Síðsumars
1886 tók Thor Jensen við verslunarrekstrinum undir Búðarkletti
úr höndum Akra-Jóns.
Þá um haustið eignaðist Akra-Jón verslunarlóðina
í Englendingavík og lét hefja þar smíði
húsa. Lét hann byggja íbúðarhús
áfast verslunarhúsi og pakkhús
ofan við verslunarhús Finns sem nefnt hafði verið Tjernihús.
Smiður við verkið hét Ásbjörn Ólafsson
frá Akranesi.
Öll
þessi hús standa enn, tvö pakkhús undir Miðnesklettum
fyrir ofan bryggju sem hlaðin var í tengslum við verslunina
og verslunarhúsið sjálft, Sjávarborg (einnig nefnt
Sævarborg). Byggt hefur verið við það hús.
Í vestur enda þess er nú íbúðarhús
en austari hlutinn hefur staðið auður síðan verslun
var hætt þar síðla árs 1960. Þó
var húsinu haldið við og þar geymdir ýmsir
munir í eigu kaupfélagsins allt þar til fyrir um 10
árum.
Árið
1889 hófst svo Bryde-verslun í húsum Akra-Jóns
sem seldi verslunina og flutti til Reykjavíkur.