Textinn sem hér fer á eftir var upphaflega á glærum sem sýndar voru með fyrirlestri um ENIS, á málþingi Rannsóknarstofnunar  Kennaraháskóla Íslands þann 14. október 2000.


ENIS:  Frumkvöðlaskólar í Evrópu
 
 




ENIS er rekið af Evrópska skólanetinu

Um 400 skólar í Evrópu

8 skólar á Íslandi; þróunarskólarnir 6 ásamt  FVA og Flensborg

(Til samanburðar:  Í Noregi:  23 skólar; í Svíþjóð:  24 skólar; í Danmörku:  31 skóli; í Finnlandi:  21 skóli)

Sérstakar ENIS síður í einstökum löndum

Hverjir stýra ENIS?

Stýring á Íslandi


 
 




Lykilaðilar

Verkefni á vegum Evrópska skólanetsins (EUN Projects)
Skrifstofa EUN í Brussel
Menntamálaráðuneyti einstakra landa
Evrópuráðið
Aðrir samstarfsaðilar

 Hvernig eru ENIS skólar valdir?

Framsæknustu skólar hvers lands í notkun upplýsingatækni í námi og kennslu

Menntamálaráðuneyti í hverju landi ákvarðar hvernig og hvaða skóla eigi að tilnefna




Aðalmarkmið ENIS er að ríða net skóla sem þykja skara fram úr í notkun upplýsingatækni í skólastarfi.

Upphaflega:  ENIS skólar í allri Evrópu yrðu 500 talsins.

Nú: Allt að 2000 skólar í ENIS, vegna ValNets-verkefnisins




Ávinningur af því að vera ENIS skóli:

Skólinn telst í fararbroddi hvað frumkvæði og gæði snertir

Skólinn getur unnið að nýjum samstarfsverkefnum innan ENIS [Dæmi]; Veljið collaboration af efri valmyndaslá.

Skólinn getur miðlað af reynslu sinni og notið góðs af reynslu annarra. [Dæmi]

Skólinn hefur aðgang að tólum og tækjum Evrópska skólanetsins [Dæmi]

Skólum gefst færi á þátttöku í mikilvægum ráðstefnum, fundum, vinnustofum  og námskeiðum [Dæmi]

Skólinn fær upplýsingar um styrki og tækifæri sem bjóðast á landsvísu og á evrópskum grunni [Dæmi]

Skólinn hefur aðgang að stofnunum sem sinna gæðamati og getur því leitast við að betrumbæta sig sem námsstofnun [ValNet?]

Skólinn hefur aðgang að ENIS Evrópusíðunni, fréttabréfi og vinnusvæðum

Sum ríki hampa sínum ENIS skólum og láta þá sitja fyrir í veitingu styrkja






Skyldur ENIS skóla:

Skólinn skuldbindur sig til að sýna gott fordæmi

Skólinn þarf að vera tilbúinn að kynna sig á opinberum vettvangi

Skólinn leitast við að bæta sitt innra eftirlit
 
 




Hver er staðan á Íslandi núna?

Hefur lítið verið unnið í ENIS, enda hefur ENIS verið hálfgerðar skýjaborgir hjá Evrópska skólanetinu til þessa.

Menntamálaráðuneytið hefur ekki mótað neina stefnu um ENIS

Vænta má mikilla breytinga í kjölfar ValNets-verkefnisins
 
 

ValNet felst í því að leiða saman lykilaðila í skólaþróun og frumkvæði innan skólanna.
(Rogelio Segovia;  Fyrirlesturinn “Af hverju spratt hugmyndin um ValNet”?  Segovia er hugmyndasmiðurinn.)

ValNet snýst um mat (validation)

Sem stendur er óljóst hvað á að meta og hvernig

ENIS skólar virðast eiga að vera „ fóður“  í ValNet rannsóknirnar og hljóta því að fá einhverja umbun fyrir