr Fréttabréfi Evrópska skólanetsins, sem kom út þann 25. apríl.

FERÐAST OG LÆRT
Evrópa í tíma og rúmi
Menn eru hvattir til að skoða Evrópukortið sem nú er búið að setja upp, smella á mismunandi lönd og kynna sér þau verkefni sem skráð hafa verið í viðkomandi landi.  Væntanleg eru einnig framlög utan Evrópu, s.s. frá Ísrael og Bandaríkjunum.

Hægt er að skrá efni á vefnum en ef það vefst fyrir fólki má skrifa Brigitte og hún segist öll af vilja gerð til að veita aðstoð, enda æskilegt að kortið verði fullt af litríkum flöggum!  Í eSchola-vikunni (7. - 11. maí) verður vakin sérstök athygli á því efni sem tengist vikunni og eSchola-viðburðum á einhvern hátt.

Undir þessum lið er kominn nýr þáttur sem er Ferðasögur með margmiðlun  (Multimedia Travel Stories).  Þar má láta nemendur kynna sér það efni sem skráð er undir Evrópu í tíma og rúmi og skrifa síðan ferðasögu með krækjum í vefsíður, myndir og hljóð.  Tólin til verksins er að finna á síðunni sjálfri og þarf enga sérstaka kunnáttu til að gera þetta.

Tengiliður fyrir Evrópu í tíma og rúmi er Brigitte, netfang hennar er Brigitte.Parry@eun.org



Evrópudagurinn    http://eschola.eun.org
Hægt er að sækja kennsluefnispakka um Evrópu og evrópst málefni, eftir Petru, frá Rúmeníu.  Einnig geta kennarar sent inn hugmyndir sínar ætli þeir að hampa Degi Evrópu, sem er 9. maí, eitthvað sérstaklega í sínum skóla.

Tengiliður fyrir Evrópudaginn er  Petru, netfang hans er petru.dumitru@eun.org



Skipst á hýbýlum (Home Swap)     http://eschola.eun.org

Nú hafa borist 5 boð um skipti á heimilum, tvö frá Ítalíu, eitt frá Rúmeníu, Belgíu og Frakklandi.  Fólk er hvatt til að skoða þennan möguleika á dvöl erlendis.

Tengiliður er Brigitte, Brigitte.Parry@eun.org



Skólavinir (School Pals)     http://eschola.eun.org

Hér má finna jafnt vini sem samstarfsfélaga erlendis.
Séu menn að leita að samstarfsaðila í verkefni er best að velja  ”PalFind”.
Séu nemendur að leita að kunningsskap er best að velja “School Yard”
Í eSchola-vikunni verður opnuð spjallrás fyrir kennara.

Tengiliður er Brigitte, Brigitte.Parry@eun.org



 
NÁM Á NETINU
Námssvæði  (Learn Space)   http://eschola.eun.org

120 kennarar í Virtual School Evrópska skólanetsins sjá um þetta svæði.  Þarna verða kynntar ýmsar tæknilausnir sem nýtast við nám og kennslu á netinu.  Jafnframt fer fram kennsla, í eSchola-vikunni.

 Tengiliður er Anna, netfang hennar er anna.strom@eun.org


FRAMÚRSKARANDI OG FRUMKVÆÐI
Uppáhald (Favourites) http://eschola.eun.org

Kennarar og allskonar fræðingar hafa bent á dæmi um þá sem sýna hvað mest frumkvæði í notkun nýrra tækni í skólastarfi.  Nú eru komnir 5 aðilar í þennan hóp en verið er að þýða efni eftir fleiri og enn á eftir að bætast við. Héðan er líka krækt í hið nýja Comeniusar svæði Evrópska skólanetsins.

Tengiliður er Anna Maria, netfang hennar er annamaria.fichera@eun.org


Þekkingarbrunnurinn (Knowledge Pool)  http://eschola.eun.org

Hér á að safna alls kyns upplýsingum um reynslu,  og vandamál sem komið hafa upp, í notkun nýrrar tækni í skólastarfi.

