Verslunarhúsin

 
Af heimildum að dæma virðist sem sá húsakostur sem verið hafi í víkinni er Akra-Jón kemur þangað 1886 hafi ekki verið annað en það hús sem enn stendur neðst í húsatorfunni og gengur undir nafninu neðra pakkhúsið.  Þetta hús hefur þá verið kalla Tjernihús og sést hér næst sjónum til hægri á myndinni.  Jón hefur látið reysa það hús sem sést hér vinstra megin á myndinni og eins pakkhúsið fyrir ofan Tjernihúsið. Bygging þeirra hófst sumarið 1886 og ekki verður annað séð en smíði þeirra hafi verið lokið áður en Jón fer úr víkinni 1889.