Útdráttur á íslensku
Athugaðu að krækt
er í viðkomandi frétt í enska fréttabréfinu
úr viðeigandi endursögn í útdrættinum.
Í enska fréttabréfinu má
yfirleitt finna vefslóðir sem vísa á enn frekari
upplýsingar.
10. október |
Í upphafi fréttabréfsins eru menn hvattir til að skoða ENIS-síður einstakra landa, sem krækt er í af http://www.en.eun.org/menu/enis/set-enis-natsites.html.
Einnig er vakin athygli á íslensku ENIS síðunni sem finna má á http://www.fva.is/~harpa/enis/index.htm
Frá myEurope eru tvær tilkynningar um verkefni:
Pólitísk plaköt; Kennarar eru beðnir að hvetja nemendur sína til að skima eftir veggspjöldum, sem snerta Evrópumál, á sínum heimaslóðum; taka myndir af þeim og leggja inn í myndabanka. Einnig mega kennarar nota þær myndir sem eru nú þegar í myndasafninu.
Sagnir og goðsagnir; Verkefnið er ætlað grunnskóla (6 - 12 ára) og felst í því að nemendur skrá sögur sem þeir þekkja úr sínu heimalandi, s.s. um dreka, hafmeyjar, álfa, kónga o.s.fr. Skrifa má á eigin þjóðtungu.
Framtíð skólans í samfélaginu; David Wood, prófessor við Háskólann í Nottingham, óskar eftir upplýsingum um breytt og aukið hlutverk skólans utan reglulegs skólatíma. Hann á þar við hvers konar starfsemi og notkun bygginga, tækja og sérfræðiþekkingar kennara utan hefðbundins skólastarfs. Viti menn dæmi um slíkt eða viti um rannsóknir á þessu breytta hlutverki, eru þeir beðnir að hafa samband við David Wood.
Ítalskur framhaldsskóli óskar eftir samstarfsaðila í mannaskiptum (nemenda- og kennara) innan Leonardo da Vinci áætlunarinnar. Áhugasamir hafi samband fyrir 20. október.
Norskir skólar, grunnskóli á unglingastigi og kennaradeild háskóla, óska eftir 3 skólum í samstarf innan Minervu- áætlunarinnar. Óskað er eftir unglingastigi grunnskóla.
Kanadískt net frumkvöðlaskóla er sambærilegt við ENIS í Evrópu. Þegar hefur tekist samstarf með kanadískum skólum í þessu neti og skólum í Evrópu (Svíþjóð og Englandi). Sagt er frá ráðstefnu sem kanadíska netið hélt í september.
Auglýst er námskeið í skráningu lýsigagna (metdata tagging). Námskeiðið er ætlað kennurum sem byggja upp vefsetur og á að hjálpa þeim til að koma efni sínu betur á framfæri gegnum leitarvélar.
Kennslupakki um sögu kvenna á 20. öld. Þetta efni er ætlað kennurum í framhaldsskólum og inniheldur fróðleik og kennsluefni. Síðarmeir er von á fleiri pökkum um ýmis efni sem snerta sögukennslu.
Hugbúnaðarsafn Evrópusambandsins; Hér er um að ræða gagnabanka alls konar forrita sem nýtast við notkun internetsins og vefsins. Flest forritin henta eldri nemendum eða fullorðnum en þó má finna forrit sem henta ungum krökkum einnig.
Kennslupakkar handa þeim sem læra ensku sem erlent mál; Alþjóðlegur hópur málfræðinga og kennara er að vinna svona pakka, sem hver á að duga í eina kennslustund. Átt er við efni, verkefni, kennsluleiðbeiningar og ítarefni. Hægt er að nota þetta í einstaklingskennslu, paravinnu, hópvinnu eða fyrir stórar bekkjardeildir. Beðið er um ENIS skóla til að prufukeyra þessa pakka, einn í hverri viku, og senda athugasemdir til höfunda.
Ítarefni í ensku; Þemapakkar. Þarna er um að ræða ýmist bókmenntatengt efni, allt frá verkefnum til krækjulista. Efnið er flokkað og á að vera auðvelt að leita þar fanga. Ætlað framhaldsskólum.
Flokkað vefbókasafn, staðsett í Englandi, býður upp á ráðleggingar um leit, ábendingar um viðurkenndar síður á vefnum o.fl. Þetta eru 10 efnisflokkar en stefnt er að 27 fleirum fyrir maí 2001. Góður staður fyrir þá sem ekki eru vanir að leita á vef.
Leit í frönsku þjóðarbókhlöðunni; virðist samsvara Greini og Gegni hér á landi. Hægt er að leita í bókasöfnum 3,900 stofnana. Stefnt er að því að skrá bókfræðilegar upplýsingar um 8 milljón titla í viðbót á árinu 2001, sem finna má í háskólasöfnum og víðar í Frakklandi.