Tengiliður:  Welmoed, netfangið er welmoed.lockefeer@eun.org


Í fararbroddi (Leading Edge) http://eschola.eun.org

Hér hefur verið safnað saman krækjum í vefsíður sem sýna hið besta sem skólar eru að gera á sviði upplýsingatækni, í Evrópu.

Tengiliður:  Anja, netfang anja.balanskat@eun.org


Opnar gáttir  (Open Doors)   http://eschola.eun.org

Undir þessum lið gefst mönnum kostur á að sýna verkefni sín, á hvaða tungumáli sem er.

Tengiliður er Bengt, netfang bengt.larsson@eun.org



Svipmyndir úr skólanum(School Portraits)  http://eschola.eun.org

Valdir skólar í Evrópu sýna svipmyndir sem eiga að gefa til kynna hvernig skólastarfi er þar háttað.  Við verkið eiga skólarnir að nýta sér margmiðlunartækni.

Tengiliður er  Margit, netfang margit.hofer@eun.org


eLEARNING VERÐLAUNIN
Verðlaun verða veitt fyrir frumkvæði í notkun upplýsingatækni í skólastarfi.  Veitt verða verðlaun í fjórum flokkum:
*       eSkóla-verðlaun -  til skóla sem nota upplýsingatækni til hagsbóta fyrir nemendur sína
*       eKennslu-verðlaun - til kennara sem sýna frumkvæði í notkun upplýsingatækni í kennslu
*       myEUROPE verðlaun - til kennara eða skóla sem kenna um Evrópu, stofnanir í Evrópu og evrópsk borgararéttindi
*       eKennaraskóla-verðlaun -til stofnana sem mennta kennara og sýna gott fordæmi í þjálfun þeirra í notkun upplýsingatækni í skólastarfi

Nú er búið að skrá um 400 verkefni eða aðila til verðlauna.  Taktu líka þátt!  Hægt er að skrá til loka eSchola-vikunnar, 11. maí.

Tengiliður er Roger, netfang roger.blamire@eun.org


FRÉTTIR
Alexa sér um fréttirnar og hún vill gjarna fá ábendingar um sem flest sem gæti tengst eSchola eða markmiðum þess. Netfang Alexu er alexa.joyce@eun.org

Panta má hjá John, netfang john.rolin@eun.org,  geisladisk með Flash-kynningu á eSchola.
 

7. apríl 2001
Í Fréttabréfið Evrópska skólanetsins sem kemur út á mánudaginn, eru nokkrar fréttir af eSchola:

Í leiðara talar Birgitte Parry um að nú sé farið að vora í Evrópu.   Hún  hvetur menn til að kynna sér möguleikann á að skiptast á heimilum, í HomeSwap verkefni Evrópska skólanetsins, ef fólk langar að eyða sumarfríinu í Evrópu.  Fara skal í flokkinn „Travel and Learn“ og síðan „HomeSwap“ undir honum, af eSchola-síðunni, http://eschola.eun.org.

eLearning verðlaunin;  Fyrstu verðlaun í hverjum flokki eru 10.000 evrur en önnur verðlaun eru 5.000 evrur.  Auk þess er fullt af aukaverðlaunum; fartölvum og öðru tæknidóti.  Keppt er í fjórum flokkum:

Frekari upplýsingar eru á eSchola-síðunni, http://eschola.eun.org, undir flokknum „eLearning Awards“

Opnar dyr (Open Doors) er tækifæri til að gefa öðrum innsýn í skólastarf einhverrar stofnunar eða kennara.  Ekki er tíundað nánar hvernig þessu verður nákvæmlega háttað, en ljóst að um er að ræða einhvers konar „opnar dyr“ á netinu, í eSchola-vikunni (7. - 11. mars).

