Akra-Jón
hét réttu nafni Jón Jónsson, fæddur á
Urriðaá í Álftaneshreppi á Mýrum.
Hann var sonur Jóns Sigurðssonar sem kenndur var við Hjörsey
þar sem hann bjó lengst af og fyrri konu hans, Guðrúnar
Jónsdóttur. Faðir Guðrúnar var Jón
dannebrogsmaður á Álftanesi á Mýrum.
Jón
kvæntist árið 1870 Margréti Þorsteinsdóttur
frá Hítardal. Þau hófu búskap á
Ökrum á Mýrum en þar lést Margrét
af barnsförum sumarið 1871. Vorið 1872 brá Jón
búi og flutti frá Ökrum en var alla tíð kenndur
við staðinn og kallaður Akra-Jón. Seinni kona
Jóns var Sigríður
Sigurðardóttir frá Haukagili í Hvítársíðu.
Verslunarrekstur
hóf Jón fyrstur manna í Borgarnesi vorið 1877.
Það sumar hófst bygging verslunarhúss sem stendur
enn og er elsta hús Borgarness. Þar er rekið veitingahúsið
Búðarklettur. Því húsi var mikið
breytt árið 1907 er Jón í Bæ og Jón
frá Svarfhóli keyptu Suðurnes-verslunina (þá
Lange-verslun). Verslunarhúsin standa á Suðurnesi
og dregur kletturinn að baki verslunarhúsunum nafn af búðinni
og heitir enn Búðarklettur. Hann lét reisa Kaupvang,
íbúðarhús sem enn stendur, og hófst bygging
þess sumarið 1878.
Akra-Jón
flutti verslun sína í Englendingavík og byggði
þar upp sumarið 1886 og árin þar á eftir.
Þau hús sem hann byggði þar standa líka enn
og hýstu verslun KB í rúma fjóra áratugi.
Jón lést í Reykjavík árið 1916.
|
|
 |