Fréttabréf ENIS nr. 10
september 2000


Útdráttur á íslensku

Athugaðu að krækt er í viðkomandi frétt í enska fréttabréfinu úr viðeigandi endursögn í útdrættinum.  Í enska fréttabréfinu má yfirleitt finna vefslóðir sem vísa á enn frekari upplýsingar. 
15. september
        Harpa Hreinsdótir

 
myEurope ráðgjafahópur;  11 kennarar frá ýmsum Evrópulöndum hafa boðið sig fram til að gegna ráðgjafahlutverkefni í verkefninu.  Aðalhlutverk þeirra verður að virkja kennara og nemendur í  Evrópu til að starfa í myEurope verkefninu.  Sagt er frá ljúfum fundi með þessu fólki í ágúst.  Vilji menn komast í ráðgjafahópinn skulu þeir skrifa Birgitte Parry.

myEurope skólar;  kynning á verkefninu en það er einkum hugsað fyrir þá sem kenna um evrópsk málefni eða kenna á "evrópskan hátt" (en því miður er ekki útskýrt hvað háttur sá felur í sér).

Upplýsingar um myEurope eru á http://myeurope.eun.org
 

Franskur ENIS skóli leitar að samstarfsaðila, einkum til að vinna verkefni á spænsku.

Sjálfboðaliða vantar í Internet Fiesta til að koma með snjallar hugmyndir að kynningu tungumála og mismunandi menningar.

Kennsla og þjálfun í frumatriðum notkunar tækni í kennslu  hefst 2. okt. 2000.  Kennt verður að nota rafræna miðla, þ.á.m. internetið og geisladiska.  Þetta er 60 stunda frítt námskeið sem stendur í 30 vikur, en ætlast er til að stofnanir greiði smáræði fyrir sína starfsmenn. Frekari upplýsingar gefur Barbara Nance, stjórnandi The Hampshire Basic Skills project.

Varðenglar árþúsundins auglýsa feikilega sýningu á vefnum þann 21. sept.  Sjá nánar útdrátt úr European Schoolnet fréttabréfi.

Antarctica verkefnið;  5 ævintýramenn munu klífa níræðan hamarinn á Suðurskautslandinu í vetur.  Í tengslum við þessa þraut verður komið upp allskonar verkefnum sem skólar geta nýtt sér og jafnframt fylgst með því hvernig ævintýramönnunum reiðir af.

Kanadíska skólanetinu svipar mjög til ENISs.  Kennarar og skólar þar vestra vilja gjarna vinna  með evrópskum kennurum og skólum.  Hafa á samband við Anne Kerr um frekari upplýsingar.

Menningarferð í Ástralíu;  Netdays-verkefni þar sem nemendur geta farið í sýndarferðalag og aktað sem ferðamálafrömuðir fyrir eigið land.  Skráning á vefsíðu verkefnisins.

Frönsk listakeppni fyrir nemendur frá leikskólastigi upp allan framhaldsskólann;  Nemendur eiga að nota UT og listir til að tjá margbreytni Evrópusamfélagsins. Frestur til að skrá sig er til 20. október.  Í nóvember verður valið úr verkum sem bárust og verðlaun afhent í lok nóvember í París.  Nánar á vefsíðu samkeppninnar.  .

Verðlaun Barnanets "Dot.Hopes";  verða veitt aðilum sem rjúfa viðjar fátæktar, fötlunar og fjarlægðar, með notkun vefsins!  Verðlaunahátíð í Washington í apríl 2001.  Skráningu þeirra sem vilja vinna til verðlaunanna lýkur 31. okt. 2000.  Sjá vefsíðu fyrirbærisins.

"eEducation" í Sviss er hátíð sem haldin verður 27. sept., hvar fjallað verður um notkun UT í kennslu og námi.  Jafnframt fá svissneskir skólar ENIS-skírteinin sín afhent.

Tengslaráðstefna Comenius 3 er haldin 21.sept. í Brussel.  Þessi hluti Comeniusar hlúir að evrópskum netum hvers konar og stórum samvinnuverkefnum (a.m.k. 6 þjóða verkefnum).

EDEN auglýsir fjórðu ráðstefnuna um opnar kennslustofur sem haldin verður 20. - 21. nóvember 2000 í Barcelona.  Fjallað verður um þær stórfelldu breytingar sem ný tækni hefur haft í för með sér hvað varðar kennslu, nám og lífið almennt.

Alþjóðleg ráðstefna í Frakklandi verður haldin 24. - 26. janúar 2001.   Hún fjallar um hvers konar aðstæður þurfi fyrir hin nýju tól og tæki.  Vísað er í vefsíðu til frekari upplýsingar og skráningar.

Unnið 15. september
Harpa