Frekari upplýsingar eru á eSchola-síðunni, http://eschola.eun.org, undir flokknum „Excellence and Innovation“

Evrópa í tíma og rúmi (Europe Across Time and Space) er mjög stórt verkefni.  Þetta er einhvers konar regnhlíf sem ýmis verkefni rúmast undir.  Þessa dagana er tekið við skráningu verkefna undir Evrópu í tíma og rúmi.  Verkefni á að flokka eftir því hvers konar farartæki á að nota í þessari sýndarferð um Evrópu.  Fljótlega verður svo hægt að sýna hvað búið er að skrá.  Þá verður hægt að velja fararmáta (farartæki), sjá kort af Evrópu með fjölda flagga og undir flöggunum verða skráðu verkefnin.  Fleiri hugmyndir um framsetningu verkefna undir þessum lið eru í gerjun.

Frekari upplýsingar eru á eSchola-síðunni, http://eschola.eun.org, undir flokknum „Travel and Learn“, síðan „Europe Across Time and Space“, þar undir.
 

Aðal opnun (Grand Opening);  Frú Ingegerd Wärnersson, menntamálaráðherra Svíþjóðar, opnar eSchola formlega í Stokkhólmi þann 7. maí.  Í tengslum við opnunina verður haldin sýning á ýmsu sem snertir tölvustudda kennslu í Evrópu, í Gallerian, sem er stærsta verslunarmiðstöð Stokkhólms.  Frá þeim viðburði verður birt efni á eSchola-síðunni.
 

eSchola Flash-kynning;  Hægt er að hlaða niður kynningu á eSchola sem unnin er í Flash, af http://www.eun.org/eun.org2/goto.cfm?did=5353
 

Vinakennari  í Evrópu (Twins in Europe);  Hér er bent á einfalda leið til að vinna saman, án mikillar aukavinnu eða yfirbyggingar.  Leiðin felst í að finna samstarfsaðila (kennara) sem er að kenna svipað efni og maður sjálfur, skiptast á upplýsingum og gera vefsíðu.  Evrópska skólanetið sér um að skaffa tólin til að gera vefsíðuna svo það eina sem þarf að kunna er að slá inn texta, skiptast á tölvupósti, skanna og taka við efni.  Bent er á dæmi um slíka samvinnu í enska fréttabréfinu.  Komið hefur verið upp vettvangi til að finna samstarfsaðila;  farið á http://eschola.eun.org, veljið „Travel and Learn“, síðan „School Pals“ og loks „Travel Pals“.


29. mars 2001
Í opinberu fréttabréfi, sem ég þýði reyndar eintak af og má gerast áskrifandi að íslensku útgáfunni af evrópsku eSchola-síðunum, er einkum minnst á tvennt:


Nú á að vera búið að koma skráningarmálum í gott horf.  Þegar komið er á evrópsku síðuna blasir við miði efst í hægra horni þar sem krækt er í allar skráningarsíður.  Enn og aftur er fólk hvatt til að skrá verkefni sín sem allra fyrst. Fullt af kennurum um allt land er að vinna ágæt verkefni, á evrópskan mælikvarða, og full ástæða til að vekja athygli á þeim.  Ekki skiptir máli þótt verkefnin sjálf séu á íslensku.
 

23. mars 2001
Eitthvað hefur borið á því að fólk eigi í vandræðum með að skrá verkefni.  Vandræðin eru stundum þau að menn finna ekki skráningarsíðuna.  Sem stendur er aðallega tekið við skráningu í Ferðast og læra-svæðið.  Best er að fara beint á síðuna http://eschola.eun.org/travel/submit.html.  Önnur vandræði eru að þegar fólk ætlar að skrá er beðið um lykilorð (password) skólans. Þetta er vegna þess að skrifstofa Evrópska skólanetsins skráði sjálfkrafa alla íslensku ENIS-skólana og sendi lykilorð til tengiliðs í hverjum skóla.  Til þess að finna út hver tengiliðurinn í viðkomandi skóla er, er best að velja SUBMIT, ljúga því síðan að maður hafi týnt lykilorði og þá koma upp skilaboð um hver tengillinn er.

20. mars 2001
eSchola-verkefni Evrópska skólanetsins er nú að taka á sig skýrari mynd.  Komin er upp ný vefsíða, á http://eschola.eun.org, sem opnuð var í dag.

Ég hvet alla til að skoða síðuna og skrá skólann sinn (skráningin fer í gagnagrunn yfir framsækna skóla í Evrópu).  Skráningin (registration) er forsenda þess að hægt sé að skrá verkefni eða til þátttöku í verðlaunum.  Það dugir að velja einhvers staðar á undirsíðum "submit" og þá kemur skráningarformið sjálfkrafa upp (kort og landalisti - veljið Ísland - og fyllið út skráningarform ef skólinn ykkar er ekki þegar skráður).  Nú eru skráðir 9 íslenskir skólar.  Sá sem skráir skólann fær sérstakt lykilorð sem hann/hún getur notað til að breyta upplýsingum ef þarf.

Best að snúa sér fyrst að aðalatriðinu:  Verðlaununum!  Veitt verða 1. og 2. verðlaun í þremur meginflokkum:  Fyrir vefsíður/vefsíðuverkefni skóla; Fyrir kennslu um málefni sem tengjast Evrópu og fyrir frumkvöðlastarf í notkun upplýsingatækni í kennslu.  Fyrstu verðlaun eru 10.000 evrur og önnur verðlaun 5.000 evrur.  (Evran er um 79 krónur nú svo þið getið farið að margfalda ;-)
Frestur til að skrá verkefni til verðlauna rennur út 11. maí (við lok eSchola vikunnar).

Hinn nýi eScholavefur kann að virðast tómlegur núna en það er vegna þess að einungis uppistaðan er komin en ívafið á að vera öll verkefnin sem verða skráð.  Hér á eftir er tæpt á nokkrum gerðum verkefna, sem öll heyra undir sama hatt, þ.e. Ferðast og læra svæðið.  Í eSchola eiga að vera 5 svona hattar eða svæði og verða hin fjögur kynnt síðar.

1 Evrópa í tíma og rúmi (Europe across time and space).  Nú er verið að safna efni undir þennan lið.  Hvaðeina sem tengist landafræði eða sögu Evrópu á heima undir þessu stóra regnhlífarverkefni.  (Dæmi:  Landafundir, mannkynssaga, landafræði Evrópu eða einstakra landa, hvers kyns samvinnuverkefni, vistfræði, geimferðir ...)  Verkefnin verða að sjást (þ.e. vera á vefsíðu) en þau mega vera á hvaða tungumáli sem er:  íslenska er að sjálfsögðu jafnrétthá öðrum málum!  Þó er hugsanlegt að beðið verði um örstutta lýsingu á verkefninu (4 - 5 línur) á máli sem margir skilja, t.d. ensku, þýsku, frönsku eða spænsku.  Ég hvet alla sem hafa verið að vinna vefsíður með nemendum sínum, sem að einhverju leyti tengjast þessu yfirgripsmikla efni, til að skrá þau (munið að fyrst þarf að skrá skólann).

2Skólavinir (School Pals). Undir þessum lið verður boðið upp á vettvang til að finna pennavini, spjallvini eða hvers konar samstarfsaðila í hópi kennara eða nemenda í Evrópu.

3Evrópudagurinn (Europe Day) er 9. maí.  Þá er mikið húllúmhæ í löndum Evrópubandalagsins og undir þessum lið er boðið upp á alls konar efni til að fagna þessum degi.  (Ég veit ekki hve mikið Íslendingar vilja taka þátt í þessu.)

4Heimilisbýtti (Home Swap) er vettvangur fyrir þá sem vilja skiptast á íbúðum eða heimilum í sumarfríinu.